ESB styður blóðbað í Sýrlandi

Evrópusambandið vill ekki frið í Sýrlandi. Forgangsverkefni ESB er að skipta um ríkisstjórn í Damaskus, bola Assad forseta frá völdum.

Assad sigraði tvennar síðustu kosningar í Sýrlandi. En ESB þykist vita betur en sýrlenska þjóðin hvernig skuli haga málum.

Bandaríkjamenn undir forystu Trump telja ekki lengur forgangsmál að Assad fari frá völdum. Stríðsþreyta gerir vart við sig í Washington eftir misheppnuð afskipti af málefnum Sýrlands, Írak og Líbýu sem öll eru í heljargreipum ofbeldis og stríðsátaka. Brussel skilur ekkert enn.


mbl.is Froða úr munni barnanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hörður Þormar

Assad sigrar í öllum kosningum enda er hann "sómakær augnlæknir" sem hlýtur að hafa skrifað undir Hippókratesar eiðstafinn.foot-in-mouth

Hörður Þormar, 4.4.2017 kl. 22:14

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Vegna þess að ESB sé á móti Assad, á það að vera ESB að kenna að Assad skuli fremja stríðsglæpi á eigin þjóð?  Talsmenn Trump kenna hins vegar Obama um þessa stríðsglæpi!

Dásamlegt, að afhjúpa illvirki ESB og Obama á sama degi!

Síðan stendur að Assad hafi "sigrað kosningarnar."  Það þýðir samkvæmt íslenskri málvenju að kosningarnar biðu ósigur fyrir Assad.  

Ómar Ragnarsson, 4.4.2017 kl. 22:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband