Hryðjuverkin eru vegna trúarmenningar

Hryðjuverk múslíma eru sprottin úr trúarmenningu þeirra rétt eins og óhæfuverk nasista voru sprottin úr pólitískri menningu, sem varð allsráðandi í Þýskaland á árunum milli stríða.

Múslímar eru ekki allir hryðjuverkamenn, ekki fremur en að allir Þjóðverjar hafi verið nasistar. En alveg eins og friðsamir Þjóverjar létu nasista ráða ferðinni leyfa múslímar hryðjuverkamönnum að drepa saklaust fólk unnvörpum án þess að hreyfa legg eða lið.

,,Hófsöm múslímatrú er ómöguleg", segir ljóðskáldið Ali Ahmad Said Asbar, betur þekktur sem Adonis. Hann fékk nýverið bókmenntaverðlaun kennd við Erich Maria Remarque sem skrifaði Tíðindalaust á vesturvígstöðvunum, sígilda frásögn um stríðsbrjálæði. Adonis er á níræðisaldri og veit hvað hann syngur: múslímatrú er í grunninn andstæð lýðræði og jafnrétti.

Hlutlægt og yfirvegað mat á ógninni sem stafar af hryðjuverkum múslíma verður að taka rætur grimmdarverkanna með í reikninginn.


mbl.is „Atlaga að lýðræði okkar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Einmitt hr. forseti og því skyldum við una því,án aðgerða t.d. takmarka flóttafólk músslima og bjóða heim kristnum sem fréttir berast af að eru ofsóttir.-Við mótmælum ekki slagorðum þeirra bestu:"Þeir eru fólk eins og við"   

Helga Kristjánsdóttir, 22.3.2016 kl. 23:54

2 Smámynd: Jón Þórhallsson

Það þarf alltaf að gera greinarmun á kristinni trúar-menningu og múslima-ómenningunni þegar að rætt er um trúarbrögð.

Jón Þórhallsson, 23.3.2016 kl. 09:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband