Flóttamenn ferðast til landa sem ofsækja þá

Flóttamenn koma til Evrópu oft undir því yfirskini að þeir séu ofsóttir í heimalandi sínu. Þýska útgáfan Die Welt segir að brögð séu að því að flóttamenn sem fá hæli í Þýskalandi takist á hendur ferðalög til heimalanda sinna, sem aftur bendi til að þeir hafi fengið hæli á fölskum forsendum.

Flóttamenn frá löndum eins og Sýrlandi, Afganistan og Líbanon fá hæli í Þýslandi, komast á atvinnuleysisskrá og fá bætur. Reglur um atvinnuleysisbætur eru þær að ef bótaþegi fer í ferðalag þarf hann að tilkynna hvert hann fer og hve lengi.

Die Welt er með staðfestar heimildir frá atvinnuleysisstofnun í Berlín að flóttamenn takist á hendur ferðalög til ríkja sem þeir flúðu frá. En vegna laga um persónuvernd eru þessar upplýsingar ekki samkeyrðar við gagnagrunn stofnana sem sjá um málefni flóttamanna.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband