Stjórnlagaþing til að fífla þjóðina

Herbragð Samfylkingar með stjórnlagaþingið heppnast fullkomlega. Álitsgjafar og fjölmiðlar eru í óða önn að ræða atburðinn eins og hann muni breyta lýðveldinu. Á meðan semur Samfylkingin um aðlögun Íslands að Evrópusambandinu. Eftir innlimun í ESB breytir stjórnlagaþing engu og heldur ekki ný stjórnarskrá því að Lissabonsáttmálinn verður grunnlöggjöf Íslands.

Hluti af aðlögun umsóknarþjóða er að starfsmannakvóta er úthlutað til viðkomandi þjóða. Samfylkingin mun taka þennan starfsmannakvóta fyrir sína elítu sem fær vellaunuð störf í Brussel á meðan fíflin á Íslandi sitja á stjórnlagaþingi.

Trúgirni fólks eru engin takmörk sett og Samfylkingarforystan veit það.


Ríkisstjórnin í verktöku hjá Brussel

Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur er komin í verktöku hjá Brussel að innlima Ísland í Evrópusambandið. Eins og þróuðu skrifræði sæmir er Evrópusambandið búið að skilgreina verkþætti og býður fé og ferðalög eftir því sem þurfa þykir til að innlimunin nái fram að ganga. Samkvæmt Evrópuvakinni er kristaltært hver ræður ferðinni

Í tölvupósti, sem Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu hefur sent frá segir:„...en leggja ber áherzlu á að það er framkvæmdastjórn Evrópusambandsins sem ákveður að loknu því samráði hvaða verkefni verða fyrir valinu.“

Innleiðing Íslands í Evrópusambandið kemur fyrst. Þegar við erum komin inn verður ,,ráðgefandi" þjóðaratkvæði þar sem þjóðin stendur frammi fyrir orðnum hlut. Umsókn Samfylkingarinnar hefur leitt okkur í veruleika eftir Franz Kafka.


Magma býður mútur, ráðherra þiggur

Forstjóri Magma heldur Íslendinga fífl og iðnaðarráðherra lýðveldisins er rökstuðningur fyrir áliti forstjórans Ross Beaty. Forstjórinn kaupir HS-Orku ólöglega með aflandskrónum og lánum frá gjaldþrota sveitarfélögum suður með sjó og fær í kaupbæti HS-Veitur sem saman eru gamla Hitaveita Suðurnesja og óskipt félag. Góssið fer hann með til Katrínar Júlíusdóttur býður henni forkaupsrétt. Kata gín við enda samfylkingarráðherra og sem slíkur vanur að gleypa auðmannabeitu.

Til að gera fléttuna enn eðjótískari fyrir Íslendinga er ráðgert að lífeyrissjóðir hósti upp milljörðum til að tryggja að Beaty og huldufélagar fái góðan hagnað af viðskiptunum.

 Ríkisstjórnin ber fulla ábyrgð á fábjánaleikritinu í kringum Magma. 


mbl.is Magma býður ríkinu forkaupsrétt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þrautavaralán til þjófa

Björgólfur Thor reynir að spinna sig frá ábyrgð af hruninu og starfrækir vefsíðu í þeim tilgangi. Einn spuninn fékk góðar undirtektir í Baugstíðindum. Tilbúningurinn gengur út á að Davíð Oddsson hafi komið í veg fyrir að Seðlabankinn tæki lán í útlöndum til að bjarga íslensku bönkunum frá falli. Ályktunin sem áheyrendur spunans eiga að draga er að þáverandi seðlabankastjóri beri ábyrgð á hruni bankanna með því að útvega ekki þrautavaralán frá útlöndum.

Baugstíðindi taka málið upp enda fellur tilbúningurinn við áróður Jóns Ásgeirs að Davíð Oddsson beri ábyrgð á flestu því sem illa hefur farið á Íslandi frá landnámi.

Flestir óbrjálaðir sjá þó í hendi sér að þrautavaralán til þjófa er sambærilegt við að nota bensín til að slökkva eld.


Hæglátur Svíi leggur evrurök til hvílu

Hæglátur sænskur hagfræðingur kvað evruumræðuna á Íslandi í kútinn með fyrirlestri í Háskóla Íslands síðdegis i dag. Jafnvel sannfærður aðildarsinni eins og Jón Baldvin Hannibalsson sagði umræðuna ekki lengur standa um krónuna eða evruna. Stefan de Vylder fór yfir stöðu evrunnar og myntbandalagsins, rökin fyrir upptöku og reynsluna og framtíðarhorfur.

Stutta útgáfan er þessi: Innbyggt ójafnvægi er á evrusvæðinu þar sem efnahagskerfin eru innbyrðis ólík en búa við sömu vextina. Hagbólur, t.d. eignabólur, og röskuð samkeppnisstaða hagkerfa leiðir til spennu á milli ríkjanna. Til viðbótar hafa meginreglur sem settar voru í upphafi um að bjarga ekki stórsyndurum frá gjaldþroti ekki verið virtar. Afleiðingin er almenn vantrú á að evruverkefnið gangi upp til lengri tíma.

Aðildarsinnar á Íslandi hafa beitt evrurökum fyrir vagn sinn með nokkrum árangri. Eftir fyrirlestur de Vylder var öllum viðstöddum ljóst að evran í stað krónu er dautt mál.


Arion er stórsyndari í afneitun

Arion banki vinnur skipulega gegn samfélaginu með því að leyfa hrunmönnum Íslands númer eitt, Baugsfeðgum, að stjóra Högum. Hryllileg frammistaða Arion banka bæði skaðar beint almannahagsmuni þar sem Hagar eru stórveldi í smásöluverslun, viðheldur útrásarspillingu með því að Hagar fjármagna 365-miðla sem stýra opinberri umræðu í þágu hagsmuna Baugsfeðga og grefur undan tiltrú almennings á bankakerfinu.

Yfirstjórn Arion til upplýsingar: Stórþjófar áttu og ráku íslenska bankakerfið fyrir hrun, eins og tíundað hefur verið í rannsóknaskýrslu alþingis. Einn djarftækasti bankeigandi var Jón Ásgeir sem setti Glitni á hausinn.

Arion banki er samsekur spillingunni með því að leyfa Baugsfeðgum að stjórna Högum. Bankinn á að gera hið eina rétta sem er að leysa Haga til sín, brjóta upp í smærri einingar og selja.


mbl.is Vísar ummælum Páls á bug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýtt sérfræðiálit: Við eigum ekki að borga Icesave

Norskur sérfræðingur á sviði Evrópuréttar hefur skrifað greinargerð um lögfræðileg álitamál í Icesave-deilu okkar við Breta og Hollendinga. Niðurstða Peter Örebech er skýr og ótvíræð; við eigum ekki að borga. Í samantekt skrifar Örebech

Thus the following is the result of this survey: Neither the government nor the people of Iceland should pay for the failing Icesave bank. The Landsbanki – Icesave CEO's responsibility is redoubtable. Depositors should critically assess bank leadership before trusting private funding to the bank. The bank deposit rules are published and notified. Persons seeking high profits are also seeking high risks.

Málið er klárt og kvitt. Ef ekki væri fyrir handvömm ríkisstjórnarinnar og löngun Samfylkingarinnar í Evrópusambandið væri Icesave komið út af borðinu.


mbl.is Ekki komin dagsetning á viðræður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðlögunin að ESB er andlýðræðisleg

Íslensk stjórnvöld hafa ekki umboð frá þjóðinni til að laga regluverk og stofnanir hér á landi að kröfum Evrópusambandsins. Aðlögunarferlið er andlýðræðislegt vegna þess að þjóðin mun standa frammi fyrir orðnum hlut þegar ferlinu er lokið. Ríkisstjórnin hefur lofað ,,ráðgefandi" þjóðaratkvæðagreiðslu í lok aðlögunar.

Æ betur kemur í ljós að þjóðin hefur verið blekkt til að halda að umsókn um aðild myndi leiða til óskuldbindandi viðræðna við Evrópusambandið. Svo er ekki enda býður Brussel aðeins upp á aðlögun en ekki samningaviðræður í venjulegum skilningi þess orðs.

Eini mögulegi mótleikurinn í stöðunni er að draga umsóknina tilbaka. Á alþingi liggur fyrir þingsályktunartillaga um að umsóknin skuli dregin tilbaka. Tillöguna á að samþykkja án tafar þegar þing kemur saman.


mbl.is Ný staða í ESB-málinu með „aðlögun“ í stað umsóknar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóhanna farsavæðir Magma-umræðuna

Heilabúið í forsætisráðherra og helstu aðstoðarmönnum hlýtur að vera lúið og úr sér gengið. Í stað þess að framfylgja yfirlýstri stefnu um að kaup Magma á HS-Orku skulu ganga tilbaka með sem minnstum tilkostnaði er búinn til farsi um hæfi nefndarfólks.

Hverjum er verið að þjóna með stanslausu rugli sem Samfylkingarkonan Unnur Kristjánsdóttir á upphafið að þegar hún kærði fjarskyldan mann sem hún grunaði að vera mótfallinn kaupum Magma? Unnur er formaður nefndar um erlenda fjárfestingu og hún vill að kaupin gangi fram. Unnur hlýtur sjálf að hafa verið vanhæf þegar hún tók ákvörðun að sænska skúffufyrirtækið mætti kaupa HS-Orku.

Ríkisstjórnin sagðist vera búin að móta sér stefnu í málinu, að kaupin gangi tilbaka. Verkefnið ætti að vera að framkvæmda yfirlýsta stefnu. Hæfi í almennum skilningi orðsins er aukaatriði í málinu.


mbl.is Hæfi Ólafs metið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sviss hafnar bæði ESB og EES

Sviss metur fullveldi sitt meira virði en baunadisk frá Evrópusambandinu og hafnar hvorttveggja aðild að EES og inngöngu í Evrópusambandið. Á meðan landráðastjórn Jóhönnu Sigurðardóttur þiggur stórfé frá Evrópusambandinu til að innlima Ísland staðfestir ríkisstjórn Sviss að hvorki vilji hún inni í Evrópska efnahagssvæðið og enn síður innlimun í væntanlegt stórríki Evrópu.

Ólíkt hafast þeir að afkomendur Einars Þveræings og Wilhelm Tell.


mbl.is Svisslendingar vilja ekki aðild að EES
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband