Jón Baldvin og Páll M: Alþýðuflokkurinn nýi

Jón Baldvin Hannibalsson fyrrum formaður Alþýðuflokksins vill endurreisa flokkinn 100 árum eftir stofnun og 15 árum eftir að Samfylkingin yfirtók krataflokkinn. Páll Magnússon fjölmiðlamaður skrifar grein í miðopinu Morgunblaðsins um sama málefni.

Vonbrigði krata með vegferð Samfylkingar eru mikil. Samfylkingin mælist með 7,8 prósent fylgi og situr uppi með formenn sem helst sér vandræði í að fylgi Pírata sé ekki nógu mikið.

Á hinn bóginn er ekki víst að afturhvarf til fortíðar sé lausnin á vanda vinstrimanna. En þegar núið er svart og lítil von um betri tíð er eðlilegt að menn leiti að sögulegum fordæmum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Það má kannski finna ýmislegt í fortíðinni sem gagnlegt gæti talist öllum flokkum.En helst myndi ég halda að "valdreynsluleysi"hafi valdið vinstri mönnum mestum skaða,líkt og gerist í flokkaíþróttum.Það að kunna ekki að stjórna og virða alla borgara þessa lands,líka andstæðinga sína.  

Helga Kristjánsdóttir, 19.3.2016 kl. 17:41

2 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Helga mín. Valdareynsluleysi er án efa stærsti vandinn, í kerfisklikkun heimsveldis-stjórnsýslunnar.

Allir byrja líklega með heiðarleika og hugsjón (Kennedy og co). En enda sem dómslögmanna kúgaðir einstaklingar á taflborði heimsveldis-skepnuskapandi skóla-Páfamafíunnar skattrænandi?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 19.3.2016 kl. 20:18

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Sæl Vinan! Margir tefla upp á jafntefli  með svörtu mönnunum "þegar lítil von er um betri tíð" og menn leita að sögulegu endatafli. Einhversstaðar á leiðinni léku þeir af sér.--   

Helga Kristjánsdóttir, 19.3.2016 kl. 23:18

4 Smámynd: Jón Þórhallsson

"Sá sem getur; hann framkvæmir; sá sem ekki getur; hann kennir".

-B.Show.

Jón Þórhallsson, 20.3.2016 kl. 09:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband