Franska byltingin og Ríki íslams

Tom Holland heitir breskur sagnfræðingur og skrifar bæði um kristni og múslímatrú. Hann gerði sjónvarpsþátt um Ríki íslams sem hægt er að sjá á RÚV

Undir lok þáttarins ber Holland saman frönsku byltingarmennina 1789 og hryðjuverkamenn Ríkis íslams. Sameiginlegt er að bæði þeir frönsku fyrir rúmum tveim öldum og þeir múslímsku í samtímanum boða nýtt upphaf baðað í blóði þess gamla.

Franska byltingin var sannanlega blóðug og grimm. Aftur eru mannréttindi á nútímavísu arfur byltingarinnar. Ríki íslams boðar hvorki mannréttindi né gæsku heldur misrétti og viðvarandi ofbeldi rétttrúaðra gegn þeim sem ekki fylgja spámanninum.

Ríki íslams er tilræði við vestræna menningu; franska byltingin var umsköpun menningar.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Og áfram þegja samtökin 78 og feministar.

Fyrsta fólk í aftöku fyrir þessa trú. 

Áfram Islam...

Úr því enginn frá þessu fólki andmælir,

þá hlýtur þetta að vera það sem þau óska eftir.

Svei þeim öllum.

Sigurður Kristján Hjaltested, 8.2.2020 kl. 20:54

2 Smámynd: Hörður Þormar

Hamed Abdel-Samad er stjórnmálafræðingur, ættaður frá Giza í Egyptalandi (þar sem píramídarnir eru). Faðir hans var iman (múslimaklerkur) og hann gekk ungur til liðs við Bræðralag múslima. Síðar fluttist hann til Þýskalands og hefur dvalist þar að mestu síðan. Hann heldur úti Facebook sem er heimsótt af milljónum manna í múslimska heiminum.

Hér fjallar hann um islam í erindi sem hann hélt í Danmörku fyrir nokkrum árum:                  Hamed Abdel-Samad: "Muhammad's influence on Muslims in today's secular Europe"               

Hörður Þormar, 8.2.2020 kl. 21:38

3 Smámynd: Örn Einar Hansen

Það skiptir engu máli, hvort um er að ræða múslimatrú eða kristna trú á þessum degi. Menn eru að aðhyllast glæpi og hryðjuverk.

Við eigum að aðlaga okkur að vísindum og þekkingu, ekki trú og blekkingu.

Örn Einar Hansen, 9.2.2020 kl. 09:42

4 Smámynd: Jón Þórhallsson

Ég myndi vilja taka upp FORSETAÞINGRÆÐI á íslandi

þannig að FORSETI ÍSLANDS myndi axla raunverulaga ábyrgð á þessum málum

og væri notaður til að höggva á óvissuhnúta þessu tengdu.

Síðan þyrfti hann að standa eða að falla með sinni afstöðu

til innflytjenda á kjördag.

Jón Þórhallsson, 9.2.2020 kl. 10:03

5 Smámynd: Þorsteinn Sch Thorsteinsson

Sæll Páll, 

Til þess að eyðileggja Sýrland algjörlega, nú og til þess að hafa góða lygaátyllu líka, þá fjármögnuðu þeir þessa málaliða (Ríki ISIS) frá Saudi Arabíu og Katar (wahhabism salafism), eða eins og kemur fram í gögnum frá Pentagon 2012. Þetta innrásarliðið er Pentagon vopnaði, þjálfaði og fjármagnaði hefur þjónað vissum tilgangi, en þökk sé Rússum fyrir það að stöðva allt þetta sérstaka innrásarlið, nú og eyðileggja áform þeirra í Pentagon, en hér á landi er ennþá verið ljúga okkur með þeim ósannindum um að borgarastríð hafi verið í Sýrlandi.

KV.  

ISIS Is a US-Israeli Creation. Top Ten “Indications”

"Secret Pentagon Report Reveals US "Created" ISIS As A "Tool" To ...

CIA Created ISIS — Assange Drops Bombshell On WikiLeaks Release Of 500K US Cables

Declassified Docs Show That Obama Admin Created ISIS In 2012 To Use As A ‘Tool’

CIA created ISIS, says Julian Assange as Wikileaks releases 500k US cables

 

Pentagon Paid PR Firm $540 Million to Make Fake Terrorist Videos

Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 10.2.2020 kl. 10:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband