Miðvikudagur, 10. júní 2009
Gunnar er uppvís að spillingu og á að víkja
Gunnar I. Birgisson stundaði viðskipti við dóttur sína sem stjórnarmaður í Lánasjóði íslenskra námsmanna og fyrirsvarsmaður Kópavogsbæjar. Í báðum tilvikum lét hann almannafé í hendur dóttur sinnar og fór með opinbera fjármuni eins og þeir væru fjölskyldumál.
Sjálfstæðisflokkurinn ber ábyrgð á trúnaðarstörfum Gunnars og þeirra er skömmin ef það verða framsóknarmenn sem setja spilltum sjálfstæðismanni stólinn fyrir dyrnar.
![]() |
Vilja slíta samstarfi í Kópavogi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 10. júní 2009
Lettland hjálenda ESB
Lettland gæti fengið tilsjónarmann skipaðan af Evrópusambandinu fari svo að Brusselvaldið ákveði að bjarga landinu frá gjaldþroti. Hinn kosturinn er að Lettar fái að leyfa gengi latsins að fljóta, þ.e. lækka um tugi prósenta, en ESB hefur verið tregt til að veita leyfið vegna fordæmisins. Gjaldmiðill Letta er tengdur evru og Lettar eru dæmi um smáþjóð í Evrópusambandinu sem er undir járnhæl stórþjóðanna.
Leiðari í Times í dag dregur upp dökka mynd af framtíðarhorfum Lettlands.
Íslendingar hafa fengið tilsjónarmenn skipaða frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Munurinn á okkur og Lettum er að útlendir tilsjónarmenn Íslands munu hverfa til síns heima eftir fáein misseri en þeir tilsjónarmenn sem verða sendir frá Brussel til Lettlands verða þar um langa framtíð.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Miðvikudagur, 10. júní 2009
Mið-Evrópulexía
Samband Þjóðverja og Pólverja getur aldrei orðið sambærilegt tengslum Frakka og Þjóðverja. Þýskir líta upp til franskrar menningar og lífsstíls en finnst flest pólskt lítilsiglt. Á þessa leið skrifar Adam Daniel Rotfeld fyrrum utanríkisráðherra Póllands í Spiegel (nr. 23/2009). Tilefnið er grein í þýska vikuritinu sem birtist tveim vikum áður þar sem fjallað var um pólska samverkamenn nasista í seinni heimsstyrjöld.
Spiegel-greinin vakti úlfúð í Póllandi og Rotfeld freistar þess að útskýra fyrir þýskum lesendum að sagan hefur aðra merkingu í heimalandi hans en Þýskalandi. Pólverjar fóðra stoltið með minningunni um uppreisnina í Varsjá 1944 (sem sumir rugla við uppreisn gyðinga í gettói sömu borgar árinu áður, dæsir Rotfeld) og að engin pólsk kvislingastjórn hafi unnið skítverkin fyrir nasista líkt og þekktist í öðrum hernumdum löndum.
Þegar þýskt tímarit gerir því skóna að Pólverjar hafi verið samvinnuþýðir nasistum kemur það við kaunin, segir Rotfeld. Hann dregur þó ekki fjöður yfir grimmdarverk sem Pólverjar sannanlega tóku þátt í og beindust að varnarlausum gyðingum. Þekktasta frásögnin af slíkum ódæðum er bókin Nágrannar eftir pólska félagsfræðinginn Jan Tomasz Gross um morðóða Pólverja í smábænum Jedwabne.
Skilaboð Rotfeld, sem er gyðingur og fékk lífsbjörg í klaustri á hernámsárunum, til þýskra lesenda er að himinn og haf skilur að þýskan og pólskan söguskilning. Óhemjuverk sé fyrir höndum að finna leið til að ná þýsk-pólsku samtali um nýliðna sögu.
Frá bæjardyrum Íslendingsins er málið jafn áhugavert og það er framandi. Verkefnið sem Rotfeld lýsir er lifandi þáttur í samstarfi ríkjanna í Evrópusambandinu og getur aldrei orðið að brýnu viðfangsefni Íslendinga.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 9. júní 2009
Sviplausir samfylkingarsauðir
![]() |
Valtur meirihluti í Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Þriðjudagur, 9. júní 2009
Moggarjúpa á ESB-staur
![]() |
Aðild Íslands sett í forgang |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 8. júní 2009
Ríkisstjórnin pakkar í vörn
Engir aðrir kostir voru í boði, eru skilaboð ríkisstjórnarinnar vegna Icesave-samningana. Ef við gefum okkur, orðræðunnar vegna, að þetta sé rétt, vaknar spurningin hvers vegna var samningurinn kynntur rétt áður en stjórnin ætlar að opinbera sparnaðartillögur sínar upp á 20 milljarða króna? Þolinmæði sem stjórnin átti inni hjá þjóðinni hefur gufað upp á örskoti. Eins og málið blasir við verður það olía á eldinn þegar tilkynnt verður hvernig niðurskurði og skattahækkunum verður deilt út.
Fyrir kosningar, þegar ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur var starfsstjórn, stigu ráðherrar varla feilspor. Nú er eins og ráðherraliðið sé í samkeppni um hverjir geti klúðrað sem mestu á skemmstum tíma.
Skýringar á stöðu stjórnarinnar liggja að einhverju marki í risavöxnum vanda eftir hrun. Sóknarfæri nýrrar ríkisstjórnar lágu í því að fá almenning í lið með sér í langan leiðangur. En til þess að virkja velvild almennings varð ríkisstjórnin að bjóða upp á áætlun, pólitíska dagskrá. Það gerði hún hins vegar ekki. Þegar í stjórnarmyndunarviðræðum fóru margir dagar í súginn við að þræta um stóra einskynsnýta málið, stefnuna í Evrópumálum, og niðurstaðan varð myllusteinn um stjórnarhálsinn.
Ríkisstjórnin kynnti sig til leiks sem norræna velferðarstjórn sem er merkimiði gærdagsins. Fyrstu vikunum var sólundað í aðgerðarleysi. Þegar aðgerðarleysið var orðið pínlegt kom Iceave-málið eins og skrattinn úr sauðarleggnum. Verkfælni varð að handvömm loksins þegar stjórnin ætlaði að láta til sín taka.
Vörnin sem ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur ratar í jafn snemma og raun ber vitni veit á uppgjöf. Aðeins er óvissa hvort uppgjöfin verður löng hrygla eða snögg aftaka.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 8. júní 2009
Icesave gæti fellt ríkisstjórnina
Í örðu lagi er samningurinn lélegur. Upphæðin, um 660 milljarðar króna, ber 5,5 prósent vexti þegar vextir Englandsbanka eru 0,5 prósent. Spuninn um að verðbólga gæti höggvið í vextina er blekking. verðhjöðnun er vandamálið sem Vesturlönd standa frammi fyrir og hún hefur þau áhrif að vextirnir verða okkur dýrari.
Í þriðja lagi finnur fólk margvíslegri andúð sinni á stjórninni farveg í mótmælum gegn Icesave-samningunum.
Hér er sama ferli komið af stað og felldi ríkisstjórn Geirs Haarde.
![]() |
Berja í búsháhöld |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Mánudagur, 8. júní 2009
Standa saman já, en um hvað?
Stjórnarþingmenn taka orðum Vilhjálms í SA fagnandi og telja hann sýna gott fordæmi. Við eigum að standa saman sem þjóð og með átaki ná okkur á strik á ný. Gott og vel. Ríkisstjórnin gæti fengið þjóðina með sér í leiðangur með skilgreind markmið og gæti fengið okkur til að herða mittisólina möglunarlítið.
Það er þó eitt ófrávíkjanlegt skilyrði: Við stöndum ekki að baki ríkisstjórn sem ætlar að framselja fullveldi okkar og forræði eigin mála. Og við styðjum ekki stjórnarflokka sem svíkja umbjóðendur sína.
Hentistefnuflokkurinn í ríkisstjórn verður að draga tilbaka kvislingastefnu sína til að stefnufasti flokkurinn júdasist ekki.
Ófriðurinn vegna Icesave er upphafið að öðru tveggja, sátt um að vinna okkur hratt úr erfiðleikunum eða innanlandsófriði þar sem krafan um kosningar verður sett á oddinn.
![]() |
Allir þurfa að standa saman |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Sunnudagur, 7. júní 2009
Og Baugsfylkingin í ríkisstjórn
Samfylkingin var stjórnamálaarmur Baugs og þar með óheflaðasta hluta útrásarinnar. Samfylkingin gætti hagsmuna Baugs á þingi, t.d. með því að stöðva fjölmiðlafrumvarpið, og fékk í staðinn fjármagn frá Baugi og málafylgju í fjölmiðlum samsteypunnar.
Þegar kom að hruni var viðskiptaráðherra Samfylkingar í síðustu ríkisstjórn, Björgvin G. Sigurðsson, kallaður á teppið um miðja nótt hjá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni forstjóra Baugs.
Og enn er Samfylkingin í ríkisstjórn og nú í boði Vinstri grænna. Hve lengi?
![]() |
Stærsta svikamál frá stríðinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 6. júní 2009
Anne Frank 80 ára - ef hún hefði lifað
Anne Frank dagbókarhöfundurinn sem persónugerði helför gyðinga í seinni heimsstyrjöld hefði orðið áttræð í næstu viku. Hún lést 15 ára árið 1945 í fangabúðum kenndum við Bergen Belsen. Dagbókin sem hún skrifaði í felum var gefin út eftir stríð og gerði stúlkubarnið að samnefnara fyrir milljónir sem létu lífið fyrir það eitt að vera gyðingur.
Hér er frétt um Anne Frank og ljósmynd sem sýnir hvernig hún gæti litið út í dag.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)