Við eigum ekki að fyrirgefa

Við eigum ekki að fyrirgefa útrásarauðmönnum og meðreiðarsveinum þeirra að hafa troðið orðspor þjóðarinnar í svaðið og komið okkur á kaldan klaka efnahagslega. Við eigum að fyrirlíta og fordæma hrokagikkina sem lugu að þjóðinni í áravís og stálu öllu steini léttara.

Fyrirgefning getur aldrei verið á dagskrá gagnvart auðmönnum sem kannast ekki við sekt sína og iðrast ekki hætis hót. Nöfn þessara einstaklinga eigum við að leggja á minnið og hafa andstyggð á svo lengi sem þeir lifa.

 


Ónýtt atvinnulíf vill í ESB

Íslenskt atvinnulíf er ýmist í eigu ríkisins, gjaldþrota eða í nauðungarsamningum. Talsmenn þessa atvinnulífs eru ónýta liðið sem olli hruninu. Núna koma þessir talsmenn ásamt hlaupatíkum í verkalýðshreyfingunni og krefjast inngöngu Íslands í Evrópusambandið.

Grein ónýta liðsins í Morgunblaðinu í dag er ekki um það hvernig atvinnulífið sveik þjóðina á útrásarárunum ásamt meðvirkri verkalýðshreyfingu sem leyfði að lífeyrissjóðir væru notaðir í braskfléttur auðmanna. Nei, ónýta liðið er ekki að biðja þjóðina afsökunar á framferði sínu. Ónýta liðið krefst þess að þegar búið er að koma þjóðinni á efnahagslega og siðferðislega vonarvöl þá eigi líka að fórna fullveldinu.

Það er ágætt að ónýta liðið skrifi sem flestar greinar um inngöngu í Evrópusambandið. Það auglýsir augljósa staðreynd: Loddarar og hlaupatíkur þeirra vilja Ísland í ESB.


Trú, von og græðgi

Fjármálaelítan sem hér réð ríkjum í áratug átti sér einfalda sannfæringu sem gekk út á græðgi í nafni almannahags. Græðgi átti samkvæmt kenningunni að gera alla betur setta en áður. Þegar rennur upp fyrir alþjóð að græðgin hélst í hendur við ábyrgðarleysi, lygi og spillingu verður spurningin áleitin hvernig næsta útgáfa lífsspeki forréttindaliðsins mun hljóma.
mbl.is 22 fengu 23,5 milljarða að láni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þriðja ríkisstjórn eftir hrun

Fyrsta ríkisstjórn eftir hrun var mörkuð vangetu og meðvirkni með útrásinni, stjórn Geirs H. Haarde. Önnur stjórnin, sem nú situr (við teljum starfsstjórnina ekki með), er reist á svikum og grillupólitík og mun falla með Icesave-samningnum.

Ný stjórn verður að hafa trú á landi og þjóð, sem þýðir að Samfylkingin getur ekki átt aðild að henni.

Þriðja ríkisstjórnin eftir hrun fær það verkefni að búa til nýtt íslenskt atvinnulíf. Það þarf að brjóta upp allar stórar einingar í atvinnurekstri og selja í smáum skömmtum. Setja þarf mun strangari lög um samruna fyrirtækja og víðtækar heimildir til að brjóta upp eignarhaldsfélög.

Sparisjóðurinn Byr á að fara í gjaldþrot, geti eigendur ekki aflað hlutafjár á markaði. Ríkisvaldið á að reyna að fá útlendinga til að taka einn eða tvo ríkisbankana upp í skuldir.

Verkefnin eru næg fyrir nýja ríkisstjórn. Við bíðum bara eftir að sitjandi stjórn fatti að dagar hennar eru taldir.

 


Leiðari Economist, Icesave og ábyrgðin

Í nýjasta hefti vikritsins Economist er í leiðara fjallað um breytingar á reglum fjármálastarfsemi í Evrópu. Þar eru íslensku bankarnir nefndir sem dæmi um misheppnað regluverk Evrópusambandsins. Hér er tilvitnun í leiðarann

Here the EU has identified a genuine problem-the system for supervising cross-border banks. But the result is a fudge. The failure of the Icelandic banks in the autumn highlighted the dangers to host countries of relying on the quality of foreign banks' home regulators  

Þegar svona er tekið til orða í útgáfu á borð við Economist liggur morgunljóst fyrir að alþjóðasamfélagið fellst á þau sjónarmið andstæðinga Icesave-samningsins að regluverkið er ónýtt. Af því leiðir að Íslendingar eiga ekki að bera einir ábyrgðina á klúðrinu.

Hér er leiðarinn í heild.


Ögmundur og táknmál stjórnmálanna

Ögmundur Jónasson skilur táknmál stjórnmálanna og er tilbúinn að greiða atkvæði með sannfæringu sinni og gegn Icesave-samningnum. Í Icesave er tekist á um hvort við sem þjóð eigum að fórna eins og einni ríkisstjórn eða skrifa upp á 800 milljarða króna skuld möglunarlaust.

Ein ríkisstjórn verður aldrei 800 milljarða króna virði. Engu breytir hvaða ríkisstjórn ætti í hlut. Ríkisstjórnin verður að falla á sverðið, það er skylda hennar.

 

 


mbl.is Ögmundur ekki ákveðinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Icesave, ESB og fallin ríkisstjórn

Almenningur sér samhengi á milli nauðungarsamninga við Breta og Hollendinga og umsóknar um aðild að Evrópusambandinu. Þjóðin refsar þeim flokkum sem standa að aumingjapólitík og vill nýtt fólk í brúnna.

Talsmenn Framsóknaflokksins, Sigmundur, Vigdís og Eygló tala djarfmannlega og er umbunað. Almenningur vill að stjórnmálamenn standi í lappirnar og nái fram réttlátum niðurstöðum í samningum við aðrar þjóðir.

Ríkisstjórnin er komin á flótta og verður á undanhaldi þar sem eftir lifir af starfsdögum hennar.

 

 


mbl.is Fylgi stjórnarflokkanna minnkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnin er ekki 800 milljarða kr. virði

Ríkisstjórnin stendur og fellur með Icesave-samningnum. Forystumenn stjórnarinnar, Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon, verða að fá samninginn í gegn til að tryggja sér pólitískt framhaldslíf.

Það nákvæmlega ekkert sem þessi ríkisstjórn stendur fyrir sem réttlætir 800 milljarða króna verðmiða. Stjórnarsáttmálinn er reistur á svikum Vinstri grænna við kjósendur sína þar sem hlaupið var eftir grillupólitík Samfylkingarinnar um að Evrópusambandsaðild væri töfralausn á þeim vanda sem blasir við þjóðinni.

Umsókn um aðild að Evrópusambandinu gerir illt verra. Með því að senda inn umsókn værum við að gefast upp á vandanum. Ríkisstjórnin lítilsvirðir sjálfstæðisbaráttu síðustu tvöhundruð ára og kastar fyrir róða möguleikum óborinna kynslóða Íslendinga til að fara með forræði sinna mála.

Þjóðin verðskuldar ekki þessa ríkisstjórn uppgjafar og svika. Rómantískt tuttugustualdar rugl um vinstri stjórn er orðin að martröð á þeirri tuttugustuogfyrstu. Orðspor þeirra stjórnmálamanna sem sitja þessa stjórn og hanga utan á henni er á hraðri leið í ræsið. Hvernig sem allt veltur með Icesave verða kosningar fyrr en varir. Svikulir stjórnmálamenn fá makleg málagjöld um síðir.

Ef nokkur döngun er í óbreyttum alþingismönnum fella þeir þennan samning.


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband