4-5 flokka vinstristjórn líklegust

Ef þjóðin kýs á laugardag samkvæmt skoðanakönnunum er líklegast að mynduð verði 4-5 flokka vinstristjórn, segir Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðiprófessor.

Á bakvið tjöldin standa nú yfir hjaðningavíg vinstrimanna sem keppast við vinsældir hjá sömu kjósendahópum. Þau innanbúðarátök halda áfram í væntanlegri ríkisstjórn vinstrimanna. Þeir sem eru komnir til vits og ára muna hvernig kaupin gerðust á eyrinni í vinsældakapphlaupi Alþýðuflokks og Alþýðubandalags á síðustu öld.

Til að kaupa sér vinsældir verður opinbert vald og ríkissjóður miskunnarlaust notaður til að hygla sérvöldum hópum vinstrimanna sem sitja um opinber gæði eins og hrægammar. Í orði er talað um almannahagsmuni en á borði gilda sérhagsmunir vinstrihópa hver með sína útgáfu af tilverunni.

Almenningur á enn kost að forða sér frá vinstri stórslysi. Með því að kjósa ekki samkvæmt skoðanakönnunum og verja atkvæði sínu skynsamlega á laugardaginn kemur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Gunnar Smári og allir hinir, ekki bara vesalings blaðburðarbörnin.

Hvaða fólk er þþað sem kýs þennan mann?

Halldór Jónsson, 22.9.2021 kl. 10:51

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Fólk sdem ekki einu sionni spyr hvaðan peningarnir fyrir 30.000 íbúðum(þrjótíuþúsund íbúðum) muni koma?

Hann ætlar bar að skattleggja stórkapítalið.

Stalín var umsvifamikill bankaræningi með byssu á sínum ungu dögum.Hann eiginlega skattlagði stórkapítalið.

Halldór Jónsson, 22.9.2021 kl. 10:54

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Veitu Páll, ég held að kjósandinn hugsi sig um aðeins  í kjörklefanum.

Halldór Jónsson, 22.9.2021 kl. 15:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband