Föstudagur, 31. desember 2010
Ósk um farsæld, líka til samfylkingarfólks
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Föstudagur, 31. desember 2010
ESB-styrkir og stefna Vinstri grænna
Eftirfarandi samþykkt flokksráðs Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs fyrir rúmum mánuði, 20. nóvember, tekur af öll tvímæli um afstöðu flokksins til aðlögunar annars vegar og hins var styrkja frá Evrópusambandinu
Þar til þjóðin hefur tekið sína ákvörðun þarf að tryggja að ekki verði gerðar neinar breytingar á stjórnsýslunni eða íslenskum lögum í þeim eina tilgangi að laga íslenskt stjórnkerfi fyrirfram að reglum Evrópusambandsins. Ekki verði heldur tekið við styrkjum sem beinlínis eiga að undirbúa aðild.
Frétt í Fréttablaðinu í dag um að ráðherra flokksins, Katrín Jakobsdóttir, og Árni Þór Sigurðsson formaður utanríkismálanefndar hafi búið til hjáleið fyrir aðlögunarstyrki er afgerandi og afdráttarlaust brot á samþykkt flokksráðsins.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Föstudagur, 31. desember 2010
Samstaða um stefnuleysi og valdasetu
Ríkisstjórnin býður upp á samstöðu um stefnuleysi. Orðaleppar forystusauða stjórnarinnar eru eingöngu til að fela eina tilgang vinstriflokkana sem er að halda völdum hvað sem á dynur. Ríkistjórnin býður ekki upp á neina framtíðarsýn, er hvorki með stefnu um hvernig skuli endurreisa atvinnulífið né um stöðu Íslands í samfélagi þjóðanna.
Stefnuleysi stjórnarinnar kom fram í jólaboðskap viðskiptaráðherra sem hótaði að gjaldeyrishöft yrðu hér um langa framtíð þjóðin féllist ekki á inngöngu í Evrópusambandið.
Þjóðin mun hvorki sameinast um stefnuleysi ríkisstjórnar Jóhönnu Sig. né valdasetu stjórnarinnar.
![]() |
Hvetja til samstöðu á nýju ári |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 31. desember 2010
ESB-framhjáhald Vinstri grænna
Fréttablaðið segir frá því í gamlársdagsútgáfu að fundin sé lausn á því að veita til Íslands hundruðum milljóna króna frá Evrópusambandinu i ,,upplýsingastarf" og aðlögun Íslands að Evrópusambandinu. Svonefndir IPA-styrkir eru veittir til umsóknarríkja Evrópusambandsins, annars vegar til aðlögunar á laga og regluverki viðkomandi lands og hins vegar til ,,upplýsingamiðlunar," þ.e. til að tryggja framgang málsins meðal almennings.
Ráðherrar Vinstri grænna höfðu þvertekið fyrir að ætla að sækja um IPA-styrki en nú hefur verið hönnuð leið framhjá ráðuneytum til að sækja peningana inn í landið, samkvæmt frétt Fréttablaðsins.
Katrín Jakobsdóttir menntamálaráherra og varaformaður Vinstri grænna er heimild Fréttablaðsins.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Fimmtudagur, 30. desember 2010
Evru-dauði eða Karlamagnúsar uppvakningur
Bloggarar efast evru-dauða. jonas.is reið á vaðið og nokkrir komið í kjölfarið.
Meginatriðið með evruna er eftirfarandi (og, vel að merkja, nærfellt allir í útlöndum eru innan þessara vikmarka): evran fær ekki staðist í núverandi fyrirkomulagi. Annað tveggja gerist að evru-samstarfið liðast í sundur eða að einhvers konar ígildi ríkisfjármálaráðuneyti evru-ríkja taki til starfa.
Nærfellt allir í útlöndum útiloka óbreytta evru. Samfylkingin er einum að halda að evru-samstarf verði með áþekku sniði í framtíðinni.
Fyrirsögnin hér að ofan vísar til þess að síðast var Evrópa með sameiginlegt ríkisfjármálaráðuneyti á dögum Karlamagnúsar sem krýndur var um mannsaldri áður en Ísland byggðist.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 30. desember 2010
2011: þjóðin hafnar vinstristjórinni
Borðið er dekkað fyrir uppsveiflu í efnahagslífinu næsta ár, ekki vegna ríkisstjórnarinnar heldur þrátt fyrir hana. Þjóðin mun sannfærast um að vinstristjórnin sé dragbítur á endurreisn og krefjast kosninga til að losna við þá gráhærðu og rauðsköllótt.
Spurningin er aðeins hvort það gerist á útmánuðum eða hvort hryllingurinn lafir fram á haust.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 30. desember 2010
Spunaverk Samfylkingar og æra blaðamanns
Samfylkingin kom því á framfæri fyrir tveim dögum að forysta Framsóknarflokksins væri með tilboð um nýtt atvinnuvegaráðuneyti. Af hálfu Samfylkingarinnar þjónaði spuninn tvíþættum tilgangi. Annars vegar að setja þrýsting á hugsjónafólk í þingliði Vinstri grænna sem staðið hefur upp í hárinu á ríkisstjórninni og hins vegar að kanna hvaða áhrif ráðuneytisbeita hefði á Framsóknarflokkinn.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins benti á samfylkingartenginguna, bloggarann Gísla Baldvinsson og blaðamanninn Val Grettisson.
Valur ber sig illa undan orðum Sigmundar Davíðs og birtir yfirlýsingu um málið.
Valur andmælir því að vera spunasveinn Samfylkingarinnar. Blaðamaðurinn á Baugsmiðlinum er spaugari og skrifar þetta: ,,Ég er engum háður nema lesendum Vísis."
Gísla þáttur Baldvinssonar er enn óupplýstur. Jóhanna Sig. kallað hann sögusmettu og Gísli þegir sem fastast.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fimmtudagur, 30. desember 2010
Jóhanna segir Gísla Baldvinsson sögusmettu
Gísli Baldvinsson bloggari fær kaldar kveðjur frá forsætisráðherra sem segir hann sögumettu. Fyrir tveim dögum sagðist Gísli hafa það staðfest úr tveim áttum að Framsóknarflokknum hafi verið boðið nýtt atvinnuvegaráðuneyti kæmu þeir til liðs við ríkisstjórnina.
Framsóknarflétta Össurar og Jóhönnu gekk ekki upp vegna þess að Framsóknarflokkurinn hafði ekki áhuga.
Það er ekki fallegt af Jóhönnu Sig. að uppnefna fótgönguliðana sína sögusmettur.
![]() |
Jóhanna blæs á framsóknarsögur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 30. desember 2010
Vælubíladeild Sjálfstæðisflokksins
Vælubíladeild Sjálfstæðisflokksins er skipuð fólki sem tapaði kosningum á síðasta landsfundi flokksins þegar afgerandi meirihluti flokksmanna samþykkti tillögu um að draga ætti tilbaka aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu.
Vælubíladeildin er skipuð fólki eins og Ólafi Stephensen ritstjóra Fréttablaðsins, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur þingmanni, Guðlaugi Þór Þórðarsyni þingmanni, Ragnheiði Ríkharðsdóttur þingmanni, Árna Þór Sigfússyni bæjarstjóra gjaldþrota Reykjanesbæjar, Jórunni Frímannsdóttur borgarfulltrúa og Þorsteini Pálssyni fyrrv. formanni flokksins.
Þrjár tengingar eru sterkar á milli einstaklinga innan vælubíladeildarinnar. Auk þess að vera aðildarsinnar telja þau samstarf við Samfylkinguna besta kostinn í íslenskum stjórnmálum og hafa þar af leiðandi ekkert lært af hrunstjórninni. Í þriðja lagi eru nær allir í vælubíladeildinni brenndir af útrásinni, sumir skaðbrenndir.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 30. desember 2010
Austur-Evrópsk spilling
Alþjóðaútgáfan af Spiegel veitir innsýn gerspillta stjórnarhætti í Úkraínu þar sem lög og reglur eru í þágu auðkýfinga sem eru með stjórnmálamenn sem strengjabrúður. Úkraína liggur í þjóðbraut gasflutninga frá Rússlandi til Vestur-Evrópu og útgangspunktur umfjöllunar Spiegel er deilur landanna tveggja um hvað eigi að koma í hlut Úkraínu fyrir að leggja til land undir flutningana.
Veturinn 2009 urðu deilur milli Rússa og Úkraínumanna til þess að gasflutningar stöðvuðust til Vestur-Evrópu. Spiegel rekur deilurnar og hvernig samkomulag milli stjórnvalda hafði áhrif á viðskiptahagsmuni auðmanna.
Þegar stjórnarskipti urðu í Úkraínu komust þeir til valda sem töpuðu á samkomulaginu 2009 og endaskipti voru höfð á málum til að ,,réttir" auðmenn fengju sinn hlut af milljörðunum sem Vestur-Evrópa borgar fyrir gas frá spillta austrinu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)