Mánudagur, 21. ágúst 2023
Ráðuneyti aðstoðar í byrlunarmáli Páls skipstjóra
Utanríkisráðuneytið aðstoðar lögreglu að fá upplýsingar um tölvupóstsamskipti eiginkonu Páls skipstjóra Steingrímssonar við blaðamenn. Skipstjóranum var byrlað 3. maí 2021, síma hans stolið og hann afritaður. Efni úr símanum birtist samtímis í Stundinni og Kjarnanum 21. maí og daga og vikur þar á eftir.
Samskipti blaðamanna við eiginkonu Páls hófust áður en hún byrlaði honum. Lögreglan er með skrá yfir símtöl sem fóru á milli en ekki innihald þeirra. Tölvupóstum sem fóru á milli konunnar og blaðamanna var eytt eftir að lögreglurannsókn hófst í kjölfar kæru Páls skipstjóra 14. maí 2021. Þar sem konan er með google-tölvupóst er afrit geymt hjá tölvurisanum.
,,Já, Google er með gmail-ið. Við höfum ekkert farið í að skanna síma hjá blaðamönnunum. En við höfum áhuga á upplýsingum frá síma konunnar," segir Eyþór Þorbergsson saksóknari. Treglega gekk að fá tölvupósta konunnar og leitaði lögreglan til utanríkisráðuneytisins að hlutast til um að tölvupóstar eiginkonunnar yrðu afhentir.
Framan af beindist rannsókn lögreglu að meðferð blaðamanna á einkagögnum skipstjórans. Eiginkona Páls játaði að hafa byrlað honum, stolið síma hans og afhent blaðamönnum. Eftir afritun var eiginkonunni falið að skila símanum til Páls sem lá meðvitundarlaus á gjörgæslu.
Fjórir blaðamenn voru boðaðir í yfirheyrslu í byrjun árs 2022. Þórður Snær Júlíusson, Arnar Þór Ingólfsson, Aðalsteinn Kjartansson allir á Heimildinni sem varð til úr Stundinni og Kjarnanum, og Þóra Arnórsdóttir hjá RÚV. Síðar fékk Ingi Freyr Vilhjálmsson á Heimildinni stöðu sakbornings, líkt og fjórmenningarnir.
Þegar leið rannsókn málsins komu fram afgerandi vísbendingar um að blaðamenn hafi verið í sambandi við eiginkonu skipstjórans áður en hún byrlaði og stal. Þóra Arnarósdóttir keypti í apríl 2021 Samsung-síma, samskonar og Páll notaði, og fékk á símann óskráð númer 680 2140, en sími Páls er með keimlíkt númer, eða 680-214X. Samsung-síminn sem Þóra keypti var notaður til að afrita síma skipstjórans og til samskipta, m.a. við eiginkonu hans.
Eftir að uppvíst varð um kaup Þóru á Samsung-símanum, í byrjun árs 2023, hætti hún á RÚV og fékk stöðu hjá Landsvirkjun. Aðrir starfsmenn á fréttastofu RÚV sem látið hafa af störfum í skugga lögreglurannsóknarinnar eru Rakel Þorbergsdóttir fréttastjóri og Helgi Seljan fréttamaður. Tilkynnt var um starfslok Rakelar haustið 2021. Helgi kvaddi RÚV í byrjun árs 2022.
Páll skipstjóri Steingrímsson var í sumar í viðtali hjá Frosta Logasyni. Hann boðaði að í kjölfar rannsóknar lögreglu, væntanlegrar ákæru og dómsmáls, muni hann höfða einkamál á hendur blaðamönnum. Í viðtalinu spyr Frosti Pál hvers vegna hann hafi ekki komið fram í fjölmiðlum til útskýra sína hlið á málinu. - Ég hef tvisvar boðist til að koma fram í RÚV, en verið hafnað í bæði skiptin, sagði skipstjórinn.
Þau rannsóknargögn sem komin eru í umferð til sakborninga og brotaþola ná einkum yfir tímabilið frá ágúst 2021. Þau sýna veruleg samskipti blaðamanna við fyrrum eiginkonu skipstjórans, sem glímir við andlega vanheilsu og hefur oftar en einu sinni verð öryggisvistuð á sjúkrastofnun. Gera má ráð fyrir að samskipti blaðamanna við konuna hafi byrjað í mars eða apríl 2021 en skipstjóranum var byrlað 3. maí 2021, sem fyrr segir.
Í viðtalinu við Frosta rekur Páll skipstjóri atburði í lok apríl og byrjun maí 2021 sem leiddu til byrlunar og gagnastuldar. Hann víkur að þeirri sérkennilegu staðreynd að Aðalsteinn Kjartansson fréttamaður RÚV hætti fyrir hádegi á Efstaleiti þann 30. apríl og er orðinn blaðamaður á Stundinni eftir hádegi - þrem dögum fyrir byrlun. Á Stundinni sá Aðalsteinn um að skrifa fréttir upp úr síma skipstjórans.
Vegna sumarleyfa og annarra anna hefur verið hægagangur í rannsókninni síðustu vikur. Nú þegar dregur að hausti tekur réttvísin til við að færa málið í endanlegan búning.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 20. ágúst 2023
Woke fellir Íslandsbanka og RÚV
Fyrir fjórum árum gerðist Íslandsbanki woke, sem er útlent orð yfir pólitískan rétttrúnað. Edda Hermannsdóttir, markaðs- og samskiptastjóri Íslandsbanka, útskýrði rétttrúnaðarstefnu bankans í grein á Vísi. Bankinn ætlaði framvegis að berjast gegn koltvísýringi í andrúmslofti, plasti og feðraveldinu í fjölmiðlum.
Við gerum þetta fyrir börnin og framtíðina, skrifaði samskiptastjóri Íslandsbanka.
Fjórum árum síðar er Íslandsbanki uppvís að mestri spillingu í sögu fjármálastofna hér á landi, sé mælikvarðinn stjórnvaldssektir.
Heilindi og pólitískur rétttrúnaður eru andstæður. Stofnun eða fyrirtæki sem tekur upp pólitískan rétttrúnað segir skilið við grunnstarfsemi sína en gefur sig á vald hugmyndafræði þar sem tilgangurinn helgar meðalið.
Viðkvæðið verður: við erum að bjarga heiminum og höfum þar með heimild til að brjóta lög og reglur.
Í umfjöllun um stefnuyfirlýsingu Eddu samskiptastjóra fyrir fjórum árum var RÚV tekið sem fyrirmynd um woke-fræði í framkvæmd.
RÚV þverbrýtur reglur og viðmið um fréttaflutning til að bjarga heiminum. Fréttamenn RÚV eru sakborningar í lögreglurannsókn á byrlun- og gagnastuldi. Pólitískur rétttrúnaður réttlætir að andlega veikum einstaklingum er misþyrmt af fréttamönnum RÚV, sem þjóna hugmyndarfræði þar sem rangt verður rétt.
VR og ASÍ hafa sagt upp viðskiptum við Íslandsbanka. Þjóðin mun segja upp viðskiptum við RÚV í vetur, - þegar lögreglurannsókn afhjúpar spillingu og lögbrot á Glæpaleiti.
![]() |
ASÍ hættir í viðskiptum við Íslandsbanka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Laugardagur, 19. ágúst 2023
Umboðslaus biskup félagi No Borders
Félagið Engin landamæri, No Borders, vill að hver sem er getið komið frá útlöndum og fengið frítt fæði og uppihald á kostnað íslenskra skattgreiðenda. Biskup Íslands er genginn til liðs við Engin landamæri.
Fer vel á því. Biskup Íslands er umboðslaus en lét undirmann sinn kvitta upp á ráðningarsamning. Trú, von og sjálftekt ríkisframlaga er Agnesarboðskapur til heimsbyggðarinnar.
Frá útlöndum munu þyrpast smælingjar á íslenska ríkisjötu í boði Agnesar biskups. Ferðaskrifstofan í Venesúela opnar útibú í öðrum ríkjum Suður-Ameríku, fyrst á Kúbu. Öreigasósíalista þyrstir í íslenska velferð.
Liðsmenn spámannsins heimsóttu Frón frá Norður-Afríku fyrir hartnær 400 árum að sækja sér verðmæti. Í boði biskups koma þeir nú á Saga Class. Gistingin er þegar til reiðu, í Hvalfirði. Meira þarf til. Á Ræningjatanga í Vestmannaeyjum mætti reisa viðeigandi húsnæði með útsýni til suðurs. Nafnið er þegar komið, Júlíborg, til að minnast heimsóknarinnar 16. júlí 1627.
Örlæti Agnesar á annarra fé og velferð verður ekki kynnt á fjöldasamkomu, samkvæmt fréttatilkynningu frá biskupstofu No Borders.
Fundurinn er ekki opinn, hann er ætlaður þeim sem að honum standa, fjölmiðlum og ráðherrum viðeigandi málaflokka.
Skýtur hér skökku við. Hví má þjóðin ekki samfagna Agnesarboðskap? Skjólstæðingar Tryggingastofunnar ríkisins myndu ábyggilega flykkjast á samkomuna. Þeir vita manna best að af nógu er að taka þegar kemur að framlögum til bágstaddra og vildu glaðir gefa sitt til að frelsa heimsbyggðina frá ,,óöryggi og skorti á mannlegri reisn."
Agnesi án landamæra fer eins og hælisþingmönnum. Öryggi þeirra og reisn helst í hendur við aðgang að vasa náungans.
![]() |
Öryggi og mannleg reisn í hættu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 08:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 18. ágúst 2023
Woke, íslam og stóri bróðir gegn tjáningarfrelsi
Réttur einstaklinga til frjálsrar tjáningar á vesturlöndum fékkst eftir harðvítuga baráttu við ríkisvald einveldis. Vegferð vesturlanda frá einveldi til lýðræðis hefði ekki verið farin án frjálsra orðaskipta.
Blikur eru á lofti. Frelsi manna til að tjá hug sinn er undir ágjöf innan vesturlanda, utan þeirra og frá þeim sem síst skyldi; lýðræðislega kjörnum stjórnvöldum.
Vestræna woke hugmyndafræðin, oft kölluð pólitískur rétttrúnaður, segir það hatursorðræðu ef andmælt er firrum eins og að hægt sé að fæðast í röngum líkama, að kynin séu fleiri en tvö og hægt sé að vera karl fyrir hádegi en kona síðdegis án þess að annað komi til en hugdetta. Trúarkredda woke er að ranghugmyndir um lífið og tilveruna eigi meiri tilverurétt en orðræða um einföld og augljós sannindi. Kreddan er orðin það viðtekin að fólk fer í felur með þekkingu sína og sannfæringu af ótta við einelti á samfélagsmiðlum.
Í trúarmenningu íslam er tjáningarfrelsið ekki hátt skrifað. Múslímar halda í hugmyndina um guðlast sem vestræn kristni varpaði fyrir róða. Í viðtengdri frétt er haft eftir danska utanríkisráðherranum að það sé ,,ekki í lagi að Danmörk fengi á sig það orðspor að Kóranbrennur væru þar stundaðar í boði ríkisins."
Sögulega varð tjáningarfrelsið ekki að mannréttindum fyrir tilstilli ríkisvaldsins heldur í krafti baráttu einstaklinga og félagasamtaka gegn alræði ríkisvaldsins. Ráðherra sem talar um frjálst orð ,,í boði ríkisins" snýr hlutunum á hvolf.
Sjónarmið danska ráðherrans varpa heldur nöturlegu ljósi á stöðu frjálsrar orðræðu. Látið er eins og stóri bróðir, ríkisvaldið, hafi í hendi sér að kippa að sér hendinni, verja ekki rétt manna að tjá hug sinn, ef það valdi óþægindum, eða, guð hjálpi okkur, móðgi einhvern.
Engin ástæða er til að lofa bókabrennur, hvort heldur á helgiritum eða öðrum bókmenntum. En ósmekklega tjáningu verður að verja til að sú boðlega fái að lifa. Annars verður frjáls orðræða nafnið tómt, háð leyfisveitingu hins opinbera líkt og á tíma einveldis.
Lars Løkke Rasmussen utanríkisráðherra Dana gerir víðreist í leit að rökum gegn málfrelsi:
Sagði hann mikilvægt að stöðva brennur trúarrita, sérstaklega í ljósi stríðsins í Úkraínu sem sýni mikilvægi þess að eiga sterka bandamenn víðs vegar um heim.
Danska ríkisvaldið, líkt og það íslenska, styður stjórnvöld í Úkraínu. Úr þeirri stjórnarstefnu eru smíðuð rök sem banna fólki að brenna bækur af ótta við að móðga múslíma.
Líkt og aðrir stjórnmálamenn stendur Lars Lökke á berangri umræðunnar og leitar sér að haldreipum. Dagskrárvald umræðunnar er að stórum hluta komið í hendur öfgaafla sem gefa lítið fyrir undirstöðu allra mannréttinda, sem er málfrelsið, en þess meira fyrir réttinn til að hneykslast.
Byltingin étur börnin sín er viðkvæði úr frönsku stjórnlagabyltingunni. Mannréttindi, sem verða að móðgunarréttindum, éta undan sér.
![]() |
Íhuga bann við Kóranbrennum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 07:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 17. ágúst 2023
Úkraína fái Nató-aðild, Rússar landvinninga
Starfsmannastjóri Stoltenbergs framkvæmdastjóra Nató, Stian Jenssen, viðraði í norskum fjölmiðli, Verdens Gang, þá hugmynd að ljúka Úkraínustríðinu með eftirgjöf á úkraínsku landi gegn Nató-aðild þess hluta Úkraínu er eftir verður.
Frétt Verdens gang fór eins og eldur í sinu um vestræna fjölmiðlaheiminn. Úkraínumenn ná ekki upp í nef sér af hneykslun; þýskur herforingi botnar hvorki upp né niður í starfsmannastjóra Stoltenberg. Kannski er verið að kanna undirtektir? Mögulega að veita innsýn í stöðumatið í Brussel.
Hugmyndin er komin til umræðu og hverfur ekki svo glatt þaðan í bráð.
Christoph Wanner fréttamaður Die Welt í Moskvu segir rússneska ráðamenn taka hugmyndina mátulega hátíðlega. Hann hefur eftir Medvedev, fyrrum forseta Rússlands, að Úkraínumenn verði að flytja höfuðborg sína frá Kænugarði vestur til Lviv, sem einu sinni hét Lemberg - en spyrja í leiðinni Pólverja hvort það sé við hæfi. Þar vísar Medvedev til ágirndar Pólverja á úkraínsku landi. Lemberg var pólsk borg á millistríðsárum liðinnar aldar.
Réttlæting Rússa á innrásinni fyrir hálfu öðru ári var yfirvofandi Nató-aðild Úkraínu sem myndi ógna öryggishagsmunum Rússlands. Einnig var á dagskrá að verja rétt rússneskumælandi minnihluta í Úkraínu. Nú þegar hafa Rússar lagt undir sig Suður- og Austur-Úkraínu. Gagnsókn Úkraínu, sem hófst 4. júní, breytir lítt víglinunni. Frétt í Newsweek hermir að klofningur sé í ríkisstjórn Úkraínu um hvort skuli halda áfram gagnsókninni eða viðurkenna staðreyndir vígvallarins og þyrma mannslífum.
Samkvæmt talningu BBC hafa Rússar að lágmarki misst 25 þúsund hermenn á vígvellinum. BBC telur ekki vopndauða Úkraínumenn en tölur sveiflast á bilinu 150 til 250 þúsund. Rússar eru 4-5 sinnum fleiri en Úkraínumenn. Mannþurrð sverfur fyrr að Garðaríki en Bjarmalandi.
Hugmynd starfsmannastjóra framkvæmdastjóra Nató er til marks um að vestrinu sé farið að lengja eftir stríðslokum. Nató telur möguleika Úkraínu takmarkaða að sækja land í greipar Rússa.
Öllum stríðum lýkur með friði. Flestum vonum seinna.
![]() |
Rússland stefnir í efnahagsöngþveiti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 16. ágúst 2023
Þingmenn gegn eigin þjóð
Þjóðríki stenst ekki án landamæra. Í krafti landamæra eru sett lög sem gilda um þegna þjóðríkisins og þá sem sækja það heim. Í lýðræðisríkjum fara þingmenn í umboði þjóðarinnar með löggjafavaldið. Siðferðisleg og pólitísk ábyrgð þingmanna gagnvart löggjöfinni ætti öllum að vera augljós.
Þingmaður sem hvetur til lögbrota er kominn í stríð þjóðina sem veitir þingmanninum umboð.
Nokkrir þingmenn á alþingi Íslendinga eru ósáttir við íslensk lög um hvernig skuli farið með hælisleitendur sem synjað er um vist á Íslandi að undangenginni málsmeðferð.
Í greinargerð dómsmálaráðuneytisins segir
Þeir sem ekki hverfa af landi brott þegar endanleg synjun liggur fyrir og sýna ekki samstarfsvilja við yfirvöld, teljast vera hér í ólögmætri dvöl.
Hvað gengur þeim þingmönnum til sem koma fram í fjölmiðlum og hvetja til að lög séu höfð að vettugi? Ef þeim þykir sjálfsagt að brjóta lög um útlendinga er ekki jafn sjálfsagt að brjóta önnur lög sem einhverjum þykja óhentug?
Þingmenn sem opinberlega hvetja til lögbrota eiga ekki heima á alþingi Íslendinga.
![]() |
Segir úrræðið ekkert annað en fangabúðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Þriðjudagur, 15. ágúst 2023
Hælisþingmenn
Þrír lögfræðingar, tveir þingmenn og einn varaþingmaður, hafa þegið laun sem málsvarar hælisleitenda. Lögfræðingarnir þrír eru Helga Vala Helgadóttir þingmaður samfylkingar, Arndís Anna K. Gunnarsdóttir þingmaður Pírata og Magnús D. Norðdahl, varaþingmaður Pírata.
Þingmennirnir tveir og varaþingmaðurinn líta á það sem hlutverki sitt að níða skóinn af íslensku samfélagi þegar niðurstaða umsóknar skjólstæðinga þeirra um hæli á Íslandi er hafnað. Arnís Anna gengur raunar skrefi lengra og úthlutar skjólstæðingum sínum íslenskan ríkisborgararétt.
Aldrei hafa þingmennirnir, eða varaþingmaðurinn, talað máli íslenskra skattgreiðenda sem horfa upp á misnotkun á fyrirkomulagi sem ætlað er ofsóttum en nýtt af fólki í leit að fríu fæði og uppihaldi.
Falskar umsóknir um hælisvist bita á þeim sem sannanlega þurfa hæli. Hælisþingmönnum stendur á sama. Þeir maka krókinn á fölskum forsendum. Þannig starfar hælisiðnaðurinn.
![]() |
Fyrirséð að hælisleitendur færu á göturnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 14. ágúst 2023
Vestræn góðmennska fóstrar spillingu
Vesturlönd eiga að sýna styrk sinni og yfirburði á alþjóðavettvangi og skapa útlönd í sinni mynd; velmegun, mannréttindi og pólitískan stöðugleika.
Á þessa leið skrifar Janet Daley dálkahöfundur Telegraph. Daley er borgaralegur hægrimaður og öfgalaus, gæti verið kjósandi Sjálfstæðisflokksins ætti hún kosningarétt á Fróni.
Sjónarmið Daley eru án efa þau sömu og margra velviljaðra og hófsamra hægri- og vinstrimanna sem vilja gjarnan leysa stjórnkerfisvanda þeirra ríkja sem ekki teljast vestræn.
Uppskriftin er að taka höndum saman við hófsöm umbótaöfl í framandi ríkjum og hjálpa þeim efnahagslega og hernaðarlega að ná tökum á stjórnkerfi ríkja sinna. Eftir stund, fáein ár eða einn til tvo áratugi, komast heimamenn upp á bragðið og búa sér til vestrænt samfélag. Þar með er ekki lengur neitt ves með flóttamenn. Stór bónus þykir að almennt gildir að vestræn lýðræðisríki efna ekki til styrjalda við nágranna.
Í viðtengdri frétt segir af spillingu í Úkraínu. Þessi tiltekna frétt segir af stórfelldri sölu á undanþágum frá herþjónustu. Yfirmenn herskráningar í öllum héruðum Úkraínu urðu moldríkir á því að selja mönnum undanþágu frá herskyldu. En bíðum við, okkur á vesturlöndum er sagt að Úkraínumenn upp til hópa vilji fórna lífi og limum til að landið fái að vaxa og dafna sem vestrænt lýðræðisþjóðfélag? En svo kaupa menn sig unnvörpum frá herskyldu.
Úkraína er gerspillt, var það löngu fyrir stríðið. Sama gilti í Suður-Víetnam, Írak og Afganistan þar sem störfuðu í lengri eða skemmri tíma vestrænar leppstjórnir. Alls staðar þar sem vestræn góðmennska kemur færandi hendi, hergögn og fjármagn, eru áköfustu viðtakendur þeir spilltustu. Heimamenn ýmist láta sér fátt um finnast eða snúast gegn spilltum valdhöfum og vestrænum bakhjörlum.
Hvers vegna verða þeir spilltustu ávallt helstu bandamenn vestrænu góðmennskunnar? Gefur auga leið. Vestræna góðmennskan vill heyra blekkinguna um að framandi menning geti ekki beðið eftir að verða vestrænar í siðum, háttum og lífskjörum. Þeir spilltu fóðra blekkinguna og verða skjólstæðingar vestursins og auðgast í leiðinni sjálfir.
Daley og sálufélagar taka ekki með í reikninginn að almennt kjósa menn stjórnvald er sprettur úr heimaakri, ekki innflutt góss. Í hverju samfélagi takast á ólík öfl sem verða að finna málamiðlun til að lifa af. Fái samfélög frið til gera upp sín mál kemst á stjórnvald sem hæfir þeim. Ef óvandaðir fá völdin verður stjórnarfarið til samræmis.
Oft verða blóðug átök á meðan þjóðir finna fjölina sína. En hvernig varð frjálsa vestrið til? Tvær heimsstyrjaldir takk fyrir, með helför og atómsprengjur í kaupbæti.
Vestrið á aðeins tvo möguleika á alþjóðavísu. Í fyrsta lagi að koma á vestrænum friði með valdboði og hernaði, líkt og Rómverjar gerðu aldirnar báðu megin við burð Krists. Í öðru lagi að leyfa þjóðríkjum heims að finna taktinn upp á eigin spýtur, reyna að leggja gott til en sættast á að stundum kemur það fyrir lítið og óöldin heldur áfram. Þá er hlutverk vestursins að takmarka skaðann, sjá til þess að innanlandsófriður í einu ríki valdi sem minnstum skaða í nærsveitum.
Í vestrinu er æ minni löngun til hernaðaríhlutunar og ríkisstjórnarskipta í fjarlægum löndum. Það þykir endurtekning á nýlendustefnu frá 19. öld er gaf ekki góða raun. Seinni kosturinn er raunhæfur, halda að sér höndum og leyfa íbúum heimsbyggðarinnar að bera heimafengna bagga. Þeir eru hollastir.
Hvað Úkraínu varðar sérstaklega ætti vestrið að senda þau skilaboð til Selenskí í Kænugarði að láta af blóðfórnum og semja við Pútín.
![]() |
Sagði upp fjölda manns sem sakað er um spillingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 13. ágúst 2023
Lunkinn sölumaður, Jón
Jón Ólafsson hefur selt ónafngreindum útlendingum stóran hlut í vatnsfyrirtækinu Icelandic Water Holdings, segir í viðtengdri frétt, og ætlar að byggja ,,nokkrar verksmiðjur".
Fyrir 12 árum var í fréttum að einn stærsti drykkjarframleiðandi á heimsvísu, Anheuser-Busch InBev, ætti fimmtungshlut í fyrirtæki Jóns og stórbankinn JP Morgan væri líka á hluthafalista.
Núna er gefið til kynna ,,samkvæmt heimildum" að Kínverjinn Jack Ma stofnandi Alibaba sé meðal nýrra hluthafa.
Jón selur jafnt og þétt stóra hluti í fyrirtækinu en alltaf er það hann sjálfur sem er aðaleigandinn.
Fréttir um sölu hlutafjár eru sölumennska sinnar tegundar. Með mörgum fréttum er búinn til trúverðugleiki sem hægt er að selja fjármálastofunum.
![]() |
Jón selur erlendum fjárfestum vatnið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 12. ágúst 2023
Hinsegin ritskoðun
Samtökin 22 halda málþing í dag um málefni samkynhneigðra. Málþingið átti að vera í sal Þjóðminjasafnsins í miðborginni. Eftir herferð með tölvupóstum og í samfélagsmiðlum sá Þjóðminjasafnið sér ekki fært að hýsa málþingið.
Eldur Deville skipuleggjandi málþingsins setti færslu á Facebook í fyrradag:
Hver á fundarsal fyrir 100 manns á laugardag milli klukkan. 10.30-17.30 með léttum veitingum, því mig vantar hann núna í miðborg Reykjavíkur. KOSTAÐUR skiptir ekki miklu því Þjóðminjasafnið greiðir!
Þá ályktun má draga að Þjóðminjasafnið hafi látið herskátt hinseginfólk kúga sig, lokað á Samtökin 22 en keypt sér frið með því að borga reikninginn fyrir nýjan fundarstað.
Fjölmiðlar upplýsa almenning ekki um hvað gerðist á bakvið tjöldin. Það má ekki fréttast að á bakvið gleðina er krepptur hnefi, harðdræg ritskoðun og útilokun sjónarmiða sem falla ekki í kramið hjá ráðandi öflum hinseginmenningarinnar.
Ritskoðun og útilokun er þekkt aðferð til að þagga niður önnur sjónarmið í hinseginmálum. Rithöfundinum J.K. Rawling, höfundi Harry Potter bókanna, varð það á að segja kyn skipta máli og karl gæti ekki orðið kona með yfirlýsingu. Herferð til að útiloka Rawling mistókst. Nú er reynt að beita þöggun. Stallsystir Rawling, Julie Bindel, segir ofstækið sækja í sig veðrið.
Ríkjandi kenningar í hinseginfræðum eru m.a.
hægt er fæðast í röngum líkama
kyn er hugarfar, ekki hlutlæg staðreynd
með yfirlýsingu er hægt að skipa um kyn, karl orðið kona, kona karl
Allar kenningarnar eru efnislega og sannanlega rangar. Enda þola þær ekki umræðu.
Að vera hinsegin eru mannréttindi. Hver og einn má hafa hverja þá sannfæringu sem vill, kallast hugsanafrelsi. Um hvaða sannfæringu sem vera skal má stofna samtök, kallast félagafrelsi. En það má efast um sannfæringu annarra og spyrja um rök. Kallast tjáningarfrelsi og er forsenda annarra mannaréttinda.
Án tjáningarfrelsis væri ekkert samkomufrelsi, engin gleðiganga. Þeir sem skilgreina sig sem minnihlutahóp, og telja sig ekki njóta sannmælis, ættu öðrum fremur að standa gegn tilburðum til ritskoðunar, útilokunar og þöggunar.
Gleði með krepptum hnefa sýnir valdhroka, ekki kærleika.
![]() |
Myndskeið: Fjölbreytileikanum fagnað í miðbænum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)