Mánudagur, 10. júní 2024
Ofbeldistjáning
Stuðningsmenn Hamas sátu fyrir ráðherrum í ríkisstjórn Íslands og stöðvuðu för þeirra. Fyrirsátin var skipulögð og vakti óhug. Hamas-liðarnir íslensku vilja kalla það tjáningu að hindra för annarra. Jafnframt er það kölluð tjáning að óhlýðnast fyrirmælum lögreglu. Ofbeldi er ávallt einhvers konar tjáning - en ekki stjórnarskrárvarin eins og frjáls orðræða.
Mótmæli, af hvaða tæi sem er, má kalla tjáningu. Að hindra frjáls för annarra er aftur annað og verra en tjáning. Líkamlegir tilburðir til að knýja fram niðurstöðu lýsa ofbeldishneigð. Frjáls för í opnu rými telst til mannréttinda. Óhlýðni gagnvart lögreglu er brot gegn valdstjórninni.
Íslenskir stuðningsmenn Hamas iðkuðu ekki tjáningarfrelsið 31. maí. Ekki frekar en að fyrirmyndir þeirra stunduðu mannúðarstörf 7. október í fyrra.
![]() |
Tjáningarfrelsið gildir jafnt um ólíkar skoðanir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sunnudagur, 9. júní 2024
Dauði Evrópu almælt tíðindi
Einkennilegur dauði Evrópu er sjö ára gömul bók eftir Douglas Murray. Þar tekur höfundur vara á opingáttarstefnu gagnvart fólksflutningum frá ríkjum íslam. Murray er breskur íhaldsmaður. Nú þegar Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins gerir dauða Evrópu að yfirvofandi hættu virðist sem Murray hafi mælt áhrínisorð.
Ekki það að bækur breyti heiminum. Aðrir kraftar en ritað orð eru að verki. Valdakonan Úrsúla, ólíkt Murray, notar hugtakið Evrópu um Evrópusambandið, sem riðar til falls verði ekkert að gert. Sá breski á við evrópska menningu þegar hann tekur sér í munn heimsálfuheitið.
Henni Evrópu, hvort heldur menningunni eða ESB, sem er alls ekki sami hluturinn, vegnar fremur illa á öldinni sem brátt fjórðungur er liðinn af. Um aldamótin var hugmyndin um Stór-Evrópu, sambandsrík með Brussel sem höfuðborg, lifandi og líkleg til raungerast. Einn gjaldmiðill skyldi knýja samrunaferli næstu áratuga.
Tveir atburðir, ári fyrir útgáfu bókar Murray, settu strik í reikninginn, Brexit og kjör Trump. Evrópa án Bretlands er vængbrotin. Eyríkið er sögulega sterkasti hlekkur meginlandsins við Bandaríkin. Trump setur Ameríku í fyrsta sæti og hann gæti náð endurkjöri í haust. Þriðji atburðurinn er Úkraínustríðið, sem nú er á þriðja ári.
Evrópa hvað hernaðarmátt áhrærir er algjörlega upp á Bandaríkin komin. Vinurinn í vestri skakkaði leikinn bæði í fyrra og seinna stríði á síðustu öld, en þá var álfan í helgreipum hernaðarhyggju. Í kalda stríðinu vandist Evrópa á að láta Bandaríkin sjá um varnar- og öryggismál. Sá ávani kemur sér illa þegar stjórnmál vopnavæðast á ný.
Úkraínustríðið færir valdamönnum álfunnar heim sanninn að stórveldi án hernaðarmáttar þrífst á friðartímum en síður í ófriði. Undir forræði ESB er tómt mál að tala um evrópskan her, þótt það sé engu að síður gert í Brussel. Þjóðarher er reglan frá Napóleonsstríðunum í byrjun 19. aldar. Frakkar, Ítalir og Þjóðverjar eiga hvorki sögu né menningu til að splæsa saman í her. Að ekki sé talað um Pólverja.
Evrópusambandið var rísandi hugmyndafræði um síðustu aldamót. Nú segir forseti framkvæmdastjórnar ESB að þjóðernisöfl séu að eyðileggja Evrópu. Það er óbein viðurkenning að hugmyndin um Stór-Evrópu var mistök.
![]() |
Segir öfgaöfl vinna að eyðileggingu Evrópu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Laugardagur, 8. júní 2024
Pólitík mannsins sem sló Mettu
Mette Fredriksen, forsætisráðherra Danmerkur fékk höfuðhnykk við árásina í Kaupmannahöfn í gær en féll ekki til jarðar, samkvæmt Jyllandsposten. Mette aflýsir öllum fundum sem hún átti bókaða í dag, segir sama heimild.
Árásarmaðurinn er 39 ára og var handtekinn á staðnum. Ekki er vitað um ástæður árásarinnar. Maðurinn verður færður til yfirheyrslu klukkan eitt í dag.
Litið er á árásina sem atlögu að opnu dönsku samfélagi.
Úr nafni mannsins og bakgrunni verður gerð pólitík. Víðtækar ályktanir verða dregnar, þó minnstar heiti gerandinn Morten og stríðir við andlega vanheilsu.
![]() |
39 ára karlmaður handtekinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 7. júní 2024
Læsi út, hinsegin og Hamas inn
Hugmyndafræði en ekki grunnfærni er í forgangi íslenska skólakerfisins. Á seinni árum ber mest á transhugmyndafræði. Kennarar eru þjálfaðir af Samtökunum 78 að sá fræjum efasemda um að nemendur séu af réttu kyni. Æ stærri hluti nemenda, einkum drengir, útskrifast ólæsir og með brotna sjálfsmynd eftir innrætingu kynjaköltsins.
Skólahald sem miðast við að halda hugmyndafræði að nemendum í stað að efla grunnfærni í lestri, reikningi og náttúrufræði, lendir í þeim ógöngum að ein hugmyndafræði er í tísku í dag en önnur á morgun.
Til að bæta gráu ofan á svart er slíkt aðstreymi útlendra nemenda, ekki mælandi á íslensku, þökk sé opingáttarstefnu stjórnvalda, að þeir nemendur sem geta komið fyrir sig orði, fá kunnáttuna heima en ekki í skólanum.
Hugmyndafræðin stórspillir skólahaldi enda mótsagnakennd og í andstöðu við heilbrigða skynsemi. Hinsegin og Hamas eru andstæður; hommar eru drepnir í Gasa en lifa við vestrænt frjálslyndi í Ísrael. Kennarasambandið flaggað Palestínufánum um daginn og veitti sennilega fjármuni til að múta egypskum landamæravörðum að senda fleiri araba til Íslands. Hamingjan má vita hvernig það hjálpar íslenskum börnum við lestur og að draga til stafs.
Pólitísk yfirvöld þykjast hafa áhyggjur af ólæsi barna. Ef raunverulegur áhugi er á endurbótum yrðu einkunnarorðin þessi: út með hugmyndafræði, inn með grunnfærni.
![]() |
Annar hver drengur nær ólæs eftir tíu ár í skóla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 07:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 6. júní 2024
Von Evrópu er Pútín
Evrópsk gildi, ef þau eru til, tapa á útivelli, í Úkraínu, og á heimaveli fyrir herskáum múslímum.
Rússar eru á sigurbraut í Úkraínu, spurningin er aðeins hve tap Evrópu verður stórt. Pólverjar búa sig undir það versta og reisa varnarlínu á austurlandamærunum fyrir 2,3 milljarða evra. Varnarlínan verður 700 km löng verður byggð á 4 árum. Pólverjar gera ráð fyrir að Úkraína verði rússnesk innan tíðar.
Á heimavelli, í Vestur-Evrópa, eru herskáir múslímar á sigurbraut, útskýrir Ayaan Hirsi Ali (eiginkona Njáls, sem nýlega kom við tilfallandi sögu). Aðferðin sem múslímar nota, segir Hirsi Ali, er tangarsókn. Í fyrsta lagi terrorísering með hryðjuverkum, sú saga er kunn. Í öðru lagi með dawa, sem er langtímaáætlun íslam að yfirtaka samfélög þar sem trúarmenning spámannsins nær fótfestu. Evrópa verður undir hæl múslíma innan fárra áratuga, að áliti Hirsi Ali. Hún telur von að Bandaríkin sjái að sér í tíma, dragi rétta ályktun af íslamvæðingu Evrópu.
Hirsi Ali telur kristni eina bjargvætt Evrópu. Ekki það að konan sé orðin bókstafstrúar. Hún boðar milda og umburðarlynda kristni.
Tilfallandi kaupir ekki kristin sjónarmið Hirsi Ali, án þess að vera á móti þeim. Mild trúarvakning er ekki háttur í henni veröld, hvorki nú né fyrrum. Krossinn, eða annað trúartákn, er í annarri hendi en sverðið í hinni er reglan en ekki undantekning í útbreiðslu trúarbragða og róttækri endurnýjun þeirra, samanber siðaskiptin. Íslendingar eru ein örfárra þjóða, ef ekki sú eina, sem tekur kristni með friði - þökk sé Þorgeiri Þorkelssyni goða á Ljósavatni og hagkvæmistrú íslensku höfðingjanna við þúsaldarmótin.
Von Vestur-Evrópu liggur í rússneskum sigri í Úkraínu. Því stærri sigur, því meiri von. Stór orð, en þau eru ekki tilfallandi hugrenningar heldur túlkun á orðum eins fremsta sérfræðings alþjóðastjórnmála, John Mearsheimer. Sá bandaríski útskýrir á 12 mínútum gangverk alþjóðakerfis sem allof fáir skilja, utanríkisráðherra Íslands meðtalinn. Ráðherra skrifar í leiðaraopnu Morgunblaðsins í dag að Pútín ógni Íslandi. Það er rangt.
Kjarninn í máli Mearsheimer er að Rússar litu á væntanlega aðild Úkraínu að Nató sem tilvistarógn. Ríki notar ítrustu bjargir til að knýja fram sigur ef tilvist þess er ógnað. Rússar ógnuðu ekki tilvist Evrópu eftir að kalda stríðinu lauk. Eftir fall Berlínarmúrsins héldu Rússar heim frá Austur-Evrópu með sitt hafurtask og ónýta hugmyndafræði kommúnismans.
Úkraínudeilan verður til með tilboði Nató árið 2008 að Úkraína gangi í hernaðarbandalagið. Stækka átti áhrifasvæði Bandaríkjanna og ESB, með Nató sem verkfæri. Eftir að deilan varð að fullveðja stríði veturinn 2022 tóku menn að tala um evrópsk gildi undir rússneskri ágjöf, eins og Macron Frakklandsforseti í viðtengdri frétt. Þvættingur, segir Mearsheimer. Rússar hafa engan áhuga á að leggja undir sig Vestur-Evrópu með hervaldi og hafa ekki til þess herafla. En með sigri í Úkraínu yrði hlustað á Rússa og tekið tillit til öryggishagsmuna Kremlverja. Menningarpólitískt forræði fylgir hernaðarsigri.
Stór rússneskur sigur yrði innlimun Úkraínu, eins og Pólverjar óttast og búa sig undir. Í sögulegu samhengi yrði til nýtt rússneskt keisaradæmi. Rússland yrði 170-180 milljón manna ríki með gnótt náttúruauðlinda. Rússland yrði meira en tvöfalt stærra en stærstu Evrópuþjóðir i mannfjölda og er fyrir landmesta ríki jarðar. Í afstöðunni til múslíma er þorri Austur-Evrópuríkja sammála Rússum. Þá er eftir Vestur-Evrópa sem verður meira og minna upp á Rússa komin með sín helstu bjargráð. Ráðamenn í London, París, Brussel og Berlín verða með Kreml efst í hraðvalinu á fjarskiptatækjum sínum, ekki Hvíta húsið.
Þróunin sem lýst er að ofan tekur áratugi. Pútín verður kominn undir græna torfu áður en hún raungerist. Strákurinn frá Pétursborg gerir uppdrátt, aðrir reisa bygginguna sem ekki verður moska heldur kirkja.
Svo er hinn möguleikinn, að úr Úkraínustríði verði kjarnorkubál. Þá skipir ólík trúarmenning kristinna og múslíma ekki máli. Allir eru jafnir fyrir atómsprengju. Eins og fyrir guði.
![]() |
Verðum að varðveita evrópsk gildi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Miðvikudagur, 5. júní 2024
Aðalsteinn óttast æruféð
Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður á Heimildinni og sakborningur stefnir tilfallandi til sýslumanns til tryggingar á ærufé og málskostnaði vegna dóms héraðsdóms í apríl.
Héraðsdómur dæmdi Aðalsteini 450 þús. kr í miskabætur og 1,4 m.kr. í málskostnað. Aðalsteinn stefndi bloggara fyrir að skrifa um byrlunar- og símastuldsmálið. Rétt eftir dóminn sýknaði landsréttur bloggara í sambærilegu máli sem félagar Aðalsteins á Heimildinni, þeir Þórður Snær og Arnar Þór, höfðu unnið í héraðsdómi á liðnu ári. Landsréttur mun næsta vetur taka fyrir áfrýjun bloggara. Tilfallandi bloggaði um báða dómana, sjá hér og hér.
Við áfrýjun frestast réttaráhrif dóma. Landsréttur mun vega og meta dóm héraðsdóms og kveða upp úr hvort hann stenst eða ekki. Miðað við úrskurð landsréttar í máli Þórðar Snæs og Arnars Þórs gegn bloggara myndu fáir löglærðir veðja á málstað Aðalsteins.
Hvers vegna gerir Aðalsteinn kröfu með tilstyrk sýslumanns að tilfallandi leggi fram tryggingu fyrir greiðslu sem enn bíður dóms? Á lagamáli heitir aðgerðin ,,löggeymsla á eignum" og er einkum notuð þegar í húfi eru tugir eða hundruð milljónir króna, t.d. í fasteignaviðskiptum. Tilfallandi spurði lögmann hvaða gæti búið að baki og fékk þetta svar:
Krafan sýnir best skítlegt eðli þessara manna. Þeir eru einfaldlega að gera þér lífið leitt. Láta þig mæta til sýslumanns og leggja fram veð.
Krafan Aðalsteins er nokkuð hærri en hann fékk dóm um, eða tæplega 2,4 m.kr., og er ekki sundurliðuð. Lyfjakostnaði hefur sennilega verið bætt við, hugsaði tilfallandi með sér. En áttaði sig fljótt. Engin lyf vinna á skítlegu eðli.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 4. júní 2024
Innfluttir glæpir og ónýt pólitík banabiti Vinstri græna
Um 75 prósent af öllum þeim sem sátu í gæsluvarðhaldi á Íslandi á síðasta ári eru útlendingar, segir í frétt Mbl.is Gæsluvarðhaldi er aðeins beitt í alvarlegum brotum. Hverjir eru það sem standa fyrir opingáttarstefnu í útlendingamálum í ríkisstjórninni? Jú, Vinstri grænir.
Hver eru önnur frægðarmál Vinstri grænna? Jú, bábiljufræði um manngerða hlýnun jarðar og transmenningu sem kennir að hægt sé að fæðast í röngum líkama en það er óvart líffræðilegur ómöguleiki.
Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur líða önn fyrir að púkka upp á Vinstri græna í ríkisstjórn. Neitunarvald jaðarflokks hefur stórskaðað borgaralegu flokkana, sem sést á jafnri og stöðugri fylgisaukningu Miðflokksins.
Starfsmaður þingflokks Vinstri grænna, Sunna Valgerðardóttir, áður aktívisti á RÚV, skrifar færslu þar sem hún kennir Sjálfstæðisflokknum um ófarir Vinstri grænna. Eins og aktívista er háttur snýr Sunna öllu á hvolf.
Vinstri grænir berjast fyrir töpuðum málstað, ekki í einum bardaga heldur á allri pólitísku víglínunni. Vegferð hins meginflokks vinstrimanna hér á landi sýnir glöggt einangrun Vinstri grænna. Samfylkingin klæðir sig upp í að verða borgaralegur flokkur, ætlar að skilja Vinstri græna eftir með Pírötum, sem mynda öxul óreiðuvinstrisins.
Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingar sparkaði í Vg-líkið þegar hún í gær kvartaði hástöfum á alþingi um skort á lögregluliði til að hemja innfluttan afbrotafaraldur Vinstri grænna.
Vinstri grænir ljúka kjörtímabilinu hvorki með fylgi né forseta. Sjálfskaparvítin eru verst.
![]() |
Starfsmaður VG: Samstarfið að þurrka út flokkinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Mánudagur, 3. júní 2024
Bíða Kristrúnar Katrínarörlög?
Rétt fyrir kjördag stóð Katrín Jakobsdóttir tæpt gagnvart Höllu Tómasdóttur. Fyrir þrem vikum var Halla Hrund helsti keppinauturinn en lét undan síga þrátt fyrir loforð um að grípa í taumana léti ríkisstjórnin af því verða að selja Landsvirkjun - kosningamál sem ætti að höfða til vinstrihópa. Eitthvað samræmt gerðist á bakvið tjöldin sólarhringinn fyrir kjördag.
Halla Tómasdóttir, skrifar Björn Bjarnason, á ýmislegt að
þakka þeim forystumönnum sem lögðu öðrum frambjóðendum lið fram á síðasta dag en hvöttu svo kjósendur á síðustu stundu til að kjósa Höllu T. í því skyni að koma í veg fyrir að Katrín Jakobsdóttir sigraði.
Það er ekki einleikið að fylgi fyrrum varaþingmanns Samfylkingar, Baldurs Þórhallssonar, sópaðist frá honum á lokametrunum. Örfáum dögum fyrir kosningar mældist fylgi Baldurs 16 til 18 prósent en á kjördag fékk hann átta prósent.
Ef um var að ræða ,,taktískt" val kjósenda hefði fylgi Baldurs átt að dreifast. En það gerðist ekki. Katrín hélt sínu kannanafylgi en Halla Tómasdóttir tók stökk á kjördag. Kjaftakvörn Samfylkingar sendi út samræmd skilaboð.
Stuðningsmenn Katrínar úr röðum vinstrimanna kunna kratakvörninni litlar þakkir. Prinsessa Samfylkingar, Kristrún Frostadóttir, á fyrir höndum langan og strangan kosningavetur. Hún er með í farteskinu óuppgerð mál. Til dæmis lukkupott sem reyndist skattaundanskot.
![]() |
Halla fyrsti forsetinn af hægri vængnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sunnudagur, 2. júní 2024
Svarti svanurinn Halla Tómasdóttir
Kynrænt sjálfræði reið ekki feitum hesti frá forsetakosningunum 2024. Stuðningsmenn Baldurs yfirgáfu hann í massavís til að hindra framgang Katrínar á Bessastaði. Kynrænt sjálfræði er lagaheitið á transmenningunni sem Katrín innleiddi með lögum 2019 og Baldur er fulltrúi fyrir, bæði í Reykjavík og Berlín.
Náttúruvernd fékk einnig á kjaftinn. Halla Hrund er 21stu aldar útgáfa af Sigríði í Brattholti. Halla Hrund ætlaði að beita neitunarvaldi á einkavæðingu Landsvirkjunar, líkt og Sigríður kom í veg fyrir að Gullfossi yrði sökkt í byrjun síðustu aldar. En nei, stuðningsmenn Höllu Hrundar, líkt og bakland Baldurs, töldu brýnast að Katrín yrði ekki forseti. Lagði Katrín þó á sig eyðimerkurgöngu að Ok, litlu jökulnefnunni sem hávaðafólkið í hamfarakórnum kallar til vitnis um manngerða hlýnun jarðar.
Sigurvegarinn, Halla Tómasdóttir, er fulltrúi viðskipamenningarinnar. Hún var formaður Viðskiptaráðs og fundarstjóri á Baugsdeginum kortéri fyrir hrun. Græða yfir daginn, grilla á kvöldin. Nú heitir það reyndar að ,,uppfæra viðmið".
Í vísindaheimspeki er til hugtakið svarti svanurinn. Það vísar til óvæntrar niðurstöðu sem byltir skilningi manna á fyrirbærum er áður þóttu fullnumin. Á yfirborðinu átti Katrín að verða forseti. Undirmál kosningabaráttunnar, þar sem þjóðarsálin geymir sig og kannanir nema ekki, voru: Við viljum ekki Katrínu drottningu, þótt hún sé alls góðs makleg.
Halla hefur alla burði til að verða góður og farsæll forseti. Hún er heimsvön eiginkona og tveggja barna móðir. Hálfsextug tekur hún við embætti og lætur það vonandi ekki af hendi fyrr en á níræðisaldri. Þjóðhöfðingjar eiga að sitja lengi og eldast fallega.
![]() |
Halla: Mér líður ótrúlega vel |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 1. júní 2024
Landsréttur: Þórður Snær féll á eigin bragði
,,Þórður Snær [hefur] sjálfur ítrekað á opinberum vettvangi fjallað á afar gagnrýninn hátt um þá sakamálarannsókn [byrlunar- og símastuldsmálið] sem mál þetta er sprottið af."
Tilvitnunin hér að ofan er í dóm landsréttar sem í gær sneri við dómi héraðsdóms Reykjavíkur og sýknaði tilfallandi af ærumeiðingum í garð tveggja blaðamanna RSK-miðla, þeirra Þórðar Snæs ritstjóra Heimildarinnar og Arnars Þórs Ingólfssonar blaðamanns á sama miðli.
Þórður Snær hefur ítrekað haldið fram stóryrtum ósannindum í byrlunar- og símastuldsmálinu. Skömmu eftir að tilfallandi hóf að skrifa um málið, í nóvember 2021, birti Þórður Snær reiðilestur með fyrirsögninni Glæpur í höfði Páls Vilhjálmssonar. Þar sagði hann enga lögreglurannsókn standa yfir á byrlun Páls skipstjóra Steingrímssonar og stuldi á síma hans. Þórður Snær sagði um bloggara að hann væri ,,skítugur maður með rætna bloggsíðu sem hann notar til að ljúga upp á fólk og gera þeim upp meiningar."
Þórður Snær varð sakborningur þrem mánuðum seinna, í febrúar 2022, vegna sakamálarannsóknar sem átti aðeins að vera hugarfóstur bloggara. Ritstjórinn lagði á flótta undan réttvísinni, mætti ekki í skýrslutöku fyrr en í ágúst. Eftir að fá réttarstöðu grunaðs manns hélt Þórður Snær fram þeim ósannindum að lögreglan væri á höttunum eftir heimildarmanni. En lögreglan vissi um heimildarmann blaðamanna RSK-miðla. Afneitun ritstjórans á veruleikanum náði nýjum lægðum þegar hann fullyrti að Páli skipstjóra hefði ekki verið byrlað og að lögreglan þjónaði annarlegum hagsmunum. Mergurinn málsins er að alvarlegir glæpir voru framdir vorið 2021. RSK-miðlar eru miðlægir í þeim glæpum.
Landsréttur bendir á að Þórður Snær og Arnar Þór vissu áður en þeir hófu umfjöllun sína um Pál skipstjóra að gögnin væru þýfi, tekin frá meðvitundarlausum manni á gjörgæslu:
Í málinu liggur einnig fyrir að stefndu [Þórður Snær og Arnar Þór] höfðu fyrir umfjöllun sína verið varaðir við því að gögnin sem þeir studdust við væru illa fengin. Þrátt fyrir það tóku þeir ákvörðun um að byggja umfjöllun sína á þessum gögnum og máttu þar af leiðandi reikna með að fréttaskýringu þeirra yrði svarað hvasst.
Við dómsuppsögu landsréttar í Kópavogi í gær gerðist skondið atvik. Tilfallandi var ekki á staðnum en fékk þær fréttir frá tíðindamanni að Þórður Snær og Helgi Seljan rannsóknaritstjóri Heimildarinnar hefðu mætt með ljósmyndara til að skrásetja sögulegan atburð. En þegar þeim varð ljóst að dómurinn sýknaði bloggara hurfu þeir á braut með slíku írafári að hastað var á þá af dómverði er gætir formreglna í réttarsal. Atvikið lýsir áliti RSK-liða á réttarvörslunni. ,,Ánægjulegt [er] að vita til þess að réttarkerfið virki eins og það á að gera, sagði Þórður Snær fyrir ári er dómur féll í undirrétti. Í gær rauk ritstjórinn á dyr með bægslagangi er réttarkerfið virkaði ekki í þágu blaðamanna með óhreint mél í pokahorninu.
Dómur landsréttar er tveggja þátta. Í fyrsta lagi staðfestir dómurinn rétt almennra borgara að tjá sig um samfélagslega brýn málefni. Aðkoma blaðamanna þriggja fjölmiðla, RÚV, Stundarinnar og Kjarnans (sem nú heita Heimildin) að byrlun og gagnastuldi er mikilvægt mál þótt þess sjáist ekki merki í fjölmiðlaumfjöllun. Tilfallandi, sem þekkir til blaðamennsku og fjölmiðlunar, rann blóðið til skyldunnar og fjallaði reglulega um stærstu ósögðu frétt íslenskrar blaðamennsku. Dómurinn undirbyggir tjáningarfrelsið sem verður fyrir atlögu þaðan sem síst skyldi. Lifibrauð blaðamanna er rétturinn til tjáningar. Almennt ættu blaðamenn að fordæma tilraunir til að hefta málfrelsið. Nú þegja þeir unnvörpum. Tilfallandi gerir ekki ráð fyrir að vera boðið í teiti hjá Blaðamannafélagi Íslands fyrir að standa vaktina til varnar frjálsri orðræðu og þar með frjálsri fjölmiðlun. BÍ verðlaunar aftur skúrka eins ljósmyndin í viðtengdri frétt ber með sér.
Í öðru lagi tekur dómurinn fyrir Hamas-taktík blaðamanna RSK-miðla. Þeir stökkva fram með geipilegar ásakanir um mann og annan, segjast sem rannsóknablaðamenn vita um spillingu hér og þar í samfélaginu. En þegar ásakanir blaðamanna reynast fjöldamorð á sannleikanum hlaupast þeir á brott og fela sig á meðal almennings. Tilfallandi tók ekki með silkihönskum á RSK-liðum enda ekki ástæða til. Hryðjuverkablaðamennirnir kröfðust verndar dómstóla fyrir æru sína þegar hallaði á þá í umræðunni. Landsréttur gefur lítið fyrir mannlega skildi RSK-liða. Þórður Snær og Arnar Þór, segir í dómnum,
eru báðir þekktir blaðamenn sem njóta rúms tjáningarfrelsis, meðal annars um málefni sem þeir taka sér fyrir hendur að rannsaka og upplýsa almenning um, þótt umfjöllun kunni að koma sér illa fyrir þá er fyrir verða [...] Þurfa þeir sem sinna slíkum störfum að vera undir það búnir að þola óþægilega og hvassa gagnrýni og aðfinnslur við störf sín.
Blaðamenn á ekki að taka neinum vettlingatökum þegar þeim verður á í messunni. Það eru helgispjöll í réttarríkinu að hylma yfir lögbrot, einkum alvarlegum. Með því að neita allri samvinnu við lögreglu um að upplýsa byrlun og stuld grafa blaðamenn undan samfélagsgildum sem þeir í orði kveðnu þykjast þjóna; heiðarleika og löghlýðni. Bloggari lítur á það sem borgaralega skyldu að segja tíðindi af ósómanum þar sem siðlausir blaðamenn leika lausum hala.
Þórður Snær og félagar búa að vitneskju um aðdraganda og skipulag tilræðisins gegn Páli skipstjóra Steingrímssyni. Þeir neita samvinnu við lögreglu og standa almenningi ekki reikningsskil gjörða sinna. Það sem meira er; á bakvið tjöldin herja RSK-blaðamenn á starfsfélaga sína á öðrum fjölmiðlum og krefjast hollustu, að ekki sé fjallað um byrlunar- og símastuldsmálið. Bloggari tekur ekki þátt í þagnarsamsæri fjölmiðla gegn almannahag.
![]() |
Ætla með mál gegn Páli fyrir Hæstarétt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |