Stígamótalandsliðið

Stígamót stjórna vali á landsliði Íslands í knattspyrnu. Um það þarf ekki að hafa mörg orð. Nægir að vísa í meðferðina á Kolla og Aroni Einari.

Stígamót eru fjárplógssamtök sem stunda skipulega skoðanakúgun og raka til sín fé með hótunum. Stígamót svífast einskins til að koma ár sinni fyrir borð.

KSÍ lyppaðist niður og liggur enn í svaðinu eftir að hafa orðið skotmark Stígamóta.

Stígamótalandsliðið er skammarblettur á íþróttahreyfingunni.


mbl.is Stjórnarliðar KSÍ vísa ásökunum á bug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fréttablaðið birtir skoðanir sem fréttir

Í gær skrifaði Aðalheiður Ámundadóttir leiðara í Fréttablaðið um meint kosningasvindl í NV-kjördæmi. Leiðarar eru skoðanir og túlkun. Fréttir eru annað, hlutlæg frásögn.

En þessu er öfugt farið á Fréttablaðinu. Þar á bæ eru fréttir skrifaðar til að styðja við skoðanir.

Í dag skrifar Aðalheiður forsíðufrétt Fréttablaðsins undir fyrirsögninni Óvissan er bæði lagaleg og pólitísk. Þar er leiðarinn frá í gær, um svindl í NV-kjördæmi, klæddur í búning fréttar.

Aðalheiður talar máli Pírata. Hún mætti sem slík í RÚV á kosninganótt. Píratar, eins og aðrir vinstriflokkar, töpuðu kosningunum.

Nú notar Aðalheiður aðstöðu sína á Fréttablaðinu til að skapa óvissu. Úr óvissu sprettur óreiða. Í óreiðu liggur von vinstrimanna að komast til valda.

Skoðanir Aðalheiðar eru forsíðuuppsláttur Fréttablaðsins. Það er verið að svindla á lesendum; vinstriskoðanir eru settar fram í búningi hlutlægra frétta.

Fréttablaðið fær ríkisfé til að standa undir útgáfunni. Í reynd er ríkið að niðurgreiða skoðanir. Hvað voru þeir að hugsa sem ákváðu að svo skyldi vera?


Dómarinn og þægilega innivinnan

Þorri vinstrimanna, sem sækist eftir kjöri á alþingi, er í leit að þægilegri innivinnu á góðu kaupi. Arnar Þór Jónsson héraðsdómari syndir á móti straumnum. Hann segir lausu traustu starfi og heldur í óvissuferð sem varaþingmaður. Dómarinn vill taka slaginn fyrir hugsjónir sjálfstæðrar þjóðar í fullvalda ríki.

Arnar Þór, eins og gefur að skilja, er hægrimaður.


mbl.is Arnar Þór hættir sem héraðsdómari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jafnrétti flokka, ójafnræði vonarþingmanna

Kosningakerfið eins og það er núna tryggir jafnræði á milli stjórnmálaflokka. Jafnræði milli einstaklinga í framboði er ekki einu sinni á dagskrá - fullkomið aukaatriði.

Á meðan listakosningar eru viðhafðar er ekki viðlit að sinna óskum og þörfum einstaklinga að verða þingmenn nema í hópi annarra, þ.e. stjórnmálasamtökum.

Þannig er kerfið og það er sanngjarnt m.t.t. heildarhagsmuna.

 


mbl.is Líst ekki á jöfnunarsætisþingmenn í kjörbréfanefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Týndur snillingur og niðurlægður karl með tík í fanginu

Ég er týndur snillingur, skrifar Benedikt Jóhannesson stofnandi Viðreisnar í Mogga í dag. Ég er niðurlægður karl sem tík humpast á sagði Vilhjálmur Bjarnason fyrrum þingmaður á sama stað í gær.

Helvíti er hart að vera miðaldra hvítur karl án valda.


Píratar vinna ekki þegar traust ríkir, heldur óreiða

Kosningabarátta Pírata gekk út á að Ísland væri í helgreipum spillingar. Eftir kosningar er haldið áfram með sama sönginn.

Fyllilega trúverðugar skýringar hafa komið fram á talningamistökum í NV-kjördæmi. En Píratar sjá eintóma spillingu.

Píratar vita sem er að þeirri tími kemur með óreiðu, tortryggni og hatri. Þess vegna sá þeir fræjum óreiðu, tortryggni og haturs.


mbl.is „Hvar endar þetta?“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fréttablaðið til sölu, Gunnar Smári líklegur

Sósíalistinn Gunnar Smári er kominn með fullar hendur fjár eftir misheppnað framboð til alþingis. Framboð með yfir 2,5% fylgi fá fjárframlög úr ríkissjóði. Gunnar Smári hyggst reyna fyrir sér á ný í fjölmiðlun.

Í sumar birtust lausafregnir að Helgi Magnússon eigandi Fréttablaðsins leitaði að kaupendum. Gunnar Smári hefur áður lýst yfir áhuga að kaupa með því að tala verðið niður.

Á tíma útrásar rak Gunnar Smári Fréttablaðið fyrir Jón Ásgeir Baugsstjóra. Þá var hann kapítalisti og sigldi öllu í gjaldþrot sem hann kom nálægt. Sósíalistinn Gunnar Smári mun auðvitað endurreisa Fréttablaðið rauða fánans. Sósíalistar kunna svo vel að reka fyrirtæki. Eins og dæmin sanna.


Móðursjúkir vinstrimenn reyndu atlögu

Við kunnum ekki að telja, við getum ekki lýðræði, við lifum í botnlausri spillingu kyrjuðu móðursjúkir píratar, sósíalistar, vinstri grænir og samfóistar síðdegis í gær - og vildu ógilda nýafstaðnar kosningar.

Móðursjúka fólkið er stútfullt af sjálfshatri sem það yfirfærir á þjóðina af minnsta tilefni.

Kostulegt er að fylgjast með þessum eymdarsálum misheppnaðra mannkynsfrelsara sem geta ekki sameinast nema í brjálæðiskasti.

Vinstrimenn eru sundraðir sem aldrei fyrr. Þeir buðu fram fjóra framboðslista. Eini flokkurinn sem lyfti sig yfir tíu prósentin er sá sem starfar með borgaralegum flokkum.

Vinstri viðrinin eru útilokunarflokkar. Píratar útilokuðu Sjálfstæðisflokkinn, Samfylkingin sömuleiðis og Sósíalistaflokkurinn alla aðra en sjálfan sig. 

Á kjördag svaraði þjóðin fyrir sig og dæmdi 75% vinstriflokkanna til áhrifalausrar sérvitringatilveru á jaðri stjórnmálanna. Þar situr eymdarliðið og bruggar samborgunum sínum launráð, tilbúið að efna til múgæsingaratlögu af minnsta tilefni. Eins og í gær.


mbl.is Endurtalning leiddi í ljós sömu niðurstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pírati gerist Trump: ógildum kosningarnar

Oddviti Pírata vill ógilda alþingiskosningar.

Úrslitin eru ekki nógu ,,rétt".

Trumpista má víða finna.


mbl.is Magnús ætlar að kæra kosningarnar í NV-kjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endalok frjálslyndis

Frjálslyndi var ráðandi pólitík til skamms tíma. Ekki lengur. Eini stjórnmálamaðurinn sem notaði hugtakið í nýafstaðinni kosningabaráttu var Þorgerður Katrín í Viðreisn. Logi í Samfylkingu ræddi ,,umbætur" og ,,breytingar". 

Á vesturlöndum er frjálslyndið sem má kenna við stjórnmálamenn eins og Tony Blair, Clinton-hjónin og Obama komið út í öfgar fræðilegrar kynþáttahyggju og loftslagsmarxisma. Umburðalyndi og frjálslyndi eru orðnar andstæður.

Á Íslandi sáust öfgarnar í málflutningi sósíalista. Blint hatur á auðvaldi og stéttaóvinum var efst á dagskrá. Inga Sæland fékk meiri áheyrn með hugmyndir um sígilt réttlæti og flutti atkvæðin yfir í sönglandi Flokk fólksins.

Eftir kosningatap er hugtakið ,,félagshyggja" komið á varir Loga. Það orð var síðast í umræðunni, svo eitthvað kvað að, fyrir síðustu aldamót. Logi og félagar þurfa nýja orðaleppa. ,,Kaupaukar eru einkamál," er sennilega ekki sniðugasta slagorðið.


mbl.is Samfylkingin muni „rísa upp í fyllingu tímans“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband