Sigmundur Davíð hugsar stórt; góða fólkið þolir það ekki

Góða fólkið, sem lifir samkvæmt forskriftinni í laginu litlir kassar á lækjarbakka, er þrælar vanahugsunar með beyg fyrir öllum sem hugsa út fyrir rammann.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra sýnir ítrekað að hann sér lengra og víðar en samferðamenn hans á alþingi. Skemmst er að minnast leiðréttingarinnar í því samhengi. Vinstrimann, á alþingi og víðar, töluðu sig hása gegn leiðréttingunni á opinberum vettvangi en einir með sjálfum sér settust vinstrimenn niður við tölvurnar sínar og sóttu um leiðréttinguna og viðurkenndu þar með forsjá framsóknarmanna.

Eins og í málefnum leiðréttingarinnar sér forsætisráðherra skóginn fyrir trjánum þegar hann leggur til stöðugleikaskatt sem megináfanga í afnámi hafta.

Góða fólkið veit innra með sér að forsætisráðherra hefur rétt fyrir sér, alveg eins og hann hafði rétt fyrir sér í skuldaleiðréttingunni og afturköllun ónýtu ESB-umsóknarinnar. Viðbrögð góða fólksins eru líka fyrirsjáanleg, það brjálast.


mbl.is Sumarþing ekki útilokað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Við erum lánsöm að hafa forsætisráðherra sem Sigmund Davíð Gunnlaugsson, en það er ekki sjálfgefið.  SDG hefur ekki látið setja sig úr jafnvægi þó ýmislegt hafi verið reynt til þess.

Ef létta á gjaldeyrishöftum þarf einhverskonar skattur að koma á útflæði gjaldeyris að öðrum kosti færi efnahagslíf þjóðarinnar á annan endann, sem kæmi okkur öllum mjög illa.  Evru-sinnar geta ekki hugsað sér að íslenska krónan lifi af þær hremmingar sem gjaldeyrishöft án aðgerða myndi leiða af sér, þeir sjá ekki annað en evru sem einu sönnu leiðina framundan.  Þessir sömu evru-sinnar loka augunum, annaðhvort viljandi eða vegna blindu sinnar, fyrir þeim hörmungum sem evran hefur valdið ýmsum evru-þjóðum.

Ég segi bara fyrir mig: "Guð blessi Sigmund Davíð Gunnlaugsson".

Tómas Ibsen Halldórsson, 13.4.2015 kl. 08:58

2 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Góða fólkið vælir yfir hlýnun jarðar. En "með hlýnandi loftslagi skapast ný og spennandi sóknartækifæri," segir Sigmundur Davíð. Eins og Monty Python sungu í Life of Brian: "Always look on the bright side of death."  

Wilhelm Emilsson, 13.4.2015 kl. 09:01

3 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Verst að hann eigin flokksmenn vita ekki neitt og sjá ekki það sem forætis sér... en þeir eiga líka ekki krisalskúluna hans Jónasar frá Hriflu.

Og hvar eru eiginlega Sjálfstæðismennirnir ?

Jón Ingi Cæsarsson, 13.4.2015 kl. 14:07

4 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

hans...

Jón Ingi Cæsarsson, 13.4.2015 kl. 14:07

5 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Já, skemmst að minnast ,,leiðréttingarinnar, þar sem hann lét mig borga skuldir auðmanna.  Það er enn í fersku minni.   

Ómar Bjarki Kristjánsson, 13.4.2015 kl. 14:21

6 Smámynd: Snorri Hansson

Það eru skrautlegir tímar framundan, þegar góða fólkið fer að berjast gegn afnámi hafta.

Snorri Hansson, 14.4.2015 kl. 14:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband