Mánudagur, 9. janúar 2017
Súr vínber Vinstri grænna
Vinstri grænir áttu þess kost að mynda ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum. En þingflokkur Vg var sjálfum sér sundurþykkur og bjó ekki að siðferðisþreki til landsstjórnar.
Í stað þess að horfast í augu við eigin mistök freista Vinstri grænir þess að vekja reiðibylgju vegna skýrslu um aflandseignir Íslendinga. Ekkert í skýrslunni er nefnt sem rök fyrir reiðibylgjunni - aðeins tímasetning á útgáfu hennar.
Svandís Svavarsdóttir þingflokksformaður Vinstri grænna er gefin fyrir stórkarlalegar yfirlýsingar. Ásakanir um brot fjármálaráðherra á siðareglum ber að skoða í því ljósi að þrúgurnar í stjórnarráðinu eru súrar, éti maður ekki af þeim sjálfur.
![]() |
Telur Bjarna hafa brotið siðareglur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mánudagur, 9. janúar 2017
Þriðji í þjóðarsorg RÚV - Birgitta tapaði reiðibylgjunni
Þriðji dagur í þjóðarsorg RÚV vegna glataðs tækifæris til reiðibylgju byrjaði með því að gamall RÚV-ari, Óðinn Jónsson, kallaði til vitni sem ásakaði fjármálaráðherra um ósannsögli. Í beinu framhaldi kom önnur frétt sem heggur í sama knérunn.
Birgitta Jónsdóttir pírati segist sitja uppi með stórtap vegna glataðrar reiðibylgju RÚV í samfélaginu. Í samráði við RÚV bjuggu Píratar til ríkisstjórn fyrir kosningar. Reiðibylgja í samfélaginu í október hefði skilað Píratastjórn til valda.
Reiðibylgjan sem ekki varð, og umræðan um hana, er dæmi um hneykslunarstjórnmál sem ekki eru í neinum tengslum við veruleikann. Samkvæmt gildandi reglum um gjaldeyrisviðskipti getur fjögurra manna fjölskylda árlega keypt gjaldeyri fyrir 24 milljónir króna. Þessa peninga má flytja til aflandsfélaga - eða geyma undir koddanum. Allir Íslendingar geta orðið aflendingar í fjármálum.
![]() |
Hefði breytt umræðunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 9. janúar 2017
ESB er aflandsfélag
Evrópusambandið er aflandsfélag sem leyfir skattaundanskot. Forseti framkvæmdastjórnar ESB, Jean-Claude Juncker, var bæði forsætis- og fjármálaráðherra Lúxemborgar, sem er helsta skattaparadís ESB.
ESB-sinnar á Íslandi eru mikið til þeir sömu og telja dauðasynd að Íslendingar eigi peninga í útlöndum. Þessi hópur fólks vill bæði í senn að Íslendingar búi við átthagafjötra i fjármálum en jafnframt að Ísland gangi inn í samband sem er eitt stórt aflandsfélag.
Mótsögnin í málflutningi ESB-sinna verður til sýnis næstu daga þegar umræðan um aðild Íslands að ESB fellur saman við umræðuna um eignir Íslendinga í aflandsfélögum.
![]() |
Evrópumálin sett á ís |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Sunnudagur, 8. janúar 2017
Tveggja daga þjóðarsorg á RÚV
RÚV vildi fá tækifæri í kosningamánuði, október, að brjálast, vekja reiðibylgju í samfélaginu. Í gær harmaði fyrsta frétt RÚV-Sjónvarps að hafa misst af tækifærinu. Í kvöld er sami steinninn klappaður: af hvurju var skýrsla um aflandseignir Íslendinga ekki birt í október?
Snöktið frá Efstaleiti heyrist í hverjum landsfjórðungi. Fólk fyllist samúð yfir tapaðri reiðibylgju RÚV og vinstriflokkanna. Eins og ávallt eru efnisatriðin aukaatriði. RÚV nennir ekki að fjalla um efni skýrslunnar, aðeins tímasetningu á útgáfu hennar. Í áróðursstríði eru efnisatriðin aukaatriði, en tímasetningar aðalatriði.
Á morgun er þriðji dagur í þjóðarsorg RÚV.
![]() |
Þykir þetta ekkert óeðlilegt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 8. janúar 2017
Opið réttlátt samfélag með landamærum
Bretar ætla að loka fyrir viðtöku óhefts straums flóttamanna til að geta búið við opið samfélag og réttlátt. Þetta er meginniðurstaða Brexit og nýrrar stefnu stjórnvalda undir forystu Íhaldsflokks Theresu May.
Réttlátt samfélag sinnir öllum þegnum samfélagsins undir formerkjum samhjálpar og samneyslu. Á móti er þess krafist að allir þegnar samfélagsins viðurkenni grunngildi þess.
Landamæri réttlætis liggja einmitt samhliða landamærum þjóðríkisins.
![]() |
Hlutverk ríkisins að leiðrétta óréttlætið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 8. janúar 2017
Brexit og Áfram-hópurinn
Bretar sögðu já við Brexit og húðfletta ,,sérfræðingana" sem vöruðu við hræðilegum afleiðingum þess að Bretland segði sig úr Evrópusambandinu. Bæði dálkahöfundar Telegraph, sem var fylgjandi Brexit, og Guardian, sem var á móti, taka hart á þessu fólki sem þóttist vita en vissi ekkert.
Hér heima var starfandi hópur fólks sem kallaði sig Áfram. Þetta fólk vildi að Ísland tæki á sig óreiðuslóða einkabanka, Icesave, og skuldsetti óbornar kynslóðir.
Áfram-hópurinn stofnaði stjórnmálaflokkinn Viðreisn sem núna er um það bil að fá sæti í ríkisstjórn. Ólíkt hafast eyþjóðirnar að, Bretar og Íslendingar.
![]() |
Hafði rangt fyrir sér um áhrif Brexit |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 7. janúar 2017
RÚV: við vildum brjálast í október
Fyrsta frétt RÚV-Sjónvarps í kvöld var um tímasetningu skýrslu um aflandseignir Íslendinga. Efnislega sagði fréttin að RÚV vildi fá tækifæri í október, þegar gengið var til kosninga, að brjálast; vekja reiðibylgju í samfélaginu.
Vinstri grænir stökkva á frétt RÚV og vilja þingfund um skýrsluna. Þar mun vangefnasti þingmaður Íslandssögunnar líklegast taka til máls. Sá þingmaður sagði í viðtali á RÚV, auðvitað, að Sigmundur Davíð, þáverandi forsætisráðherra, græfi undan efnahagslegu fullveldi þjóðarinnar.
Nú vill svo til að Sigmundur Davíð er sá stjórnmálamaður sem við eigum helst að þakka að vera efnahagslega fullvalda þjóð. Sigmundur Davíð er aðalhvatamaðurinn að samningum við þrotabú föllnu bankanna sem tryggðu að Ísland varð ekki gjaldþrota.
Vangefnasti þingmaður Íslandssögunnar er aftur á móti dóttir mannsins sem stefndi Íslandi lóðbeint í gjaldþrot með Icesave-samningunum.
Bandalag RÚV og vinstriflokkanna vekur ekki lengur reiðibylgju. Aðeins meðaumkun með fólki sem er faglega og siðferðilega gjaldþrota.
![]() |
Vill fund um eignir í skattaskjólum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Laugardagur, 7. janúar 2017
Góða fólkið, Sigmundur Davíð og skatturinn
Aflandseignir gefa góða fólkinu tilefni til ,,réttlátrar reiði" eins og fulltrúi þess, Þórður Snær Júlíusson orðar það. Þórður Snær gefur sér að aflandseignir séu skattaundanskot og sendir Sigmundi Davíð pillu.
En Sigmundur Davíð og eiginkona hans, Anna Sigurlaug, hafa greitt um 300 milljónir króna í skatta frá 2007. Ef það eru skattaundanskot að borga 300 milljónir í samneysluna þá er hvítt orðið svart.
Góða fólkið er svo upptekið af ,,réttlátri reiði" að það hirðir ekki um sannleikann. Reiðin, hvort heldur réttlát eða ekki, brenglar dómgreindina. Enda dómgreindin ekki sterkasta hlið góða fólksins.
![]() |
Allt að 810 milljarðar á aflandssvæðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (29)
Laugardagur, 7. janúar 2017
Trump og frelsið í opnu samfélagi
Opið samfélag er þegar hver syngur með sínu nefi óáreittur. Opið samfélag er laust undan félagslegri harðstjórn, eins og John Stuart Mill orðaði það í Frelsinu á 19. öld.
Opið samfélag á í vök að verjast, segja menn á borð við George Soros, og hvetja til varna. Siðfræðingar, t.d. Peter Singer, benda á að lygafréttir, sem fá ómælda dreifingu á netinu, grafa undan tjáningarfrelsinu.
En opið samfélag fær ekki þrifist án tjáningarfrelsis, sagði einmitt Mill fyrir 150 árum.
Í Þýskalandi teflir Bernhard Pörksen fram hugtakinu ,,hneykslunarlýðræði" til að lýsa reiðibylgju, ,,shitstorm", sem samfélagsmiðlar kalla reglulega fram í nafni réttlætis, mannúðar og lýðræðis.
Þegar sérhver syngur með sínu nefi í opnu samfélagi er ekki spurt hvort sungið er falskt og ósatt eða laglínu sannleikans fylgt. Aðeins er spurt hvort takist að magna upp reiðibylgju.
Donald Trump og fylgismenn hans framkölluðu reiðibylgju sem skilaði honum embætti forseta Bandaríkjanna.
Trump er boðberi endaloka opins samfélags síðustu alda og áratuga.
Opið samfélag þolir ekki ótakmarkað frelsi.
![]() |
Herferð Rússa hafi engin áhrif haft |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Föstudagur, 6. janúar 2017
Viðreisn í uppreisn gegn formanni sínum
Þingmenn Viðreisnar eru óánægðir með framgöngu formannsins í stjórnarmyndunarviðræðum. Einn þingmanna Viðreisnar setur opinberlega fram fyrirvara við stjórnarsáttmálann - áður en hann er kynntur.
Fyrir liggur að væntanleg ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar/Bf verði með nauman meirihluta á alþingi. Einn þingmaður getur stillt stjórnarmeirihlutanum upp við vegg. Það er ,,drulluerfitt" segir Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Brynjar er allt annað en ánægður með að 21 manns þingflokkur Sjálfstæðisflokkinn fái jafn marga ráðherra og 11 manna þingflokkur Viðreisnar/Bf.
Möguleg ríkisstjórn þessara flokka verður að fyrirgefa þótt tiltrú á henni verði ekki mikil.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)