Fimmtudagur, 28. janúar 2010
Vextir niður, krónan styrkist þrátt fyrir Icesave
Jóhanna Sig. og Steingrímur J. sögðu engar líkur á lækkun vaxta og hvað þá sterkari krónu nema við samþykktum drápsklyfjar Icesave-samningsins. Í gær lækkuðu vextir og í dag styrktist krónan.
Yfirlýsingar og hótanir stjórnarinnar um að landið verði ekki byggilegt nema fallist verði á kröfur Breta og Hollendinga eru dæmi um pólitíska taugaveiklun sem bítur helst þá er gefa sig móðursýkinni á vald.
Jóhanna Sig. og Steingrímur J. biluðu þegar á reyndi. Í stað þess að leggjast á árarnar með þjóðinni tóku þau að sér að vinna fylgi við málstað gömlu nýlenduþjóðanna.
![]() |
Gengi krónunnar styrktist um 0,5% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Fimmtudagur, 28. janúar 2010
Öskjuhlíðin, Pálmi og Baugur
Pálmi Haraldsson starfaði hjá Grænmetisfélaginu. Eftir að hann eignaðist félagið, eflaust löglega, átti hann fundi í Öskjuhlíðinni með öðrum heildsölum grænmetis til að ákveða verð til neytenda. Öskjuhliðarsamsærið komst upp og menn voru dæmdir, bæði fyrir dómi og af almenningi.
Öskjuhlíðarreynsla Pálma leidd til áhuga hans á að eignast fjölmiðla, til að stjórna umræðunni. Samstarf hans og Jóns Ásgeirs Baugsstjóra var m.a. um fjölmiðladeildina Fréttablaðið/Stöð 2.
Í hádegisfréttum RÚV í dag sakaði Pálmi bústjóra Fons, sem Pálmi átti fyrir gjaldþrot, að gera ýtrustu kröfur fyrir hönd búsins vegna þess að bústjórinn hefur hag af því að málið dragist á langinn. Pálma svíður að sjá einhvern maka krókinn. Sjálfur er Pálmi strangheiðarlegur og má ekki vamm sitt vita.
![]() |
Pálmi: Öll skilyrði fyrir arðgreiðslu fyrir hendi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 28. janúar 2010
Siðleysi bankamanna
Ólafur Ólafsson er aðalhöfundurinn að leikritinu um arabíska furstann sem ,,keypti" hlut í Kaupþingi kortéri fyrir hrun til að hækka hlutabréfaverð. Ólafur var stjórnarformaður og einn stærsti eigandi bankans. Gjörningurinn er til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara.
í gær bárust fréttir að Ólafi hafi verið gert kleyft að eignast á ný Samskip sem var grunnurinn að veldi hans. Áður var skipafélagið í eigu samvinnuhreyfingarinnar en Ólafur var hluti af fámennum hópi manna sem sölsaði undir sig eigur félagsmálahreyfingarinnar sálugu.
Arion banki aðstoðaði Ólaf við að leysa til sín Samskip. Bankamenn virðast siðlausir í bókstaflegri merkingu orðsins; þeir hafa enga siði. Bankamenn eru varla svo skyni skroppnir að vita ekki að án siða og siðvitundar virkar samfélagið ekki. Hrunið varð vegna þess að menn eins og Ólafur misþyrmdu illilega meginþáttum siðaðs samfélags, trausti og trúnaði.
Menn eins og Ólafur komast til álna vegna þess að almenningur virðir meginreglur samfélagsins um að samningar skuli standa, helgi eignarréttarins og skilvísi. Ólafur og hans kónar gefa dauðann og djöfulinn í siði samfélagsins.
Hvernig dettur Arion banka að þjónusta einn aðalsökudólg hrunsins?
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Miðvikudagur, 27. janúar 2010
Einbeittur brotavilji Fons/Baugs
Fyrsta frétt RÚV í kvöld sagði frá kröfum skiptastjóra Fons um riftun ýmissa fjármálagjörninga. Pálmi Haraldsson átti Fons og hann var helsti viðskiptafélagi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar Baugsstjóra. Í fréttinni sagði m.a. frá milljarði sem fór frá Fons til Jóns Ásgeirs en var reynt að fela í tólf færslum í bókhaldinu.
Sóðaskrá útrásarmanna lengist stöðugt og verður ljótari. Samt sem áður eru þessi kónar í viðskiptum hér á landi og ætlast jafnvel til þess að fá afskrifaðar skuldir.
Það verður að segja stopp við þessa menn. Ef við látum þá ekki gjalda fyrir gjörðir sínar munu þeir endurtaka leikinn. Samfélag sem verðlaunar lygi og þjófnað á sér ekki viðreisnar von.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Miðvikudagur, 27. janúar 2010
Lánafíklar og útrásarlið
Samtök atvinnulífsins og ASÍ krefjast lægri vaxta strax til að almenningur og fyrirtæki drífi sig í lántökur. Sömu samtök krefjast þess að við skrifum upp á Icesave-samningana jafnvel þótt þeir séu handónýtir og stefna okkur í skuldafen. Ástæðan? Jú, til að ríkissjóður fái lán frá útlöndum.
Aðgangur að ódýru lánsfé var nammibarinn sem gerði útrásina mögulega. Kannski tímabært að halda að sér höndum í lántökunni?
![]() |
Íslendingar ættu ekki að taka meiri lán |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 27. janúar 2010
Veit Steingrímur J. af þessu?
Systurflokkar Vinstri grænna á Norðurlöndum eru ekki á því að láta Hollendinga og Breta ákveða hvort lána eigi Íslendingum. Meiri reisn er yfir norrænum vinstri grænum en formanni flokksins hér heima sem nánast biður Breta og Hollendinga að lemja ærlega á Íslendingum til að bjarga pólitískum ferli formannsins sem nú situr stól fjármálaráðherra.
Steingrímur J. er kominn út í horn.
![]() |
Vilja að Íslendingar fái lán strax |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 26. janúar 2010
Landnámið og aðildarsinnar
Fréttin um afrakstur rannsókna á Hofstöðum í Mývatnssveit rifjar upp áhlaup aðildarsinna á Íslandssöguna síðast liðið haust. Af óútskýrðum ástæðum er Evrópusambandssinnum í nöp við viðurkennda þekkingu á landnámi Íslands og grípa hvert tækifæri til að gera hana tortryggilega.
Í haust skrifaði Páll Theodórsson eðlisfræðingur grein í Skírni um að landnámið væri 200 árum eldra en almennt er viðurkennt. ESB-RÚV hélt ekki vatni yfir Páli og átti við hann ítarlegt viðtal. Illugi Jökulsson tók undir og leyndi ekki gleði sinni.
Í lok nóvember efndi Reykjavíkurakademían til málþings um kenningar Páls. Fræðileg slátrun er milt orðalag yfir meðferðina sem Páll fékk hjá raunvísindamönnum og hugvísindamönnum.
Síðan eru aðildarsinnar fámálir um landnámið.
![]() |
Tímamót í íslenskri fornleifafræði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 26. janúar 2010
Viðskiptalegt siðferðisvottorð
Á sama tíma og sérstakur saksóknari rannsakar brot útrásarauðmanna eru eigurnar sem urðu til með vafasömum hætti á útsölu. Útrásarmenn og meðhlauparar þeirra ásælast þessar eigur og munu meðal annars beita fyrir sér þeim rökum að ekki megi mismuna áhugasömum kaupendum.
En það á einmitt að mismuna. Það á ekki að líðast að útrásaraðallinn stundi áfram viðskipti. Það á að spyrja um viðskiptalegt siðferðisvottorð þessara manna.
Það mun taka lengri tíma að uppfæra sakavottorð útrásarmannaanna til samræmis við glæpina sem þeir frömdu. Viðskiptalegt siðferðisvottorð liggur meira og minna fyrir því það er ferlisskráin síðasta áratug.
![]() |
Húsleit á 12 stöðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 26. janúar 2010
Aðeins samið án Steingríms J.
Steingrímur J. stendur í vegi fyrir nýjum Icesave-samningi. Hann ber aðalábyrgðina á þeim fyrri og hefur margítrekað að betri samning sé ekki hægt að fá. Steingrímur J. hefur pólitíska hagsmuni af því að ekki fáist betri samningur.
Ríkisstjórnin reyndi að leiða stjórnarandstöðuna í gildru með því að leggja málið upp þannig að Bretar og Hollendingar krefðust þess að allir flokkar gæfu skuldbindandi loforð um að fallast á helstu kröfur þeirra í Icesave áður en gengið yrði til samninga að nýju. Jóhönnustjórnin hefur áður leikið þann leik að segja kröfu viðsemjenda okkar þessa eða hina, t.d. að samningnum skyldi haldið leyndum.
Jóhönnustjórnin reynir að kaupa sér tíma. Síðasta útspil er hugmynd um að fresta atkvæðagreiðslu vegna skýrslu rannsóknanefndar alþingis um hrunið.
![]() |
Samið á nýjum forsendum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 25. janúar 2010
Kúltúrkampf Samfylkingar
Samfylkingarvæðing samfélagsins fór af sporinu er óinnvígður var settur í stól stjórnar bankaráðs Íslandsbanka, skrifar Andrés Jónsson almannatengill og samfylkingarmaður. Á Andrési er að skilja að ríkisstjórnin eigi að skipa yfirlýsta flokksmenn í embætti en ekki aðra.
Samfylkingin sjanghæaði stjórnkerfinu inn í Evrópuferli sem meirihluti þjóðarinnar er andsnúinn og þingmenn Vg þvingaðir til að samþykkja í sumar. Óþurftarverkið elur á tortryggni milli manna og flokka og ætti að vera Samfylkingu víti til varnaðar.
Þegar jafnvel dagfarsprúðir menn og hófstilltir eins og Andrés leggja fram óbilgjarnar kröfur undirstrikar það valdatæknilegt eðli Samfylkingarinnar. Verkefni flokksins er að raða á garðana. Alþýðuflokkurinn gamli sem Vilmundur Gylfason þekkti er endurfæddur.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)