Bandalag SA og ASÍ um skattalækkun fyrirtækja

Forstjórnar landsins krefjast skattalækkunar fyrir fyrirtækin. En það er vitlausasta rástöfun sem hægt er að gera á þenslutíma. Núna kemur forseti ASÍ í fréttir RÚV og krefst hins sama og Samtök atvinnulífsins  - að skattar lækki á fyrirtæki.

Menntun og heilbrigðisþjónusta er greidd með sköttum, lífeyrir aldraðra og öryrkja sömuleiðis. En ASÍ er nákvæmlega sama um velferðarþjónusta - fyrirtækin verði að fá sitt.

Fjármálaráðherra, sem staðið hefur í ístaðinu í þessari umræðu, ætti að spyrja ASÍ hvaða þætti velferðarþjónustunnar ætti að skera niður til að fyrirtæki fái skattalækkun.


mbl.is Krafa SA kemur nokkuð á óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Síðuhafi er búinn að taka heilbrigðiskerfið í sátt. Það er nú gott að heyra.

Á mánudag skrifaði hann um Vigdís Hauksdóttur og heilbrigðiskerfið: "Tilefnið núna [fyrir gagnrýni á Vigdísi] er að Vigdís þykir full rösk að verja almannafé fyrir ágangi heilbrigðiskerfisins."

Wilhelm Emilsson, 5.12.2015 kl. 21:59

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Fyrir ágangi sem beindist að henni Wilhelm.-- Velferðarþjónustan spannar yfir vítt svið,eins menntun og lífeyri.

Helga Kristjánsdóttir, 6.12.2015 kl. 03:00

3 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Þetta var meira en ágangur, Helga. Þetta var andlegt ofbeldi ;)

Wilhelm Emilsson, 6.12.2015 kl. 09:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband