Valdafemínismi kemur sér upp ákæru- og dómsvaldi

KSÍ virðist hafa samþykkt að hópur sem kallar sig Öfga fari með ákæruvald í málefnum þeirra sem koma til greina sem landsliðsmenn. 

Ef Öfgar ákæra fellur sjálfkrafa dómur; viðkomandi leikmaður kemur ekki til greina í landsliðið. Svo er látið fréttast hverjir eigi í hlut og þar með er farið mannorð og æra án málsatvika og rannsóknar.

Skýtur skökku við að hálfopinber aðili, KSÍ, skuli framselja valdafemínískum samtökum ákæru- og dómsvald. Í réttarríki gengur ekki að aðrir en opinberir aðilar hafi í hendi vald til saksóknar og tryggi jafnframt sjálfstæði dómstóla. 


mbl.is Segir KSÍ hafa komið sér upp rannsóknarrétti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grétuvandræði: sólin, ekki CO2, veldur hlýnun

Tvær nýbirtar vísindagreinar skrifa hækkun hitastigs jarðar á reikning sólarvirkni og samspili við skýjafar og hafna í leiðinni að manngerður koltvísýringur, CO2, sé ástæða hlýnunar.

Danski vísindamaðurinn Henrik Svensmark fær birta grein í Nature, sem telst háborg fræðirita, eftir tveggja ára ritrýningu. Í greininni segir að sólarvirkni og geimgeislar séu veigamiklir þættir i orkubúskap lofthjúps jarðar. Svensmark útskýrir niðurstöðurnar í viðtali. Ágúst H. Bjarnason hefur skrifað um rannsóknir Svensmark.

Orkubúskapur lofthjúpsins ræður hvort hitastig á jörðinni hækkar eða lækkar. Ef meiri orka kemur inn en fer út hækkar hitinn og öfugt ef útgeislun er meiri en innstreymi orku.

Kenning Grétu Thunberg og félaga er að koltvísýringur af mannavöldum hindri útgeislun og því hitni jörðin. Grétufræði gera ekki ráð fyrir að sólarvirknin hafi áhrif og gefa sér að CO2 útskýri allar hitabreytingar. Grétufræðin geta ekki útskýrt hvers vegna loftslag jarðar breyttist, og tók raunar verulegum breytingum, sbr. ísaldir, löngu áður en maðurinn gat nokkur áhrif haft með brennslu jarðefnaeldsneytis. Sólarvirki, á hinn bóginn, getur útskýrt loftslagsbreytingar alla jarðsöguna.

Önnur vísindagrein af áþekkum toga og rannsókn Svensmark er kynnt á heimasíðu loftslagsvísindamannsins Judith Curry. Höfundar eru Fritz Vahrenholt og Rolf Dubal. Þar segir klárt og kvitt að hækkun hita á jörðinni sl. 20 sé hægt að skýra með sólarvirkni og skýjafari.

Hér á Fróni er rætt um að stofna til loftslagsráðuneytis. Nær væri að stofna sólarráðuneyti. Við værum á pari með Forn-Egyptm sem dýrkuðu þá gulu og höfðu til þess stjórnarráð. Þó ekki á Arnarhvoli.


Vinstrimenn til hjálpar Miðflokknum

Standi Miðflokkurinn af sér þá gjörningahríð sem hófst þegar þriðjungur þingflokksins flutti á höfuðbólið er það ekki síst vinstrimönnum að þakka.

RÚV flytur raðfréttir um vistaskipti Birgis og Fréttablaðið ólmast. Erna verður kjur segja síðustu fréttir.

Samhljómur vinstrimanna er að þótt tilvist Miðflokksins sé slæm þá sé enn verra að Sjálfstæðisflokkurinn styrkist.

Líklegasta niðurstaðan er þó sú að Sjálfstæðisflokkurinn styrkist og Miðflokkurinn blífur.

Ávallt skal þannig fara að vinstrimenn raðklúðri sínum málum.

Ekki það að maður sé að kvarta.


mbl.is Erna verður eftir í Miðflokknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Efnaðir styðja Katrínu forsætis umfram fátæka

RÚV segir frá könnun um stuðning við að Katrín Jakobs verði áfram forsætisráðherra:

Þá er jákvæð fylgni milli tekna og stuðnings við Katrínu Jakobsdóttur. Meðal þeirra sem hafa heimilistekjur undir 550 þúsund er stuðningurinn á bilinu 46-48%, en hann er ríflega 61% hjá þeim sem hafa heimilistekjur yfir einni milljón króna.

Kannski ekki sá stuðningur sem sitjandi forsætisráðherra og formaður Vinstri grænna gæti helst hugsað sér. En svona er þetta.

Hver er skýringin? Jú, hún er einboðin.

Þeir sem eiga meiri peninga en minni vilja sjá stöðugleika sem fylgir Katrínu - í stjórn með Sjálfstæðisflokki og Framsókn.

Þeir sem eiga minni peninga vilja sprengja allt draslið upp í háaloft í von um að sundrungin skapi þeim betri kjör. Til vara er hugsunin að sælt sé sameiginlegt skipbrot. Þeir vilja Loga eða Tobbu Kötu sem forsætis - og Gunnar Smára ef hann væri á þingi.


Léleg vísindi, loftslag og veira

Bresk stjórnvöld hlýddu dómgreindarlaus lélegum vísindum á fyrstu stigum faraldurs Kínaveirunnar, segir í nýrri skýrslu. Afleiðingin var ótímabær dauði þúsunda.

Léleg vísindi eru miður heppileg, hvort heldur þeim er beitt á loftslag eða veiru.

Meint vísindi eru best skilin í samhengi með heilbrigðri skynsemi. Bretar áttu að skella í lás, loka landamærunum fyrr í tilfelli Kínaveirunnar, segir skýrslan, þótt það hefði verið þvert á ráðleggingar lélegu vísindanna.

Engin sambærileg skýrsla er enn tekin saman um lélegu loftslagsvísindin sem fá stjórnvöld til að trúa á manngert veðurfar og búa til efnahagslegar hamfarir í kjölfarið. Sú skýrsla verður töluvert svartari en veiruskýrslan. Þá þýðir ekkert að hlaupa í það skjól að um bráðavanda sé að ræða. Ónei, loftslag er jafngamalt móðir jörð og hefur alltaf tekið náttúrulegum breytingum en aldrei lotið mannasetningum. Heilbrigð skynsemi á alltaf að trompa léleg vísindi.


Klefamenning karla - og kvenna

Hörður Hilmarsson þekkir ,,klefamenningu" karla og kvenna, bæði sem leikmaður í félagsliði og landsliði og knattspyrnuþjálfari liða í karla- og kvennadeild. Hörður skrifar

Ég hef eins og aðrir karl­kyns knatt­spyrnu­menn þurft að sitja und­ir komm­ent­um mis­vit­urra sér­fræðinga á sam­fé­lags­miðlum um nei­kvæða "klefa­menn­ingu" sem á víst að hafa átt sér stað í sam­fé­lagi karla í knatt­spyrnu. Ég sem leikmaður og þjálf­ari í ára­tugi kann­ast ekki við kven­fyr­ir­litn­ingu eða ann­an nega­tív­isma í bún­ings­klef­um karl­manna.

Hins veg­ar upp­lifði ég það sem þjálf­ari kvennaliðs að ynd­is­leg­ar stúlk­ur voru miklu meiri klám­kjaft­ar held­ur en ég hafði kynnst í "stráka­klef­um". Ég tók þessu sem þeirra húm­or og hafði eng­ar áhyggj­ur af, þótt ég roðnaði stund­um.

Það er sem sagt ekki ,,klefamenning" sem útskýrir eitt eða neitt um viðhorf manna til samskipta yfir kynjalandamærin.

En líklega skýrir ,,klefamenning" femínista á spjallrásum ýmislegt um foraðið sem KSÍ situr í pikkfast.

 


mbl.is Hafnar neikvæðri klefamenningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Konur verndaðar gegn körlum

Konur fái ekki aðgang að opinberum vettvangi, s.s. áhorfendastúku íþróttaleikvangs,  ,,und­ir þeim for­merkj­um að verið væri að verja þær fyr­ir óviðeig­andi hegðun karl­manna," segir í viðtengdri frétt.

Önnur leið að vernda konur er haga málum þannig að allt áreiti sem þær verða fyrir af hálfu karla sé óðara skilgreint sem kynferðisleg áreitni (með enni). Karlinn sem í hlut á verði bæði fordæmdur og útskúfaður úr samfélaginu.

Bæði klerkaveldi og lýðveldi eiga sín ráð til að vernda konur.

 


mbl.is Konur komast ekki á völlinn eftir allt saman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðarsálin er 70% á hægri vængnum

Það þóttu ekki stór tíðindi á síðasta kjörtímabili þegar tveir þingmenn Vinstri grænna, Andrés og Rósa B., skiptu um lið og fóru til Pírata annars vegar og hins vegar Samfylkingar. Vinstriflokkarnir eru sama tóbakið pakkað í ólíkar umbúðir.

Aftur þykja það stórpólitísk tíðindi þegar Birgir þingmaður Miðflokks gengur Sjálfstæðisflokknum á hönd. Margir mæta til leiks að túlka og setja í samhengi þær pólitísku flekahreyfingar. Ekki síst eru margir yfirlýstir vinstrimenn ósparir á yfirlýsingar.

Stjórnmálaflokkar í senn endurspegla þjóðarsálina og reyna að hnika henni á þá átt sem pólitískur vilji hvers flokks stendur til.

Það er léttvægt þegar liðsskipti eru milli vinstriflokka. Þar er aldrei nema um 30% fylgi. Aftur eru 70 prósent þjóðarsálarinnar á hægri væng stjórnmálanna. Það skýrir uppnámið vegna Birgis. 


mbl.is Sigmundur biðst afsökunar á flakki Birgis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslendingaandúð

,,Ung kona af kúrdískum uppruna virtist um tíma hafa náð þingsæti á Alþingi. Hennar fyrstu orð af því tilefni voru að hún vilji beita sér í málefnum útlendinga og innflytjenda. Ég er orðlaus gagnvart svo ótrúlegum og vanhugsuðum skorti á smekkvísi."

Á þessa leið skrifar Rajan Parrikar í Morgunblað helgarinnar. Rajan er asískur innflytjandi með íslenskan ríkisborgararétt. Ennfremur segir hann:

Nú á dögum er alsiða að innflytjendur heimti „réttindi“ jafnóðum og þeir hafa stigið á land, réttindi sem þeir myndu ekki dirfast að fara fram á í sínum heimalöndum.

Lokaorðin eru þessi

Íslendingar hafa sem fullvalda þjóð fullan rétt á að móta sína innflytjendastefnu og þurfa ekki að vera sakbitnir eða þola að lesið sé yfir þeim þess vegna – allra síst af fólki sem rekur ættir sínar til samfélaga þar sem kúgun ríkir. Styrkur og seigla íslensku þjóðarinnar er einsleitum uppruna að þakka, ekki fjölmenningarorðavaðli. Látið engan mann segja ykkur annað.

Tilfallandi amen eftir efninu.


Fréttablaðið: setjum lög um veðrið

Fréttablaðið er miðstöð þeirra sem trúa á manngert veðurfar. Í dag skrifar nýdoktor í lögfræði að við verðum að setja í lög hvert loftslagið í heiminum á að vera.

Með vísan í Parísarsáttmála vill nýdoktorinn að lög banni hlýrra loftslag og haldi því ,,helst undir 1,5°C" hækkun miðað við 19. öld.

Vísindamenn segja okkur að loftslag hafi við kristnitöku einmitt verið 1,5 gráðum hlýrra en í dag.

Lögbók þjóðveldisins hét Grágás. Hvergi í þeirri lögbók er stafkrókur um að lög standi til þess að veðrið sé annað en það sem náttúran gefur. Menn vissu sínu viti fyrr á tíð.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband