Miðvikudagur, 21. desember 2016
Öryggishnappar til kvenna vegna fjölmenningar
Nýjársnótt í fyrra urðu þúsundir þýskra kvenna fyrir árásum karla úr múslímskum menningarheimi þar sem litið er á konur sem annars flokks borgara.
Nú á að dreifa öryggistækjum til kvenna í Austurríki til að þær geti gert aðvart þegar á þær er ráðist.
Næsta skerf í nafni fjölmenningar er að biðja konur að ganga í búrkum og fara ekki út fyrir hússins dyr nema í fylgd karlmanns úr fjölskyldunni.
![]() |
Sex þúsund konur fá viðvörunartæki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Miðvikudagur, 21. desember 2016
Guardian um RÚV-óheppni Sigmundar Davíðs
Sigmundur Davíð er óheppnasti þjóðarleiðtogi heimsins, segir breska útgáfan Guardian í umfjöllun um áhrif Panamaskjalanna. Óheppnin felst í því að RÚV gerði Sigmund Davíð fyrirsát, fékk hann í viðtal á fölskum forsendum, og boðaði til mótmæla á Austurvelli í beinni útsendingu. Sigmundur Davíð kom illa út í fyrirsátinni og nógu margir vildu trúa því versta upp á forsætisráðherra. RÚV bjó til og fóðraði tortryggnina með ótal fréttum.
Guardian hafði aðgang að sömu Panamaskjölum og RÚV. Niðurstaða blaðamanna Guardian er skýr og ótvíræð:
Guardian hefur ekki séð neinar sannanir fyrir skattaundanskotum eða óheiðarlegum ávinningi Sigmundar Davíðs, Önnu Sigurlaugar eða Wintris.
RÚV fékk nógu marga til að trúa stórglæpum upp á Sigmund Davíð og Önnu og bjó til félagsleg sannindi, byggðum á ýkjum, hálfsannleik og beinum lygum, sem leiddu til afsagnar forsætisráðherra.
Guardian dregur réttar ályktanir af RÚV-aðförinni: vegna hennar situr Ísland uppi með stjórnarkreppu.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 10:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (28)
Þriðjudagur, 20. desember 2016
Lygar sem félagsleg sannindi
Ef nógu margir trúa einhverju ósönnu verða til félagsleg sannindi. Töluvert margir trúðu því að Donald Trump ætti ekki verða forseti, jafnvel þótt sigraði í forsetakosningunum.
Í framhaldi urðu til þau félagslegu sannindi að Trump fengi ekki öll þau atkvæði í kjörmannaráðinu sem formlega kýs forseta.
Nú þegar félagslegu sannindin um kjörmannaatkvæðagreiðsluna eru afhjúpuð fyrir það sem þau eru, þ.e. lygar, má búast við nýjum tilbrigðum við sama stef. Til dæmis að Pútín Rússlandsforseti hafi mútað kjörmönnunum.
![]() |
Staðfestu Trump í embætti forseta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 20. desember 2016
Bílsskúrssýning Landsspítala
Bílageymsla Landsspítala var vettvangur uppfærslu um að spítalinn sé ónýtur. Núna eru gangar og stofur sviðstjöld spítalans.
Þingmenn eru orðnir þreyttir á farandsýningum spítalans.
Þjóðin eflaust líka.
![]() |
Leiksýning á Landspítala? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þriðjudagur, 20. desember 2016
Sigmundur Davíð réttir RÚV sáttarhönd: óháð rannsókn
Sigmundur Davíð tekur vel í tillögu Björns Bjarnasonar um óháða rannsókn á fréttaflutningi RÚV um Framsóknarflokkinn. Á Eyjunni segir Sigmundur Davíð að ríkisrekin fréttastofa eins og RÚV búi ekki við neitt aðhald þar sem efnistök og framsetning frétta eru metin m.t.t. hlutlægni og fagmennsku.
RÚV getur ekki skákað í því skjóli að vera eins og hver annar fjölmiðill. Einkarekinn fjölmiðill getur haft sína hentisemi í áherslum og pólitík en ekki ríkisrekinn:
Áhugamenn um ákveðna stjórnmálastefnu geta stofnað fjölmiðil til að reka sína stefnu en það er ekki hægt að ríkisvaldið neyði fólk til að greiða til stofnunar án þess að tryggt sé að hún fari að lögum og gæti hlutlægni. Með því er um leið verið að veikja rekstrargrundvöll annarra fjölmiðla þannig að sérstaðan er mikil.
Það er mikilvægt að almenningur hafi aðgang að áreiðanlegum fréttum um gang mála í samfélaginu en það getur ekki verið hlutverk ríkisfjölmiðils búa til fréttir og atburðaráðs og nota stoðu sína til að ná fram ákveðnum markmiðum fyrir sjálfa sig eða utanaðkomandi samstarfsmenn.
Forysta Framsóknarflokksins hefur mátt sitja undir uppnefnum starfsmanna RÚV og fáránlegum fréttaflutningi sem er hannaður til þess eins að sá fræjum tortryggni. Núna síðast efndi RÚV til óvinafagnaðar vegna 100 ára afmælis flokksins.
Óháð rannsókn á vinnubrögðum RÚV í málefnum Framsóknarflokksins er löngu tímabær.
![]() |
Bað ekki um efni viðtalsins fyrirfram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Mánudagur, 19. desember 2016
Múslími krossfestir Rússa
Ljósmynd af dauðvona sendiherra Rússlands á sýningargólfi í höfuðborg Tyrkjaveldis eftir skotárás múslímalögreglu á frívakt verður sameiningartákn menningarheims sem nær frá Washington í vestri til Moskvu í austri.
Sendiherrann liggur eins og krossfestur á gólfinu eftir að hafa verið skotinn í bakið.
Myndmál er öllum textum ofviða. Tilræðið og ljósmyndin er stærsti pólitíski atburður ársins. Afleiðingarnar eru ófyrirséðar í smáatriðum en verða skelfilegar í heild sinni.
![]() |
Lögreglumaður á frívakt skotmaðurinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 19. desember 2016
Dauði karlmennskunnar og kvennastríð
Fyrri heimsstyrjöld var að hluta viðbragð við kreppu karlmennskunnar. Langvarandi friður, fyrsta bylgja kvenvæðingar samfélagins og glataðar hugsjónir riddaramennsku vöktu löngun evrópska karla að stríða sumarið 1914. Röng beygja bílstjóra Frans Ferdínand og Soffíu í Sarajevo þótti hentug tylliástæða.
Karlarnir ætluðu að vísu að vera komnir heim fyrir jól til mömmu eða eiginkonu en stríð vilja dragast á langinn.
Þegar konur eru orðnar fangelsislimir vegna hermennsku, eins og þessi danska, á meðan karlar sitja heima í friði, er hægt að tala um dauða karlmennskunnar.
Dálkahöfundur Die Welt veltir fyrir sér hvort við lifum forstríðsdaga þessi misserin. Höfundurinn lýsir upplausn gilda kaldastríðsáranna, þegar vestræni heimurinn naut friðar í skjóli kjarnorkuógnar. Óglöggur munur sé á hryðjuverkum og ,,viðurkenndum" stríðum og aðstæður allar óskýrar án viðmiðana.
Sterkara kynið býr yfir meiri félagslegum hæfilegum en það veikara, sem er frekar einfalt og ratar illa í völundarhúsi tilverunnar með fleiri viðkomustaði en fyrir át, áfengi og kynlíf. Að sama skapi er sterkara kynið ekkert endilega marksækið. Skilgreining á endastöð er óljós, eins og allir vita sem orðið hafa vitni að konu í verslunarmiðstöð.
Kvennastríðið yfirvofandi getur ekki orðið annað en ólíkt karlahernaði. Fyrir karlinn verður lífið með orðum Hobbes: einmannalegt, fátæklegt, illkvittið, ofbeldisfullt - og stutt. Enda karlinn tilgangslaus án karlmennsku.
![]() |
Dönsk stjórnvöld sökuð um hræsni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Mánudagur, 19. desember 2016
Samfylking - þögnin um turninn sem varð hola
Samfylkingin var stofnuð um aldamótin til að verða ,,hinn turninn" í stjórnmálum - valkostur við Sjálfstæðisflokkinn. Kosningasigurinn 2009, þegar flokkurinn fékk 30 prósent fylgi, gaf flokknum færi á að leiða ríkisstjórn vinstrimanna.
Þingkosningarnar 2013 skiluðu flokknum 12,9 prósent fylgi og við kosningarnar í haust var flokkurinn við það að þurrkast út af alþingi, fékk 5,7 prósent atkvæðanna.
Lítil umæða er um hrun Samfylkingarinnar og engin meðal flokksmanna. Ekkert uppgjör, engin sjónarmið um hvað fór úrskeiðis og hvers vegna. Það þykir bara sjálfsagt að í tvennum kosningum verði turn að holu.
![]() |
Fylgishrun hjá Samfylkingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 18. desember 2016
RÚV með neitunarvald gagnvart Framsókn
Í formannsþætti RÚV fyrir kosningar fékk Sigurður Ingi spurningu frá Efstaleitismanni um það hvort Sigmundur Davíð kæmi til greina sem ráðherra í ríkisstjórn sem Framsókn ætti aðild að. Sigurður Ingi varð klumsa við og fór undan í flæmingi. Spurningin var í hæsta máta óviðeigandi og lýsti andstyggð fréttamannsins á Framsóknarflokknum.
Formaður Framsóknarflokksins segist ekkert skilja í því hvers vegna aðrir flokkar vilja ekki ræða við flokkinn um myndun ríkisstjórnar:
Hann sagðist ekki hafa skýringar á því hvers vegna aðrir flokkar hafi ekki leitað samstarfs við Framsóknarflokkinn, enginn fulltrúa hinna flokkanna haft sagt við hann hverju það sætti.
Svarið er fjarska einfalt. Enginn hinna flokkanna, að Sjálfstæðisflokknum frátöldum, þorir að styggja RÚV. Síðustu daga dundar Gróa á Efstaleiti sér við að herja á fráfarandi formann Framsóknarflokksins með þráhyggjukenndum hætti sneisafullum af illvilja.
Björn Bjarnason fyrrverandi ráðherra leggur til að farið verði í saumana á fréttaflutningi RÚV um Framsóknarflokkinn og Sigmund Davíð. Hann segir ,, allt annað en þægilegt fyrir hlustendur að verða vitni að þessu stöðuga stríði."
![]() |
Hefði gengið betur með Framsókn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 18. desember 2016
Pútín, kristni og byltingin 1917
Rússneska byltingin fagnar aldarafmæli á næsta ári. Byltingarnar voru tvær, í febrúar, sem afgreiddi 300 ára keisaratíma Romanov-ættarinnar, og í október, sem leiddi til valdatöku Leníns og 70 ára tímabils kommúnisma.
Rússar eru klofnir í afstöðu sinni til byltingarinnar. Lenín liggur ljómaður í grafhýsi sínu en vesturgluggi Rússlands, borgin sem hét Leníngrad, fékk sitt gamla heiti eftir fall kommúnismans, Pétursborg.
Kommúnismi er evrópsk hugmyndafræði. Þýski gyðingurinn Karl Marx er aðalhöfundur hennar. Kommúnisminn tók við af annarri evrópskri hugmyndafræði sem Rússar ánetjuðust á víkingaöld, kristni.
Pútín forseti Rússlands er gagnrýninn á rússnesku byltinguna, samkvæmt Guardian, þótt ekki sé afstaðan einörð.
Rússneska rétttrúnaðarkirkjan er aftur ákveðinn í afstöðu sinni til fordæmingar á hugmyndafræði Marx. Hennar maður er Valdimar mikli sem stofnaði til kristni í Kænugarði 12 árum áður en Íslendingar kristnuðust. Sagt er að Valdimar tæki rétttrúnaðarkristni fram yfir þá rómversku til að bægja frá þýskum áhrifum. Karlamagnús og afkomendur hans í Frakklandi og Þýskalandi voru í trúarbandalagi við kaþólsku kirkjuna.
Trúarstemningin í Rússlandi er eins og víða fléttuð við þjóðerniskennd. Ívan grimmi réð Rússlandi á 16. öld. Hann myrti son sinn og stundaði fjöldamorð en þótti röskur í trúmálum. Leynilögreglu stofnaði Ívan grimmi til að halda óvinum trúar og ríkisvalds í skefjum. Ívan grimmi fékk styttu af sér afhjúpaða nýverið við fögnuð og lof ríkis sem kirkju.
Pútín Rússlandsforseti dregur dám af þjóðarsögunni. Hann ólst upp við kommúnisma og sá hann hrynja sem foringi í KGB í Austur-Þýskalandi þegar Berlínarmúrinn féll. Afleiðing er að Pútín er meira kristinn en kommúnískur. En fyrst og fremst er hann stjórnmálamaður.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)