Ráðherrar ofar lögum? Spilling, já takk.

Ef ráðherrum finnst eitthvað annað en lög mæla fyrir, hvort á að gilda skoðun ráðherra eða lögin?

Svarið er einboðið. Ráðherra á að fara að lögum. Annars misnotar hann vald sitt.

Samt sem áður eru settar fram kröfur að ráðherrar misnoti vald sitt í þágu meints góðs málefnis.

Meint góð málefni réttlæta ekki lögbrot.

Ákallið um lögbrot ráðherra kemur helst frá þeim sem tryllast fyrst og stökkva á fordæmingarvagninn þegar minnsti grunur vaknar um afbrot ráðherra í starfi.

Spilling þrífst helst þar sem lögin víkja fyrir geðþótta.


mbl.is Senda fjölskylduna í COVID-19-skimun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hópreiði, Jón Steinar og Björn Leví

Jón Steinar Gunnlaugsson skrifar um hóphyggju í Mogga dagsins. Einkenni hóphyggju er að einstaklingar móta sér skoðanir til að þóknast hópnum er þeir vilja tilheyra.

Skoðanir verða í auknum mæli til á samfélagsmiðlum, oft í samstarfi við fjölmiðla, og fara eins og logi yfir akur. Áður en nokkur veit af blasir við sviðin jörð rétttrúnaðar hóphugsunar þar sem málefni og staðreyndir liggja eins og hráviði út um allt.

Björn Leví þingmaður Pírata útskýrir í leiðaraopnu sama Mogga hvernig á að hrinda úr vör bylgju hóphugsunar. Aðferðina kallar þingmaðurinn ,,réttláta reiði." Hún byggir á öfund og útúrsnúningum, að telja fólki trú um að það hafi það skítt af því aðrir sitji yfir hlut þess. Ásakanir um spillingu krydda reiðina og gera hana réttláta.

Afleiðingin verður hópreiði er skilar sumum auknum þingstyrk en veldur annars leiðindum í samfélaginu.


Að skapa sér óvissu og krefja aðra um mannúð

Ef Íslendingur telur sér ekki vært á Fróni, tekur sig upp og flyst til framandi lands þá skapar hann sér óvissu. Taki hann fjölskylduna með sér eykst óvissan. Ef pappírarnir eru ekki í lagi og óvíst með landvist og ný heimkynni er viðkomandi að leggja á tæpasta vað.

Ef þessi ímyndaði Íslendingar er öfgamaður og aðhyllist pólitík um guðs ríki á jörðu, þar sem dauðarefsing liggur við að afneita trúnni og helmingur mannkyns, kvenkynið, er settur skör lægra en karlar, tja, þá er um sérstaklega ósvífinn einstakling að ræða ef hann heimtar mannúð og landvist í ríki sem er andstæða við trú hans.

Egyptinn sem kom hingað með fjölskyldu sína lýsir stoltur yfir því að hann tilheyri Bræðralagi múslíma. Samtökin eru viðurkennd öfgasamtök, áhöld eru um hvort þau séu hryðjuverkasamtök.

Egyptinn uppfyllir ekki skilyrði til að fá landvist hér á landi. Sé honum veitt landvist bitnar það á öðrum, sem eru verðugri. 


mbl.is Löng bið eftir úrlausn ómannúðleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guð, eins og hann hentar mér

Menning er að gera hlutina vel, sagði Þorsteinn heitinn Gylfason heimspekingur. Gildir líka um trúarmenningu.

Guð, ef hann er til, hlýtur að eins í fyrndinni og hann er í dag. Allir, sem á annað borð gefa því gaum, vita þó að guðsskilningur er ólíkur frá einum tíma til annars.

Sérhver einstaklingur hefur fullan rétt að trúa á sinn guð. Aftur er ætlast til af stofnun sem treyst er fyrir kristni, þjóðkirkjunni, að hún reyni að gera hlutina vel.

Þjóðkirkjunni er nokkur vorkunn. Gildismat virðist meira á reiki en oft áður. Vestræn kristin menning er í stríði við sjálfa sig. Sumir hópar, háværir í meira lagi, telja vestræna kristni ógeð kvenhaturs hvítra miðaldra karlmanna er sitja yfir hlut minnihlutahópa og freista þess sí og æ að gera vonda hluti verri.

Aðrir hópar í yfirstandandi stríði, yfirleitt lágværir íhaldsmenn, segja vestræna kristna menningu þá skástu sem völ er á. Í skjóli þessarar menningar þrífst meira persónufrelsi en sögur fara af; ríkir meiri hagsæld og velferð en dæmi eru um fyrr og síð. Lágværa íhaldsfólkið tekur vara á fyrirmyndarríkinu, hvort heldur það sé kennt við guð eða veraldlega isma. Innbyggt í allar manngerðar áætlanir um fyrirmyndarríkið er andstæðan; martröð sem hefur birst okkur með kennileitum eins og Auschwitz og Gúlaginu.

Þjóðkirkjan vill taka þátt í menningarstríðinu, sem er ekkert ýkja vel ígrundað, og tekur sér stöðu með þeim hópum er telja kristna vestræna menningu meira og minna hörmulega sögu valdníðslu.

Guð er, samkvæmt þjóðkirkjunni, hvað hver og einn vill. En mestu skiptir þó að hann sé alls ekki neitt í námunda við það að vera miðaldra hvítur karlmaður.

En guð sjálfur í öndverðu stal glæpnum frá íslensku þjóðkirkjunni. Hann lét son sinn eingetinn deyja á krossinum um þrítugt. Jesú var unglingur við andlátið. Engum sögum fer af kynskiptaaðgerð guðsbarnsins eða að það hafi brutt hormón til að láta sér vaxa brjóst. Það er seinni tíma verk fólks er vill vel en gerir illt. Eins og þeir einatt gera sem trúa á jarðneskt fyrirmyndarríki. 


mbl.is Augljóst að myndin hefur sært marga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spanó styður mannréttindabrot

Heimsókn Róberts Spanó, forseta mannréttindadómstóls Evrópu, til Tyrklands og Erdogan forseta gefur margföldum mannréttindabrotum lögmæti. Heimsóknin er stuðningsyfirlýsing Spanó við ítrekuð og alvarleg afbrot sem framin eru af tyrkneskum stjórnvöldum.

Heimsóknin sýnir að Spanó kærir sig kollóttan um mannréttindi. 

Spanó leggur sig aftur fram að gera vinum sínum greiða og þegar slíkir eiga í hlut er siðferðilega kjölfestan heldur léttvæg.


mbl.is „Róbert Spanó á að segja af sér“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útlendingar og afsakaðir glæpir

Eftir því sem framandi útlendingum fjölgar eykst glæpatíðni. Framandi útlendingar þekkja ekki siði og háttu nýja heimalandsins, það er einmitt það sem gerir þá framandi.

Tvennt veldur glæpahneigð þeirra framandi. Í fyrsta lagi eru þeir ekki siðaðir að hætti heimamanna. Þeir þekkja einfaldlega ekki mörkin hvað má og hvað ekki. Í öðru lagi koma þeir með siðaviðmið frá fyrri heimkynnum sem gilda ekki í þeim nýju. (Þriðja ástæðan er, auðvitað, að sumir eru réttir og sléttir glæpamenn. En þeir eru fáir.)

Í sumum menningarheimum er sjálfsagt að berja konur til hlýðni. Konan er þar óæðri karlinum og kerfisbundið ójafnrétti kynjanna hlýst af, gjarnan réttlætt með trúarkenningum. Barnaníð, þar sem stúlkur á gelgjualdri eru gefnar gömlum körlum, er önnur útgáfa.

Ef framandi útlendingar koma í hópum til nýrra heimkynna freistast þeir til að halda í forna siði og háttu sem eru glæpir í þeim nýju.

Til skamms tíma voru þessir glæpir afsakaðir, einatt í nafni fjölmenningar.

Ekki lengur. Nú er krafist aðlögunar. Forsenda aðlögunar er að þeir framandi séu hlutfallslega fáir.

Ísland er enn í þeirri öfundsverðu stöðu að hafa fáa framandi útlendinga. Höldum því þannig. Annars verða vandræði.


mbl.is Sinnaskipti í innflytjendamálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öfgamúslími krefst hælis á Íslandi

Í frétt Stundarinnar segir um egypskan múslíma sem krefst hælis á Íslandi fyrir sig og fjölskyldu sína:

Hafi hann gegnið úr flokknum og lýst opinberlega yfir stuðningi við Bræðralag múslima.

Bræðralag múslíma eru öfgasamtök sem boða ríki íslams. Í ríki íslam er ekki trúfrelsi, menn eru aflífaðir fyrir að ganga af trúnni; konur eru þrælar karlmanna og kristnir, fái þeir á annað borð að halda lífi, skulu krjúpa fyrir múslímum og borga þeim sérstakan skatt.

Vinstrimenn hér á landi eru áfram um að flytja inn í landið öfgamenn.

En, nei, takk við eigum nóg með innlendar öfgar.


mbl.is Segja ummæli Áslaugar köld og ónærgætin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kristni er hefð - spyrjið Þórunni Jónsdóttur

Flestir eru skírðir ómálga til kristni af foreldrum sínum. Fyrirkomulagið er í gildi í þúsund ár, frá fyrstu og einu nafnfrægu fjöldaskírn fullorðinna hér á landi, í Öxará á Þingvöllum árið 1000.

Kennisetning frá blautu barnsbeini fylgir fólki út lífið. Þjóðkirkjan, sem á að heita vörslumaður kristni, sýnir hvorki sjálfri sér nærgætni né landsmönnum, sem komnir eru til vits og ára, virðingu með róttækri endurtúlkun á ímynd Krists.

Ekki það að kristni sé án endurtúlkunar. Á 16. öld skiptu landsmenn um útfærslu ritningarinnar, fóru úr kaþólsku yfir í lútersku, að boði Danakonungs. Umskiptin kostuðu blóðfórnir þar sem keik kaþólsk kona, Þórunn Jónsdóttir, stóð yfir höfuðsvörðum danska yfirvaldsins.

Þegar brotið er í blað hefðar þarf eitthvað að vera í húfi. Þjóðkirkja er býr til framandi útgáfu af Jesúbarninu vill eflaust vel og telur sig í takti við tíðarandann. En sá andi er um þessar mundir giska hjárænulegur. Eins og Kristsgervingar biskupsstofu.

Stundum er best að gera ekki neitt en leyfa hefðinni að lifa. Kristni á Íslandi er yfir þúsund ára. Þjóðkirkjan er ekki hálfdrættingur og er í kaupbæti danskur andskoti.

 


mbl.is Munu birta fleiri Kristsgervinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland bráðnar og frýs á víxl

Landnámsmenn byggðu sér bú á Íslandi á miðaldahlýskeiðinu er varði fram á 13. öld. Jöklar voru minni og gróður meiri. Grænland þótti henta vel fyrir norrænan landbúnað um árið 1000.

Eftir hlýskeiðið tók við litla ísöld er varði fram undir 1900. Byggð á Grænlandi lagðist af á 15. öld og stóð stundum tæpt með mannlíf á Íslandi vegna kulda og náttúruhamfara.

Eftir ísöld hlaut að hlýna. Í stað þess að fagna huggulegra lofslagi og njóta stinga sumir höfðinu í svartan eyðisand og gráta bráðnun jökla.

Merkilegast er þó að náttúrulögmálum skuli vísað á bug vegna kjána sem stinga rusli inn í töflureikni og halda að út komi sannleikur.


mbl.is Hvernig Ísland er að bráðna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gáfaður Trump eða ofurgreindur?

Trump er kominn á þann stall að nú er spurt hvort hann sé gáfaður eða ofurgreindur. Í baksýnisspegli nýliðinna missera á kórónuveirutíma er reynt að leggja mat á hvort forsetinn hafi haft um það bil rétt fyrir sér eða hárrétt.

Bitamunur en ekki fjár, myndu sumir segja. En í Trump-fræðum er hver arða sönnunargagna tínd til og höfð til marks um ofurmennsku glókolls.

Með því að fylgjast með umræðunni um Trump fæst innsýn í söguleg fræði. Til dæmis hvernig á því stóð að rómverskir keisarar urðu guðir í lifandi lífi.


mbl.is Gerði lítið úr faraldrinum en vissi betur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband