Gjaldþrot í stað pólitískrar sturlungaaldar

Orð skulu standa er speki sem gleymdist í útrásinni. Hæstaréttardómur um ólögmæti gjaldeyrislána er niðurstaða sem við eigum að láta standa og breyta samkvæmt því. Bílalánafyrirtækin fara í gjaldþrot, ofgreiddar kröfur verða almennar kröfur í búin; ógreidd gengislán eru afgreidd samkvæmt orðanna hljóðan - ýmist með Libor plús álag eða stýrivexti Seðlabankans.

Seðlabankastjóri er eflaust með réttmætar áhyggjur af viðbrögðum erlendra lánadrottna sem munu tapa tugmilljörðum á gjaldþroti bílalánafyrirtækjanna. Þær áhyggjur mega ekki verða til þess að stjórnvöld grípi frammi fyrir hendur Hæstaréttar. 

Stjórnvöld eiga að halda að sér höndum í málinu og aðeins grípa inn í ef neyð kallar. Almenningur hefur skilning á neyðarúrræðum þegar þeirra er þörf. Engin nauðsyn er að hér starfi bílaleigufyrirtæki sem kunna ekki að gera lánssamninga.


mbl.is Hefðu lækkað vexti meira
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylkingarvæðingu Sjálfstæðisflokks ljúki

Eymd Sjálfstæðisflokksins var mest þegar forystan féllst á kröfu Samfylkingar að halda sérstakan landsfund um Evrópumál. Samfylkingin hótaði að slíta stjórnarsamstarfinu og forysta Sjálfstæðisflokksins lyppaðist niður. Össur og félagar þekkja aumingjahátt þegar þeir sjá hann og sömdu á bakvið tjöldin um samstarf við VG á meðan Sjálfstæðisflokkurinn kepptist við að liggja flatur.

Margstaðfest er að um 70 - 80 prósent sjálfstæðismanna er á móti aðild Íslands að Evrópusambandinu. Hávær minnihluti flokksins hefur komið i veg fyrir skýr og einbeittur vilji flokksmanna nái fram að ganga. 

Til að Sjálfstæðisflokkurinn eigi á ný erindi við almenning í landinu þarf hann að reka af sér slyðruorði og taka ótvíræða afstöðu í meginmálum. Með því að samþykkja stuðning við þingsályktunartillögu Unnar Brár um að Ísland dragi tilbaka umsókn um aðild að Evrópusambandinu öðlast flokkurinn sjálfsvirðinguna á ný í utanríkismálum sem löngum hafa verið meginstef íslenskra stjórnmála.

Sjálfstæðisflokkurinn á sér ekki framtíð sem pólitísk hjáleiga Samfylkingarinnar. 

 


mbl.is Sjálfstæðismenn ræða Evrópumál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enginn vill partý með Össuri

Utanríkisráðherra er í þeirri stöðu að standa á dyrastaf Evrópusambandins og vilja inngöngu. Húsbændurnir í Brussel vilja Össur hins vegar ekki vegna þess að hann er óuppdreginn óreiðumaður og ekki húsum hæfur. Það sem meira er skortir ráðherrann föruneyti frá Íslandi.

Engu að síður vill Össur sitt partý enda búið að lofan honum því að sögn.

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, segir margítrekað af forystu Evrópusambandsins og framkvæmdastjórn þess að engin tenging sé milli Icesave og aðildarviðræðnanna.

 Forsætisráðherra Breta sagði á breska þinginu nýverið að Ísland færi ekki inn í Evrópusambandið fyrr en Íslendingar væru búnir að borga kröfu Breta vegna Icesave. Össur veit ósköp vel að hvert og eitt aðildarríkjanna 27 hefur neitunarvald gagnvart nýjum aðildarríkjum.

Enginn vill partý með Össuri Skarphéðinssyni, hvorki hér heima né erlendis.

 


Unnur Brá varaformaður Sjálfstæðisflokksins

Sjálfstæðisflokkurinn heldur landsfund um helgina og brýnt að flokkurinn svari óþreyjufullum kröfum um að hann sé tilbúinn að taka af skarið í þeim málum brýnust eru. Kosið verður til formanns og varaformanns flokksins. Unnur Brá Konráðsdóttir þingmaður flokksins á Suðurlandi hefur sýnt að hún þorir þegar aðrir hika.

Unnur Brá er aðalhöfundur að þingsályktunartillögu um að Ísland dragi tilbaka umsóknina um aðild að Evrópusambandinu. Tillagan ein og sér gerbreytti umræðunni um Brusselhelför Samfylkingarinnar þar sem hún sýndi fram á hversu einangruð Samfylkingin er með því að þingmenn annarra flokka skráðu sig á tillögu Unnar Brár.

Í umræðum á alþingi er Unnur Brá beinskeytt og gefur sig lítt að loðmullu sem hikandi og hikstandi þingmönnum er tamt. 

Unnur Brá er framtíðarleiðtogi.


Hæstaréttardómur er eitrað peð stjórnvalda

Dómur Hæstaréttar um ólögmæti gengistryggðra lána er eitrað peð fyrir stjórnvöld. Ef þau ætla að krukka í dóminn, t.d. með því að skella á verðtryggingu,  er opnað fyrir dómsmálahrinu og hverskyns kröfur sem allar eiga það sameiginlegt að vera íþyngjandi fyrir skattgreiðendur.

Gengislánasamningar eru með ýmsu móti, sumir munu sjálfkrafa leiða til tiltölulegra lágra vaxta á meðan önnur munu bera stýrivexti Seðlabanka Íslands. 

Fjármálafyrirtækin eru með allt á hælunum í þessum máli sem öðru enda biðja þau um ríkisforsjá. Við eigum ekki að veita ríkisábyrgð eftirá.  Bílalánafyrirtækin eiga að fara í þrot enda er það til muna ódýrara fyrir skattgreiðendur.


mbl.is Vill verðtryggingu á lánin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Icesave/ESB kostnaður Samfylkingar lendir á okkur

Samfylkingin ætlar að verða Íslendingum dýrkeyptur flokksbrandari. Ekki nóg með að Samfylkingin framlengdi líf útrásarinnar með því að taka Baug og Jón Ásgeir upp á sína arma heldur er ótímabær umsókn um aðild að Evrópusambandinu tilefni Breta og Hollendinga til að halda að við ætlum að borga fjallaháa Icesave-reikninga.

Samfylkingin hefur komið Íslandi í pólitíska og efnahagslega herkví. Með umsókn Samfylkingar um aðild Íslands að ESB er Bretum og Hollendingum boðið upp á þvingunarúrræði sem þeir hafa óspart nýtt sér. Á meðan Icesave-uppgjör dregst á langinn er tómt mál að tala um endurreisn efnahagslífsins.

Við stofnun Samfylkingarinnar var haft á orði að þar væru komin í einn flokk mestu hagfræðieðjótar landsins. Það gleymdist að taka fram að mestu imbar Íslandssögunnar í alþjóðasamskiptum hefðu einnig fundið sér heimili í Samfylkingunni.

 


mbl.is Beiti ESB í Icesave-deilunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Efnahagspólitík Jóns og séra Jóns

Skuldarar sem Hæstiréttur gaf stórfé með því að dæma gengistryggð lán ólögleg ættu ekki að eyða fyrirfram peningum sem þeir fá kannski aldrei. Á næstu dögum mun myndast samstaða um að gengislánafólkið eigi ekki að njóta dómsins nema allir hinir fái líka - en það er ekki hægt vegna þess að það kostar of mikið.

Tvær leiðir eru líklegar. Í fyrsta lagi að helstu bílalánafyrirtækin fari i gjaldþrot og þar verða kröfur skuldara sem ofgreiddu lánin sín að almennum kröfum og þeir fá ekki nema brot tilbaka.

Í öðru lagi að ríkið yfirtaki rekstur bílalánafyrirtækjanna og hantéri þau á líkan hátt og bankana við hrunið. Skuldarar sem ofgreidd lán yrðu eigendur endurreistra bílalánafyrirtækja og gætu selt hlutinn þegar og ef markaður fyndist.

Í báðum tilvikum fæst nær ekkert endurgreitt. Þeir einu sem eitthvað hagnast eru stórskuldarar með yngstu lánin.

Efnahagspólitíkin má ekki gera upp á milli skuldara eftir gengi og vísitölu. 


mbl.is Skoði verðtryggðu lánin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bónus áhættufólksins er ábati hagkerfisins

Leiða má að því líkum að þeir landsmenn sem helst eyða um efni fram séu í yfirhlutfalli þeirra sem fá endurgreiðslu/niðurfellingu vegna dóms Hæstaréttar sem bannar gengistryggingu lána. Fyrir hagkerfið er það sérstakur ábati.

Engar líkur eru á að eyðsluklærnar liggi á nýfengnum afskrifum eins og ormar á gulli. Óðara verður eytt í hverskyns glingur og dót sem gefa lífinu gildi.

Og hagkerfið tekur fjörkipp. 

Ástæða er hins vegar til að hafa áhyggjur af sálarjafnvægi okkar hinna sem ekki fáum endurgreiðslu.


mbl.is Skapi þjóðarsátt um lánin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sumargjöf olíufélaganna

Olíufélögin byggðu sitt veldi á samráði gegn almenningi. Glæpastarfsemi félaganna gaf þeim færi á að færa út kvíarnar, til dæmis sjoppurekstur og veitingasölu. Offjárfestingar í rándýrum umbúðum um eldsneytissölu hækka rekstrarkostnað olíufélaganna.

Í stað þess að snúa baki við 2007-fjárfestingunni, lækka rekstrarkostnaðinn og afskrifa ruglfjárfestingar ætla olíufélögin að senda reikninginn áfram til almennings.

Ríkisstjórnin ætlar vitanlega að sitja með hendur í skauti á meðan olíufélögin maka krókinn.


mbl.is Skeljungur hækkar einnig verð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Margar útgáfur af endalokum Jóhönnu Sig.-stjórnar

Viðskiptaráðherra í dag er með eina útfærslu á endalokum ríkisstjórnar Jóhönnu Sig., að hún muni falla í annarri atkvæðagreiðslu  um Icesave. Um helgina var utanríkisráðherra með aðra endlösnung á ríkisstjórninni, sem sé að þjóðstjórn tæki við. Í síðustu viku kynntu þingmenn VG enn aðra útgáfu, að stjórnin félli á vanhugsuðu frumvarpi forsætisráðherra um stjórnarráðið.

Þegar margar útgáfur eru á boðstólum um endalok ríkisstjórnar Jóhönnu Sig. er aðeins eitt öruggt.

Ein útgáfan hlýtur að vera rétt.


mbl.is Óvíst hvort stjórnin lifi af aðra atkvæðagreiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband