Menntaðir og hræddir vinstrimenn

Þeir sem hafa meiri mennt­un finna líka frek­ar fyr­ir mikl­um um­hver­fisk­víða en þeir sem hafa minni mennt­un.

Loks eru þeir sem kysu Pírata, Vinstri græn eða Sam­fylk­ing­una ef kosið væri til Alþing­is í dag lík­legri til að finna fyr­ir mikl­um um­hver­fisk­víða en þeir sem kysu aðra flokka. Þeir sem kysu Miðflokk­inn eða Fram­sókn­ar­flokk­inn eru hins veg­ar ólík­leg­ast­ir til að finna fyr­ir mikl­um um­hver­fisk­víða.

Ofanritað er úr meðfylgjandi frétt. 

Trúgjarnir og hræddir vinstrimenn halda að heimurinn sé að farast þegar heilbrigð skynsemi og reynsla segir okkur að náttúruöflin stjórna veðurfari en ekki maðurinn. Fólk menntar sig til að verða kjánar.


mbl.is Fimmtungur finnur fyrir umhverfiskvíða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Vinstrimenn eru hallir undir heimsendaspár. Skiptir engu hvort það er hlýnun loftslags, kólnun eða súrt regn. Þeir trúa því líka að hægt sé að lifa í friðsælum heimi.Hljómar vel en er bara draumsýn. Þeir útrýmdu orðinu -eðli- mannsins því þeim líkaði ekki að maðurinn stýrðist af eðlishvötum. Þeim hugnast víst betur að vera hjarðdýr, svona bara tilfallandi.  

Ragnhildur Kolka, 7.2.2020 kl. 18:19

2 Smámynd: Örn Einar Hansen

"Fólk menntar sig til að verða kjánar"

Þessu er ég 100% sammála.

Örn Einar Hansen, 7.2.2020 kl. 19:21

3 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Niðurstaðan hlýtur að vera sú að best sé að vita sem allra minnst. Og helst ekki neitt. Best að vera bara idjót!

Þorsteinn Siglaugsson, 7.2.2020 kl. 19:52

4 Smámynd: Hörður Þormar

"Náttúruöflin stjórna veðurfari en ekki maðurinn".

Maðurinn stjórnar ekki veðurfarinu, en hann hefur áhrif á það. Á því er mikill munur.

Hörður Þormar, 7.2.2020 kl. 21:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband