Mánudagur, 1. febrúar 2021
Jón og séra Jón verða fyrir skotárás
Meðfylgjandi frétt virðist bera með sér að lögreglan telur skotárás á bíl almenns borgara ,,minniháttar skemmdarverk". Ef bíll stjórnmálamanns verður fyrir skotárás er það aftur talið tilræði við lýðræðið, samanber umræðu síðustu daga um skotgöt á bíl borgarstjóra.
Málið verður enn sérkennilegra sé haft í huga að stjórnmálamenn keppast hver um annan þveran að lýsa skotárás á bíl eins þeirra sem framhald af ,,hatursorðræðu."
Hverjir eru það nú aftur sem helst standa fyrir orðræðu um skelfingu, hörmungar og andstyggð? Eru það ekki stjórnmálamennirnir sjálfir?
Væri ekki snjallt af séra Jóni stjórnmálamanni að tempra orðfærið. Eða er það til of mikils mælst?
![]() |
Lögregla taldi skotárás minniháttar skemmdarverk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 1. febrúar 2021
Tilboð Einars og Jóns Ásgeirs til vinstrimanna
Einar Kárason rithöfundur og þekktur Samfylkingarmaður og Jón Ásgeir Jóhannesson fjármálamaður, áður kenndur við Baug, settu saman bók sem heitir Málsvörn.
Megintilgangur Málsvarnarinnar er að gera vinstrimönnum tilboð um að fyrirgefa Jóni Ásgeiri því hann er í raun fórnarlamb Davíðs Oddssonar, - sem vinstrimenn elska að hata.
Jón Ásgeir er sem sagt fórnarlamb, ekki gerandi í hruninu.
Og jólasveinar koma til byggða í júní.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 1. febrúar 2021
Haraldur sýnir lýðveldinu þegnskap
Á Íslandi fá allir tækifæri. Skólarnir eru öllum börnum og ungmennum opnir. Heilbrigðis- og félagskerfi sinna þeim er á þurfa að halda.
Haraldur Þorleifsson selur fyrirtæki sitt Ueno og ætlar að sjá til þess að skattar og gjöld af sölunni renni i sameiginlegan sjóð landsmanna. Þar með þakkar Haraldur samfélaginu sem fóstraði hann.
Fallegt.
![]() |
Allir skattar af sölu Ueno verði greiddir á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 31. janúar 2021
Skot strokkuð í hatur
Byssuskot á skrifstofu Samfylkingar og bíl borgarstjóra eru hráefni í margar yfirlýsingar, núna síðast frá Samfylkingu höfuðborgarinnar, um tengsl við ,,hatursorðræðu."
Einhver grunaður er í höndum lögreglu. Kannski er það geðbilaður einstaklingur. Enginn veit.
Pólitíkusar sem mjólka skotárásirnar og strokka afurðina til að verða einhvers konar ,,hatursorðræðu" gera engum greiða, hvorki sjálfum sér né samfélaginu. Þeir sem tengja skotárásirnar við pólitíska umræðu eru ekki síður afbrigðilegir en sá byssuglaði.
![]() |
Ekki fara á límingunum! |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Sunnudagur, 31. janúar 2021
Er Sjálfstæðisflokkurinn að máta sig við ESB?
Grein Friðjóns R. Friðjónssonar, fyrrum aðstoðarmanns Bjarna formanns, um að Sjálfstæðisflokkurinn eigi að verða ,,flokkur breytinga" er töluvert til umræðu. Á Facebook-síðu Friðjóns taka nokkrir til máls. Í fyrsta lagi er spurt hvort Friðjón sé á leiðinni i framboð. Í öðru lagi er hann boðinn velkominn í Viðreisn.
Ragnhildur Kolka segir eftirfarandi í athugasemd við blogg gærdagsins:
Friðjón kvartaði og kveinaði um allt það sem uppá vantar svo Ísland megi ganga inní um gullna hliðið. Já, ESB lék þarna á tungubroddinum en var ekki nefnt. Bara eyða eða tóm. Annað hvort er PR maðurinn genginn í lið med Viðreisn, hann tók jú að sér leikstjórn í forsetafarsanum eða Bjarni er að senda út þreifara vegna fullveldis framsals. Eg er hrædd um að þá dugi ekki að senda Brynjar fram á vøllinn. Nú verður Bjarni sjálfur að svara fyrir afstøðu sína til þessara skrifa.
Í haust eru þingkosningar. Hvort sem Friðjón skrifar fyrir eigin reikning eða annarra, maðurinn er jú almannatengill, þá vakna spurningar um hvort Sjálfstæðisflokkurinn sé að máta sig við nýtt hlutverk, - að verða ESB-flokkur líkt og Viðreisn og Samfylking.
Ef svo er myndi það sæta nokkrum tíðindum í íslenskri pólitík.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 30. janúar 2021
Friðjón, Brynjar og viðreisnarsósíalismi
Tveir sjálfstæðismenn skrifast á í Morgunblaðinu um hlutverk flokksins. Friðjón R. Friðjónsson vill að Sjálfstæðisflokkurinn verði umbreytingarafl en Brynjar Níelsson geldur varhug við.
Vinstrimenn og sósíalistar líta svo á að stjórnmálaflokkar séu til að umbylta samfélaginu. Hægfara sósíalistar, oft kallaðir kratar, vilja breyta með góðu, þ.e. eftir reglum lýðræðis og þingræðis, en þeir róttæku með illu, byltingu.
Borgaraleg stjórnmálaöfl, sem Sjálfstæðisflokkurinn tilheyrir, a.m.k. að nafninu til, boða almennt ekki umbyltingu á samfélaginu. Samfélagsverkfræði er meira á dagskrá jaðarhópa sem telja sig handhafa sannleikans. Flestir þannig þenkjandi eru í vinstripólitík af einhverri sort. En svo eru sérafbrigði.
Viðreisn, eins og Brynjar bendir á, vill breytingar og þær frekar meiri en minni. Fyrsta krafa flokksins er að Benni komist á þing og flokkurinn í ríkisstjórn. Þarnæst bylta landbúnaðarkerfinu, síðan fiskveiðikerfinu og loks fullveldinu - með inngöngu í ESB.
Viðreisnarsósíalismi er dans elítunnar um gullkálfinn. Meiningin er að skilja þá eftir sem vinna til lands og sjós svo að sérfræðielítan fái stærri sneið af kökunni. Skiljanlegt markmið hjá þeim sem telja sig eiga alltaf að vera fremst í röðinni, hvort heldur við útdeilingu gæða eða afskriftir skulda.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 30. janúar 2021
Spilling, hatur og skothríð
Spilling er siðferðishugtak, ekki lagamál. Engin lagagrein bannar spillingu. Aftur eru mörg lögbrot, einkum er varða efnahagslegan ávinning, kennd við spillingu og það með réttu.
Siðferði snýst um rétta og ranga breytni. Sá sem breytir rangt gerir vont, bæði sjálfum sér og samferðamönnum. Umburðalynt samfélag aðgreinir vond verk frá þeim þau vinna. Sagt er að einhverjum hafi orðið á í messunni, gert mistök, leiðst af leið eða gert eitthvað af vangá. Sá sem vann vonda verkið er ekki endilega vondur maður.
Samfélag sem trúir að allt sé grasserandi í spillingu ræktar ekki með sér umburðalyndi heldur óþol og andstyggð. Það trúir illu upp á náungann og telur vonda menn vinna ill verk af ráðnum hug. Hatrið sem af hlýst er sumum um megn að byrgja innra með sér. Viðhorfið verður ,,með illu skal illt út reka."
Þeir sem núna hæst kveina um hatursorðræðu eru um það bil þeir sömu og harðastir eru á því að við búum í gjörspilltu samfélagi. Líkur sækir líkan heim.
![]() |
Gagnrýnir harða og ómálefnalega orðræðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 29. janúar 2021
Samsæri RÚV og SÍ gegn Samherja
Starfsmaður Seðlabanka Íslands og Helgi Seljan fyrir hönd RÚV gerðu með sér samsæri að valda Samherja hámarksskaða. Samsærið gekk út á að húsrannsókn á Samherja yrði gerð undir vökulum sjónvarpsmyndavélum RÚV og birt samdægurs. Hluti af samsærinu var að Helgi Seljan veifaði skjali framan í áhorfendur, - sem síðar reyndist ýmist týnt,falsað eða logið.
Allt þetta er búið að afhjúpa. Tölvupóstar með samskiptum Helga Seljan og starfsmanns bankans liggja fyrir.
Rökstuddur grunur er um að samsærið sé lögbrot og stendur yfir lögreglurannsókn. Málið var sent vestur á firði þar eð lögreglustjórinn í Reykjavík er vanhæfur.
Samsærið gegn Samherja var tilhæfulaust. Ákæra RÚV og Seðlabanka Íslands fór til dómstóla sem sýknuðu fyrirtækið.
Ef það er spilling á Íslandi þá liggur hún í opinberri aftökutilraun tveggja ríkisstofnana á íslensku fyrirtæki.
Er ekki tímabært að uppræta slíka spillingu?
![]() |
Hreyfing komin á rannsókn um samráð SÍ og RÚV |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 29. janúar 2021
Innanflokksátök Samfylkingar og skotárásir
Skotárásin á skrifstofu Samfylkingar í Reykjavik var gerð þegar flokkurinn logaði stafnanna á milli í innanflokksátökum. Uppstillingarnefnd flokksins fórnaði sitjandi þingmanni. Stuðningsfólk þingmannsins brást ókvæða við og sagði sparkað í liggjandi mann.
Logi formaður sendi flokksfólki skilaboð og bað það að elska meira og hata aðeins minna. Huggulegra sé að flokkurinn sýni lágmarkssamstöðu á kosningaári.
Í framhaldi er skotið á bíl borgarstjóra. Í hvorugu tilfellinu er ljóst hverjir standa að verki.
Framlag Samfylkingar til íslenskrar stjórnmálamenningar er ekki alveg skothelt.
![]() |
Sættum okkur ekki við árásir eða hótanir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 28. janúar 2021
Pólitískur ómöguleiki bankasölu
Bankar búa til peninga, útskýrir Gylfi Zoega hagfræðingur, og að því leyti ekki eins og önnur fyrirtæki. Freistnivandi eigenda banka að búa til peninga handa sjálfum sér og meðreiðarsveinum var eftir útrás kallaður ,,að ræna banka innanfrá."
Hvaða íslenskir einkafjárfestar eru með siðferðisvottorð að standast freistnivanda er fylgir bankaeign? Jón Ásgeir? Ólafur í Samskip? Björgólfur Thors?
Um leið og Bjarna fjármálaráðherra er óskað til hamingju með rekstur ríkissjóðs, sjá meðfylgjandi frétt, er hann minntur á hugtak hans sjálfs úr umræðu á alþingi: pólitískur ómöguleiki.
![]() |
Mikill áhugi fjárfesta á skuldabréfum ríkissjóðs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)