Logi: ESB-stjórn með sósíalistum

Margt sameinar Samfylkingu og Viðreisn, segir Logi formaður. Áður hafa efstu menn á listum Samfylkingar lýst áhuga að fá sósíalista í vinstristjórn.

Vinstristjórn Jóhönnu Sig. sótti um aðild að Evrópusambandinu og splundraði þjóðinni. Sú umsókn liggur ofan í skúffu í stjórnarráðinu og afrit hennar er í Brussel. Logi og Þorgerður Katrín, bæði ákafir ESB-sinnar, hyggjast endurnýja innlimunarferli Íslands inn í ESB.

Kjósendur vita að hverju þeir ganga á laugardag.


mbl.is „Margt sem sameinar okkur Þorgerði Katrínu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ofbeldissveit sósíalista - KSÍ og Stígamót

,,Að koma á laggirnar stoðdeild skipaða sjálfstæðu lögreglu- og ákæruvaldi," segir á heimasíðu Sósíalistaflokks Íslands. Þetta er kallað ,,tilboð til kjósenda."

Í grein með tilboðinu er spurt Ef KSÍ hefði haft aðgang að Ofbeldiseftirlitinu?

Nærtækara er að spyrja: Ef Stígamót hefðu haft aðgang að Ofbeldissveitinni?

Jú, þá hefðu Guðni forseti KSÍ og Klara framkvæmdastjóri verið handjárnuð og sett í einangrun OSS, Ofbeldissveitar sósíalista, og látin játa á sig ásakanir Stígamóta.

Þeir kunna þetta sósíalistarnir. Forverar OSS eru NKVD, KGB og STASI.


mbl.is KSÍ ítrekar afsökunarbeiðni – vilja að ÍSÍ stofni nefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

4-5 flokka vinstristjórn líklegust

Ef þjóðin kýs á laugardag samkvæmt skoðanakönnunum er líklegast að mynduð verði 4-5 flokka vinstristjórn, segir Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðiprófessor.

Á bakvið tjöldin standa nú yfir hjaðningavíg vinstrimanna sem keppast við vinsældir hjá sömu kjósendahópum. Þau innanbúðarátök halda áfram í væntanlegri ríkisstjórn vinstrimanna. Þeir sem eru komnir til vits og ára muna hvernig kaupin gerðust á eyrinni í vinsældakapphlaupi Alþýðuflokks og Alþýðubandalags á síðustu öld.

Til að kaupa sér vinsældir verður opinbert vald og ríkissjóður miskunnarlaust notaður til að hygla sérvöldum hópum vinstrimanna sem sitja um opinber gæði eins og hrægammar. Í orði er talað um almannahagsmuni en á borði gilda sérhagsmunir vinstrihópa hver með sína útgáfu af tilverunni.

Almenningur á enn kost að forða sér frá vinstri stórslysi. Með því að kjósa ekki samkvæmt skoðanakönnunum og verja atkvæði sínu skynsamlega á laugardaginn kemur.


Gunnar Smári og blaðburðabörnin

Gunnar Smári bakaði ekki pönnsur handa blaðburðabörnum Fréttablaðsins þegar hann réð þar ríkjum í umboði Jóns Ásgeirs í Baugi. Nei, þá réð ferðinni harður kapítalismi. Sigurður Már Jónsson blaðamaður rifjar upp þessa sögu í Fjölmiðlanördum. Sigurður Már skrifar

Það var ekki bara þungi og lág laun sem gerði blaðburðarfólki erfitt fyrir. Þeim var einnig gert að dreifa fjölda auglýsingabæklinga með Fréttablaðinu fyrir litla sem enga umbun. Gunnar Smári hreykti sér af þessari lausn gagnvart fjárfestum. Þessi viðbótarútburður jók vinnuálagið verulega. Það kom iðulega fyrir að bæklingarnir, sem settir voru í dreifingu til viðbótar við Fréttablaðið, voru þyngri en blaðið sjálft.

Og ennfremur:

Þarna gerðist það að núverandi foringi sósíalista jók áþján blaðburðarbarna verulega og rýrði kjör þeirra um leið. Þá lét hann þau kenna á grimmd kapítalismans eins og hann birtist í kennitöluflakki og gjaldþrotum en þau áttu lítil sem engin réttindi gagnvart Ábyrgðasjóði launa sem oft þurfti að stíga inn vegna rekstrar tengdum Gunnari Smára. Ég man það vel að þegar fyrra rekstrarfélag Fréttablaðið fór í þrot mátti finna reiða foreldra víða í Þverholtinu, þar sem ég vann á þeim tíma, í leit að einhverjum ábyrgðamanni.

Hvar var Gunnar Smári þegar launafólk, börn, aldraðir og öryrkjar fengu ekki launin sín? Jú, lagður á flótta á vit nýrra ævintýra. Hann komst í sjóði verkalýðshreyfingarinnar og fær þar fjármagn til að reka flokk sósíalista.

Gunnar Smári bakar núna pönnukökur í matardálki netútgáfu Mogga og býst við að verða þingmaður á laugardag.

Hagfræðingur og faðir blaðburðabarns Fréttablaðsins frá tíma Gunnars Smára bar saman kjör þeirra sem báru út Mogga annars vegar og hins vegar Fréttablaðið. Kjör blaðbera Fréttablaðsins voru 25 prósent lakari.

Sólveig Anna í Eflingu myndi kalla þetta launaþjófnað - ef einhver annar en Gunnar Smári ætti í hlut.

 

 


mbl.is Gunnar Smári tekur alþýðupönnukökurnar upp á næsta stig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gunnar Smári, kapítalisti í sósíalistagæru

Gunnar Smári foringi sósíalista vildi einkavæða heilbrigðiskerfið fyrir nokkrum árum. Hann skrifaði grein, ,,Betri þjónusta fyrir lægra verð," um að heilbrigðiskerfið ætti að fara sömu leið og bankakerfið - í hendur auðmanna.

Eyjan rekur samhengi málsins. Þar segir: 

Fyrsta lína í stefnuskrá Sósíalistaflokks Gunnar Smára í heilbrigðismálum er nú: „Að á Íslandi verði gjaldfrjáls heilbrigðisþjónusta rekin af skattfé borgaranna.“ Önnur línan er: „Að unnið verði gegn allri markaðsvæðingu í heilbrigðisþjónustu og jafnvægi komið á þjónustuna miðað við þarfagreiningu.“

Gunnar Smári hefur þá sannfæringu sem hentar hverju sinni. Kapítalisti í gær, sósíalisti í dag.

Hvaða sannfæringu hefur Gunnar Smári á morgun?

 


Samfylking: sósíalista í ríkisstjórn

Sósíalista í ríkisstjórn, segir Þórunn Sveinbjarnardóttir, sem leiðir lista Samfylkingarinnar i Kraganum. Ekki sjens að við störfum með Sjálfstæðisflokknum, segir Helga Vala þingmaður Samfylkingar.

Þórunn vill ,,grípa til aðgerða." Og hverjir eru betur til þess fallnir en sósíalískir aðgerðasinnar.

Atkvæði greitt Samfylkingu er atkvæði með sósíalisma.


mbl.is Gætu ekki myndað þriggja flokka stjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er það ljótt, SOS á Grétu Thunberg

Eldgosið úr iðrum jarðar undir Fagradalsfjalli hefur þegar dælt upp magni koltvísýrings, CO2, sem jafngildir losun allrar bílaumferðar á Íslandi í tvö ár.

Eins og það sé ekki nóg kemur ógrynni af vetnisflúorkolefnum (HF) upp úr jörðinni við Grindavík. Álíka magn af vetnisflúorkolefnum streymir upp úr gosstöðvunum og af koltvísýringi, eða um tvær milljónir tonna af hvoru það sem af er gosi.

Samkvæmt Umhverfisstofnun eru vetnisflúorkolefni með margfaldan ,,hlýnunarmátt" koltvísýrings. Það má margfalda hlýnunarmáttinn með 124 og allt upp í 14800, segir á heimasíðu Umhverfisstofnunar.

Stórfelld aukning gróðurhúsalofttegunda á sex mánuðum ætti að skipta einhverju máli um loftslag jarðar ef eitthvað væri að marka kenningar um alheimsvá vegna yfirvofandi hamfarahlýnunar. En það mun enginn senda neyðarkall á Grétu Thunberg og Sameinuðu þjóðirnar vegna Grindavíkurelda.

Í fyrsta lagi vegna þess að náttúran sjálf er hér að verki og ekki hægt að nota eldvirknina í pólitískum tilgangi. Í öðru lagi sökum þess að kenningin um samhengi gróðurhúsalofttegunda og hitastigs jarðar er ekki byggð á vísindum heldur hugmyndafræði. 


mbl.is Hraunið nær nú yfir 4,8 ferkílómetra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kaupauki - Kristrún og Gunnar Smári

Bæði Kristrún Frosta­dótt­ir og Gunnar Smári Egilsson, frambjóðendur Samfylkingar og sósíalista í Reykjavík, fengu tugmilljónir í kaupauka í störfum sínum hjá banka og auðhring. Kristrún hjá Kviku banka og Gunnar Smári hjá Baugi og dótturfélögum.

Gunnar Smári seldi einbýlishús sitt í Skerjafirði fyrir 125 milljónir enda bjó sósíalistinn í verðlaunahúsi.

Vonandi fór Kristrún betur með kaupaukann sinn en Gunnar Smári. Baugsmaðurinn segist í viðtali við félaga sinn í útgáfubransanum ekki eiga bót fyrir boruna á sér. Þingfarakaup upp á 1,5 m.kr. á mánuði myndi snarlega bjarga málunum.

Auðmenn eru auðvitað best til þess fallnir að setja okkur hinum lög og reglur um hvernig skuli fara með fjármuni okkar. Því hvað er fé án hirðis?


mbl.is Ekki erfitt að verja kaupaukagreiðslur Kristrúnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við erum á leið í vinstri fátækt - forðum okkur

Fleiri er 200 smáfjárfestar, líklegast einstaklingar, seldu hlutafé sitt í morgun í kauphöllinni. 

Fólk unnvörpum forðar peningunum sínum frá væntanlegri vinstristjórn eftir kosningar.

Enn eru fimm dagar til kosninga.

Ætli það verði ekki komin örtröð af fólki að endurnýja vegabréfin fyrir helgi?

 


mbl.is Framsóknarflokkur í lykilstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðreisn fellur á dollara-prófinu

Bandaríski dollarinn er eina alþjóðamyntin sem stendur undir nafni. Ef Íslendingar kæmust að þeirri niðurstöðu að krónan sé ekki á vetur setjandi og að við ættum að taka upp, eða tengjast, öðru myntsvæði þá er dollarinn eina raunhæfa leiðin. 

Sama gildir um tungumálið. Ef Íslendingar kæmust að þeirri niðurstöðu að óhagkvæmt væri að halda úti sérstöku tungumáli þá væri eina vitið að taka upp ensku - en ekki dönsku, frönsku eða þýsku.

Dollara-prófið gengur út á að prófa hvort hagfræðileg rök séu að baki hugmyndum um að afnema íslensku krónuna, eða tengja hana annarri mynt, eða hvort annað hangi á spýtunni, t.d. innganga í ESB.

Viðreisn fellur á prófinu. Með því að boða tengingu krónu við evru er Viðreisn að læðupokast með íslenska hagsmuni inn í Evrópusambandið. Vidkun Quisling talaði um aría í Noregi þegar hann vildi ganga inn í Stór-Þýskaland. Viðreisn talar um evru á Íslandi til að innlima landið í Stór-Evrópu.


mbl.is Áætla að ráðstöfunartekjur heimilanna muni aukast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband