Áfengur áróður

Áfengi er ekki eins og hver önnur neysluvara. Óábyrg meðferð áfengis veldur fjölskylduharmleikjum og er þjóðfélaginu dýrkeypt vegna heilsu- og eignatjóns.

Af þessu tvennu leiðir að engar þær breytingar ætti að gera á núverandi fyrirkomulagi áfengissölu sem minnsti möguleiki er á að auki neyslu áfengis og/eða auðveldi aðgengi ungs fólks að áfengi.

Umræðan um hvort áfengi skuli selt í matvöruverslunum leiðir í ljós að bæði mun neysla áfengis aukast og aðgengi ungs fólks verður greiðara að þessari vöru.

Öll hagkvæmni- og kostnaðarrök blikna hjá lýðheilsurökum í áfengisumræðunni. Ef það er svo, samkvæmt keyptri skýrslu áróðursmanna fyrir áfengi í matvöruverslanir, að áfengissala skili ríkinu ekki nógum tekjum þá er einfalt svar við því: við hækkum verðið á áfengi.


mbl.is Taprekstur á Vínbúðahluta ÁTVR?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steinarr Kr.

Það er ekkert sem segir að neysla muni aukast, þó smásala færist úr sérhæfðum ríkisverslunum í aðrar verslanir.  Né að það hafi áhrif á misnotkun, sem hvorki verður breytt með takmörkuðu aðgengi né háu verði.

Sykurskatturinn virkaði ekki, hækkun á áfengi mun á sama hatt ekki virka, en getur haft aðrar og verri afleiðingar, eins og aukið heimabrugg, eða notkun á öðrum vímuefnum.  En á það mega forræðishyggju menn ekki heyra á minnst.

Steinarr Kr. , 15.5.2015 kl. 09:50

2 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Ég er alveg sammála þér Páll.

Fólk sem hefur losnað undan áfengisbölinu og sniðgengur vínbúðir á ekki að þurfa að hafa vínflöskur fyrir augum sér er það fer að versla í matinn.

Vínbúðir hafa dugað hinum drykkfelldu vel hingað til og að færa það yfir í matvöruverslanir væru mikil mistök, sama hvað aðrar þjóðir gera.

Tómas Ibsen Halldórsson, 15.5.2015 kl. 11:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband