Innihaldslaus vonarstjarna

Einar Skúlason oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík gerir upp kosningarnar og það er sérkennileg lesning svo ekki sé meira sagt. Hann segist hafa heyrt í fólki að Framsóknarflokkurinn hafi verið of gagnrýninn á ríkisstjórnina. Jú, þið lásuð rétt, nákvæmlega svona orðar Einar þessa hugsun

Guðmundur Steingrímsson vakti máls á þessu strax á kosninganótt og benti réttilega á að við framsóknarmenn verðum að ræða þessa stöðu okkar á milli og skoða fleiri aðferðir við að koma boðskap okkar á framfæri. Ég heyrði margoft gagnrýni í kosningabaráttunni á að kjörnir fulltrúar flokksins gengju sumir hverjir fram af of mikilli óbilgirni og með einstrengingshætti við erfiðar aðstæður. 

Guðmundur Steingrímsson, fyrrum frambjóðandi Samfylkingarinnar, er með hugann við gamla flokkinn en þáði öruggt þingsæti frá Framsóknarflokknum. Einar áttar sig ekki á því  að um leið og hann lepur upp samfylkingarslepju Guðmundar er hann að segja að Framsóknarflokkurinn ætti að renna inn í Samfylkinguna.

Einar nefnir ekki eina einustu pólitísku hugmynd í uppgjörspistli sínum. Pólitísk tilvera Einars gengur út á innihaldslausa mjúkmælgi og smekklegan klæðaburð. Auðrónastefna Framsóknarflokksins, hvers holdgervingur var Björn Ingi Hrafnsson, var árangursrík á tímum útrásar. Eftir hrun er ekki lengur eftirspurn eftir froðu - nema hún sé fyndin og frá vottuðum grínistum.

Sigmundur Davíð, Vigdís, Eygló, Höskuldur og Gunnar Bragi reyna að búa til pólitík í Framsóknarflokknum. Þau eru stjórnmálamenn. 

 


Herkostnaður grínsins

Bros getur dimmu í dagsljós breytt en ekki rekstrartapi í hagnað. Hlátur lengir lífið en styttir ekki biðraðir atvinnulausra. Við erum þess klukkutímana í fábjánatilveru þar sem heiðarlegt grínframboð er tekið alvarlega af stjórnmálaflokki sem gefur sig út fyrir að vera með öllum mjalla.

Besta framboðinu er sérstaklega í nöp við Samfylkinguna. Með því að opna faðminn fyrir Degi á barmi taugaáfalls er hægt að framlengja absúrdleikritið. ,,Við eigum málefnalega mest sameiginlegt með Samfylkingunni," segja Gnarr og kó. Er málefnið tollahlið við bæjarmörk Seltjarnarnes eða ísbjörn í Húsdýragarðinn?

Samfylkingin opinberar sig sem fáráðlingaflokk.


mbl.is Opinberir leynifundir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grínfasismi

Bjarni Harðar kom með analísuna; Besti flokkurinn er fasisminn gríni klæddur. Sígildur fasismi er ber á borð hverskyns bullhugmyndir um að verkin skuli tala og lýðræðið þegja. Einfaldar hugmyndir fyrir einfaldar sálir. Grínfasisminn hefur í frammi brandara og hálfkæring þegar reynt er að ræða pólitík.

Sígildur fasismi og grínframboð Besta flokksins eru með sama markmiðið, sem er að eyðileggja samtal almennings við kjörna fulltrúa sína.

Húmor er nettari leið en hatur til að slíta taugina milli þjóðar og stjórnmálamanna. En það er léleg afsökun fyrir hálfvitahætti Besta framboðsins.


Gnarr með pólitískt líf Dags í hendi sér

Nái Dagur að landa öðru af tveim æðstu embættum Reykjavíkurborgar, borgarstjóra eða forseta borgarráðs, verður honum ekki sparkað úr varaformannsæti Samfylkingarinnar. Maðurinn sem ákveður hvort Dagur heldur pólitískri líftóru sinni er Jón Gnarr.

Fífladansinn sem Dagur samþykkti í gærkvöldi leiðir á endanum til endaloka hans sem stjórnmálamanns. 

Ef Dagur leiðir grínið til valda er hann búinn að vera. Kannski nær hann hundrað dögum líkt og hann gerði með auðróna Framsóknarflokksins á síðasta kjörtímabili en þó er það ólíklegt.

Eini sjens Dags er samstarf við Sjálfstæðisflokkinn en það gerist ekki í hvelli. Það þarf að leiða fólki fyrir sjónir að grín og völd eru eitruð blanda, m. a. vegna þess að það er ekki hægt að hlæja frá sér skuldirnar.

Allt er þetta samt dálítið broslegt.


mbl.is Karl Th. vill að Dagur víki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Össur krefst afsagnar Dags B.

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra og überplottari Samfylkingarinnar ætlar að ryðja úr vegi Degi B. Eggertssyni oddvita Samfylkingarinnar í Reykjavík og varaformanni flokksins. Í Morgunblaðinu í dag er krefst Össur að forystan axli ábyrgð á hörmulegu gengi Samfylkingarinnar. Tveir menn handgengnir Össuri stafa oní fólk að Dagur eigi að víkja.

Í gær benti Mörður Árnason á að aldrei hefði Samfylkingin fengið jafn lélega kosningu í Reykjavík. Í dag botnar Karl Th. Birgisson Mörð og krefst afsagnar Dags.

Á meðan Dagur B. fíflast með Jóni Gnarr skera samherjarnir undan honum. Við hæfi.


ESB-deild Framsóknar galt afhroð

Guðmundur Steingrímsson er nánasti samverkamaður efsta manns á lista Framsóknarflokksins í Reykjavík, - já ég meina Einar. Báðir bera þeir samfylkingarsmit og hlynntir inngöngu Íslands í Evrópusambandið.

Hugmyndin var að ESB-sinnar í flokknum tækju saman við afganginn af auðrónadeildinni og gerðu hallarbyltingu. Björn Ingi Hrafnsson, sem næstum tókst að selja orkuauðlindirnar í hendur auðmanna, ætlaði að stimpla sinn inn á ný. Í því skyni fékk hann sig kosinn til formennsku í ÍR.

Kjósendur höfnuðu ESB-Einari í Reykjavík og plottið farið út um þúfur. Guðmundur Steingrímsson er hins vegar ekki með kveikt á fattaranum og heldur áfram með áætlunina þótt hann sé kominn út í mýri.

Næsti leikur Guðmundar gæti verið að stofna Albesta flokkinn.


mbl.is Gagnrýna þingmann sinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylkingin og aulabrandarinn

Besti flokkurinn er grín. Þeir sem taka grínið alvarlega gera sjálfa sig að fíflum. Margt má um Dag segja en hann er ekki fífl. Þess vegna ímyndar maður sér að viðræður við Besta flokkinn eru fyrir sakir kurteisi en ekki með samstarf í huga.

Á hinn bóginn er Samfylkingin helsta heimili tækifærissinna í stjórnmálum. Og hvað gerist þegar tækifærismennskan hittir aulabrandarann?

 Tragíkómík.


mbl.is Viðræður halda áfram á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glöggur Mörður

Mörður Árnason er nýorðinn þingmaður og rétt að óska honum til hamingju með það. Mörður er ekki allra og hefur aldrei verið en af fáum í Samfylkingunni hugsar hann sjálfstætt. Í pistli dagsins vekur hann hann athygli á að úrslitin í gær voru þau verstu í sögu Samfylkingarinnar.

Samfylkingin er að náttúru og upplagi 20 prósent flokkur. Það er virðingarverð staða að sem gefur færi á að vera minnihlutaaðili að meirihlutastjórn og hnikað málum sínum áfram.

Aftur verða náttúruhörmungar þegar fimmtungsflokkur reynir að þröngva sérmálum sínum upp á meirihluta þjóðarinnar.

Sum mál eru annað hvort eða. ESB-umsóknin er annað hvort eða en ekki beggja blands. Þegar Samfylkingin reynir að nauðga ESB-aðild upp á þjóðina svarar hún með því að gera flokkinn að tíu prósent flokki.

Mörður, reyndu að koma vitinu fyrir félaga þína í þingflokknum.


Samfó og Sjálfstæðis í Reykjavík

Stóru flokkarnir hafa ekki efni á frekari ruglvæðingu samfélagsins og munu mynda meirihluta í Reykjavík. Til sveitarstjórna er lögbundið að kjósa á 4 ára fresti og 85-90 prósent af verkefnum sveitarfélaga eru ópólitísk.

Meirihluti Samfó og Sjálfstæðis í Reykjavík verður til þess að hvetja sjálfstæðismenn og vinstri græna í samstarf í Kópavogi og Hafnarfirði.

Allir flokkar vilja kyrrð sem fyrst í sveitarstjórnum til að geta einbeitt sér að næstu stórorrustu í landsmálum sem verður í vetur.


Ríkisstjórn án umboðs - tveir kostir

Rísstjórnarflokkarnir guldu afhroð í sveitarstjórnarkosningunum. Umboðið sem Samfylkingin og Vinstrihreyfingin fengu fyrir ári var dregið tilbaka. Í stöðunni eru tveir kostir fyrir ríkisstjórn Jóhönnu Sig. Í fyrsta lagi að boða til kosninga í haust. Í öðru lagi að tileinka sér þjóðstjórnarhugsun.

Kjarni í þjóðstjórnarhugsun er að finna sem breiðustu sátt um mikilvægustu málefnin.

Fyrsta skrefið er að draga umsóknina um aðild að Evrópusambandinu tilbaka - 70 prósent þjóðarinnar er andvíg inngöngu og Brussel helförin er fleinn í þjóðarlíkamanaum. Í íslenskum stjórnmálum verður engin sátt fyrr en umsóknin er dregin tilbaka.


mbl.is Munum halda áfram okkar verki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband