Mánudagur, 12. september 2016
Flóttamenn ferðast til landa sem ofsækja þá
Flóttamenn koma til Evrópu oft undir því yfirskini að þeir séu ofsóttir í heimalandi sínu. Þýska útgáfan Die Welt segir að brögð séu að því að flóttamenn sem fá hæli í Þýskalandi takist á hendur ferðalög til heimalanda sinna, sem aftur bendi til að þeir hafi fengið hæli á fölskum forsendum.
Flóttamenn frá löndum eins og Sýrlandi, Afganistan og Líbanon fá hæli í Þýslandi, komast á atvinnuleysisskrá og fá bætur. Reglur um atvinnuleysisbætur eru þær að ef bótaþegi fer í ferðalag þarf hann að tilkynna hvert hann fer og hve lengi.
Die Welt er með staðfestar heimildir frá atvinnuleysisstofnun í Berlín að flóttamenn takist á hendur ferðalög til ríkja sem þeir flúðu frá. En vegna laga um persónuvernd eru þessar upplýsingar ekki samkeyrðar við gagnagrunn stofnana sem sjá um málefni flóttamanna.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 11. september 2016
Frjálslyndi verður að fordómum hjá Samfylkingu
Kona á besta aldri nær kosningu í þriðja sæti í prófkjöri Samfylkingar er færð niður um tvö sæti sökum aldurs.
Samfylkingin gefur sig út fyrir að vera frjálslyndur flokkur en setur sér reglur sem kynda undir fordómum.
Frjálslyndi sem endar í fordómum er vitanlega ekkert frjálslyndi. Nema hjá jafnaðarmannaflokki þar sem sumir eru jafnari en aðrir.
![]() |
Hundfúlt að vera lækkuð niður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 11. september 2016
Menn með skoðanir sigruðu í prófkjöri - skoðanaleysi tapaði
Menn með skoðanir, Óli Björn í SV-kjördæmi og Ásmundur í Suðurkjördæmi, sigruðu í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í gær. Stærsti sigurvegarinn, Páll Magnússon, getur þakkað árangurinn gífurlega sterku baklandi í Vestmannaeyjum.
Skoðanaleysi tapaði, að ekki sé talað um rangar skoðanir af pírataætt.
Eftir hrun varð skoðanaleysi áberandi meðal hægrimanna. Þeir óttuðust að hafa rangar skoðanir og kusu því margir hverjir að hafa ekki neina. Sumir drógust með kjölsogi vinstrimanna sem aldrei eru hræddir við skoðanir en hafa þær flestar rangar. Þeim skoðunum var hafnað í gær.
Þeir sem ætla sér hlut í stjórnmálum verða að hafa skoðanir.
![]() |
Harma niðurstöðuna í Kraganum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Sunnudagur, 11. september 2016
RÚV: Sigurður Ingi bjóddu þig fram, gerðu það
Fréttamaður RÚV nánast grátbað Sigurð Inga að bjóða sig fram gegn formanni Framsóknarflokksins, Sigmundi Davíð. RÚV vísaði í ónafngreinda heimildamenn í Framsókn sem lofuðu Sigurði Inga stuðningi. Ónafngreindur stuðningur er harla lítils virði innanflokks, nema þegar RÚV endurvarpar þeim stuðningi á öldum ljósvakans.
RÚV er í herför gegn Sigmundi Davíð. Mælikvarðinn á það hvort herförin heppnast er hvort tekst að hrekja Sigmund Davíð úr stjórnmálum eða ekki. RÚV hannar fréttir af Framsókn til að gera formanninn tortryggilegan.
Í síðustu viku var Eygló Harðardóttir félagsmálaráðherra formannskandídat RÚV í Framsóknarflokkum og þá var Sigurður Ingi kallaður fitubolla af fréttamanni RÚV. Ein vika í pólitík er langur tími og sú síðasta sýndi Eygló pólitískan liðlétting. RÚV flutti óðara stuðning sinn yfir á Sigurð Inga; nú fær hann rauða teppið og drottningarviðtöl á Efstaleiti.
Fyrirsögnin á pólitískri viku Sigurðar Inga er þessi: Frá uppnefni til frægðar - allt í boði RÚV.
![]() |
Þetta var hreinskiptinn fundur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 07:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Laugardagur, 10. september 2016
Zizek: við og múslímar erum ólík
Heimspekingurinn Slavoj Zizek varar vinstrimenn við því að taka fagnandi holskeflu flóttamanna frá miðausturlöndum og Norður-Afríku. Þeir eru góðir grannar, segir Zizek, en við eigum ekki að taka þá inn í evrópska heimilið - þeirra menning þrífst ekki innan veggja þeirrar evrópsku.
Zizek er heimspekingur og kemur úr marxískri hefð. Hann kynnir um þessar mundir nýja bók, Andóf gegn tvöfaldri þvingun, sem fjallar um afstöðuna til flóttamanna. Í viðtali segir Zizek að kristni boðskapurinn, að elska náunga sinn eins og sjálfan sig, feli ekki í sér að náunginn yfirtaki heimili manns.
Garður er granna sættir, heitir það á íslensku, og best að þeir múslímsku sitji áfram heimkynni sín fremur en að þeir verði til vandræða á vesturlöndum. Menning vesturlanda og múslímamenning eru andstæður og þrífast ekki í sama samfélagi.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 15:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 10. september 2016
Píratar þurfa sálfræðing til að skilja orð
Orð eru dálítið misskilin inna Pírata, segir Ásta Guðrún þingmaður, og því þurfti þingflokkurinn vinnustaðasálfræðing til að útskýra merkingu orða.
Sálfræðingum er margt gefið en orðskýringar er ekki sérsvið þeirra. Flestir fullorðnir skilja orð, og það er eitt einkenni fullorðinna að þeir skilja mælt mál.
En Píratar þurfa sem sagt sálfræðing til að útskýra merkingu orða.
![]() |
Hvað ertu að meina með þessu? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 10. september 2016
Pútín sigrar í Sýrlandi - niðurlægir Obama
Ófriðurinn í Sýrlandi varð að stríði þegar Bandaríkin/Nató ákváðu að koma Assad Sýrlandsforseta fyrir kattarnef fyrir fimm árum. Stríðið var álíka illa undirbúið og innrás Bandaríkjanna/Nató í Írak árið 2003.
Samhliða valdaskaki í miðausturlöndum reyndu Bandaríkin/Nató í samvinnu við Evrópusambandið að klekkja á Rússum með íhlutun í Úkraínu, næsta nágranna Rússlands, og koma sér þar upp bandamanni.
Pútín Rússlandsforseti hóf afskipti af Sýrlandsstríðinu vegna Úkraínu. Með stuðningi við Assad Sýrlandsforseta sýndi Pútín Bandaríkjunum fram á að Washington er ekki höfuðborg alheimslögreglunnar sem ákveður innanríkismál annarra þjóða. Þar fyrir utan sýndi Pútín Obama Bandaríkjaforseta fram á að Rússland er enn stórveldi og getur sett mark sitt á stöðu alþjóðamála.
Fundur utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Rússlands um frið í Sýrlandi og sameiginlega baráttu gegn hryðjuverkaöflum er stórsigur Pútíns. Bandaríkin/Nató og Evrópusambandi eru með Rússland í viðskiptabanni vegna Úkraínudeilunnar. Til stóð að einangra Rússa á alþjóðavettvangi og knýja þá til að gefa Bandaríkjunum/Nató og ESB Úkraínu. Styrkur Rússa í Sýrlandi er Pútín nauðsyn vegna Úkraínudeilunnar.
Þýska útgáfan FAZ upplýsir tölfræði stríðsins, um 290 þúsund dauðir og helmingur sýrlensku þjóðarinnar á flótta. Einhver ófriður hefði orðið í Sýrlandi hvort sem stórveldin skiptu sér af eða ekki. En án afskipta stórveldanna hefði stríðið ekki orðið jafn skelfilegt og raun ber vitni.
![]() |
Komust að samkomulagi um vopnahlé í Sýrlandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 9. september 2016
Birgitta og heimilisofbeldi Pírata
Í vetur varð Birgitta Jónsdóttir að biðja óbreyttan pírata afsökunar á framferði sínu. Samþingmaður Birgittu, Helgi Hrafn, kallaði sambúðina við Birgittu ofbeldissamband.
Ástandið í þriggja manna þingflokki Pírata var svo slæmt að kallaður var til vinnustaðasálfræðingur að lægja öldurnar.
Enn á ný er Birgitta í miðju heimilisofbeldi Pírata og grefur í leiðinni undan lýðræðislegu vali á framboðslista flokksins.
En Píratar ætla sér auðvitað að stýra landinu eftir næstu kosningar í sátt við guð og menn.
![]() |
Birgitta hafnar ásökunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 9. september 2016
Ráðhúsið: af hverju borða þau ekki kökur í leikskólum?
Vinstrimenn og Píratar, sem stjórna ráðhúsinu í Reykjavík, sjá til þess að maturinn sé þar bæði ríflegur og gómsætur, samkvæmt DV/Pressunni.
Öðru máli gegnir um kostinn sem boðinn er í leikskólum borgarinnar. Þar gildir naumhyggjan.
Valdastétt vinstrimanna og Pírata í ráðhúsinu forgangsraðar ekki beinlínis í þágu smáfólksins.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 9. september 2016
Aþjóðastjórnmál stefna í tvær gagnstæðar áttir
Fríverslunarsamningur Bandaríkjanna og Evrópusambandsins er afurð alþjóðavæðingar síðustu áratuga sem má kenna við samrunaþróun.
Alþjóðavæðing á undir högg að sækja, ekki síst vegna óánægju almennings á vesturlöndum með vaxandi misskiptingu auðs, sem alþjóðavæðing í orði kveðnu skapar.
Á meðan Evrópusambandið reynir að halda lífi í alþjóðavæðingunni, samanber orð Merkel um fríverslunarsamninginn, boðar sambandið hraða úrsögn Breta í framhaldi af Brexit-atkvæðagreiðslunni í sumar.
Kerfi alþjóðastjórnmála, sem byggt var upp eftir seinna stríð, getur ekki að óbreyttu stefnt í gagnstæðar áttir. Eitthvað mun gefa eftir og líklega verður það með hvelli.
![]() |
Vill meta stöðuna að loknum viðræðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)