Frændsemi við snilling

Sá sem vinnur milljónir í happadrætti eignast strax marga vini. Frændgarður Hildar Guðnadóttur óx veldisvexti eftir Óskarsverðlaunin.

Vinstrimenn eru ákafastir í frændseminni.

Enda mestur hégóminn þar á bæ.


mbl.is Þúsundir könnuðu hvort Hildur væri frænka þeirra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reynir, Arnþrúður og mannslífin

Almenn dómavenjan undanfarin ár er að gildisorðræða, þ.e. hvað einhverjum finnst um einhvern annan, skuli njóta friðhelgi tjáningarfrelsis en staðhæfingar um saknæman verknað, s.s. ásökun um þjófnað eða nauðgun, sæta refsingu.

Arnþrúður var dæmd fyrir að segja að Reynir hafi ,,mörg manns­líf á sam­visk­unni" og ,,fjöl­skyldu­ham­ingju á á sam­visk­unni."

Tvöföld merking er í orðalaginu að hafa ,,mannslíf á samviskunni". Í fyrsta lagi að drepa einhvern og í öðru lagi að vera valdur að því að einhver taki eigið líf.

Í fyrra tilvikinu er saknæmur verknaður, manndráp, en sjálfsmorð er ekki saknæmt. Ekki er það heldur saknæmt að vera svo leiðinlegur að einhver tapi lífshamingjunni eða hreinlega stúti sjálfum sér.

Dómarinn sem skrifaði dóminn virðist telja orðalag eins og ,,drepleiðinlegur" staðhæfingu um glæp. Dómari sem leggur slíkan skilning í tungumálið er illa læs á íslensku.

 


mbl.is Arnþrúður dæmd til að greiða miskabætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lilja vantreystir RÚV

RÚV er stjórnað af fólki sem fær flokkspólitíska skipun. Engar aðrar hæfniskröfur eru gerðar en flokkspólitískar. Lilja menntamálaráðherra þvær hendur sínar af stjórn RÚV og sendir þessa pillu: ,,ég hefði kosið fullt gagn­sæi í ráðning­ar­ferl­inu öllu."

Tilefnið er ráðning útvarpsstjóra sem stjórnin fór í feluleik með, gaf ekki upp hverjir sóttu um og neitar að rökstyðja niðurstöðuna.

RÚV er í helgreipum fólks sem kann ekki til verka en er haldið uppi með almannafé. Löngu tímabært er að aðskilja ríki og RÚV.


mbl.is Lilja hefði viljað gagnsæi í ráðningarferli RÚV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sósíalískt verkfall Eflingar: aðeins ein lausn

Efling stendur fyrir pólitísku verkfalli gegn Reykjavíkurborg og almenningi. Kröfur Eflingar eru úr öllum takti við lífskjarasamningana. Þær brjóta einnig í blað með kröfunni um að ófaglærðir starfsmenn njóti sömu launakjara og faglærðir.

Konur hafa á seinni árum verið duglegri en karlar að sækja sér menntun. Krafan um jöfn laun faglærðra og ófaglærða gjaldfellir menntun og kemur verr við konur en karla.

Aðeins ein lausn er á verkfalli Eflingar, uppgjöf. Spurningin er aðeins hvor gefst upp, vinstrimeirihlutinn í Reykjavík eða sósíalísk forysta Eflingar.


mbl.is Myndi ekki skila árangri að funda í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Atvinnuleysi þarf að aukast

Forsíðuuppsláttur Fréttablaðsins í dag er að ríkið eigi að örva atvinnulífið með framkvæmdum, lægri vöxtum og skattalækkun á fyrirtæki. Þetta er rangt mat sem tekur aðeins mið af einstökum geirum atvinnulífsins, s.s. ferðaþjónustu og byggingariðnaði.

Á síðasta ársfjórðungi nýliðins árs var atvinnuleysi ekki nema 3.3%. Launakröfur Eflingar í yfirstandansi kjaradeilu miðast við þenslu í hagkerfinu en ekki samdrátt. Atvinnuleysi þarf að aukast upp í 6 til tíu prósent til að veita launakröfum aðhald.

Dulið atvinnuleysi er meðal háskólafólks enda launakröfur þeirra hófstilltari og í takt við lífskjarasamninga.

Á Íslandi eru þúsundir faraandverkafólks sem hverfa til síns heima þegar atvinnuleysi eykst. Það er ekki hlutverk íslenska ríkisins að veita farandverkafólki atvinnu.

Í skjóli góðæris síðustu ára hefur myndast bóla sem þarf að springa til að ná jafnvægi í efnahagsmálum þjóðarinnar. Aukið atvinnuleysi er rétta svarið.

 


Notting Hill og hrun karlmennskunnar

Kvikmyndir setja tísku og endurspegla tíðaranda. Notting Hill, frá 1999, markar tískustefnu í kvikmyndum með sterkum konum og veikgeðja körlum. Kvikmyndin endurspeglar hrun karlmennskunnar síðustu áratuga.

Söguþráðurinn er að rík amerísk leikkona (Julia Roberts) verður ástfangin af fátækum sérvitringi (Hugh Grant) sem rekur nær gjaldþrota ferðabókasölu í fjölmenningarhverfi í London.

Sú ameríska þénar vel, er sjálfstæð og á framabraut. Þegar kærastan er atyrt á veitingastað er Grant eins og hræddur héri en Júlía hraunar yfir glaðbeittan en heimskan karlaher. Júlía kennir Grant að klifra yfir grindverk, stelpustrákurinn kann það ekki.

Hápunktur ræmunnar er þegar Júlía segist þrátt fyrir frægðina og peningana aðeins vera stelpa skotin í strák. Grant vælir og segist ekki afbera ástarsorg. Grant er jafnvel svo ókarlmannlegur að hann fer með ástamál sín til vina og fjölskyldu. 

Ógrynni sjónvarpsþátta og kvikmynda sýnir karla í aumingjahlutverki á móti sterkum konum sem keyra fram söguþráðinn. Flest verkanna komu út í kjölfar Notting Hill. 


Dómari dæmir sjálfan sig

Róbert Spanó dæmdi í undirdeild mannréttindadómstóls Evrópu í máli vinar síns, Vilhjálms H. Vilhjálmssonar. Róbert Spanó dæmir aftur í sama máli í yfirdeild dómstólsins.

Þegar dómarar dæma í eigin sök þarf ekkert réttarkerfi.

 


mbl.is MDE styðst við aðra réttarhefð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Franska byltingin og Ríki íslams

Tom Holland heitir breskur sagnfræðingur og skrifar bæði um kristni og múslímatrú. Hann gerði sjónvarpsþátt um Ríki íslams sem hægt er að sjá á RÚV

Undir lok þáttarins ber Holland saman frönsku byltingarmennina 1789 og hryðjuverkamenn Ríkis íslams. Sameiginlegt er að bæði þeir frönsku fyrir rúmum tveim öldum og þeir múslímsku í samtímanum boða nýtt upphaf baðað í blóði þess gamla.

Franska byltingin var sannanlega blóðug og grimm. Aftur eru mannréttindi á nútímavísu arfur byltingarinnar. Ríki íslams boðar hvorki mannréttindi né gæsku heldur misrétti og viðvarandi ofbeldi rétttrúaðra gegn þeim sem ekki fylgja spámanninum.

Ríki íslams er tilræði við vestræna menningu; franska byltingin var umsköpun menningar.

 


Ráðherra-Guðmundur og hinsegin vísindi

Guðmundur Ingi umhverfisráðherra trúir á hinsegin vísindi og leggur þau að jöfnu við rétt hinsegin fólks. Gefum ráðherra orðið:

Þegar litið er til stjórn­mál­anna á alþjóðavísu veld­ur af­neit­un stjórn­mála­leiðtoga og hreyf­inga víða um heim á lofts­lags­vís­ind­um mér þung­um áhyggj­um. Fals­frétt­ir verða æ al­geng­ari og upp­gang­ur fas­isma og ógeðfelldra viðhorfa í garð hinseg­in fólks eru stór viðfangs­efni sem síður en svo til­heyra fortíðinni,“ sagði Guðmund­ur.

Inn á milli trúarjátningar um hinsegin loftslagsvísindi og hinsegin fólk splæsir Gummi ráðherra gífuryrðum um fasisma, falsfréttir og ógeðfelld viðhorf.

Við sem erum normal, trúum ekki á hinsegin loftslagsvísindi, erum að dómi Hinsegin-Gumma fasistar með ógeðfelld viðhorf (eins og fasisti gæti haft hugguleg viðhorf).

Hinsegin-Gumma klæjar í fingurna að smíða gálga handa þjóðinni. Afbrigðilegir menn þrífast ekki nema í afbrigðilegu samfélagi.


mbl.is Líkir stjórnmálum við púsluspil
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Menntaðir og hræddir vinstrimenn

Þeir sem hafa meiri mennt­un finna líka frek­ar fyr­ir mikl­um um­hver­fisk­víða en þeir sem hafa minni mennt­un.

Loks eru þeir sem kysu Pírata, Vinstri græn eða Sam­fylk­ing­una ef kosið væri til Alþing­is í dag lík­legri til að finna fyr­ir mikl­um um­hver­fisk­víða en þeir sem kysu aðra flokka. Þeir sem kysu Miðflokk­inn eða Fram­sókn­ar­flokk­inn eru hins veg­ar ólík­leg­ast­ir til að finna fyr­ir mikl­um um­hver­fisk­víða.

Ofanritað er úr meðfylgjandi frétt. 

Trúgjarnir og hræddir vinstrimenn halda að heimurinn sé að farast þegar heilbrigð skynsemi og reynsla segir okkur að náttúruöflin stjórna veðurfari en ekki maðurinn. Fólk menntar sig til að verða kjánar.


mbl.is Fimmtungur finnur fyrir umhverfiskvíða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband