Bandaríkin veikjast, ófriđarhorfur aukast

Á tímabilinu eftir fall Berlínarmúrsins voru Bandaríkin eina réttnefnda stórveldiđ og gátu meira og minna fariđ sínu fram á alţjóđavettvangi. Viđbrögđin viđ árásinni á tvíturnana í New York voru innrásir í Afganistan og Írak, - hvorttveggja á vafasömum forsendum.

Bandaríkin riđu ekki feitum hesti frá Miđausturlöndum og tiltrú ţeirra beiđ hnekki. Ţrátefli í innanlandsstjórnmálum, sem m.a. leiddi af sér ađ ríkisstofnanir urđu ađ loka vegna skorts á fjárheimildum, drógu upp ţá mynd ađ Bandaríkin vćru risi á brauđfótum.

Farsakenndar tilnefningar á peningamönnum í embćtti sendiherra eru birtingarmynd af bandarískri stjórnsýslu, sem virđist ekki ráđa viđ verkefniđ sitt.

Veikari Bandaríki gefa mönnum eins og Pútín Rússlandsforseta tilefni til ađ prófa sig áfram og kanna hve langt er hćgt ađ komast međ hernađarógn.

Sérfrćđingar í sögu og eđli stríđsátaka, t.d. Michael Howard, segja okkur ađ stríđ byrji aldrei vegna tilviljana eđa skyndihugdettu ráđamanna. Ákvörđun um ađ hefja stríđ byggir alltaf á rökhugsun og yfirvegun á sóknarfćrum og áhćttu.

Illu heilli stenst ekki ígrundunin í ađdraganda stríđs nema í helmingi tilfella. Sagan kennir okkur ţađ.


mbl.is Obama skipti út sendiherraefnum
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Eru bandaríkin ađ sökkva í hyldýpi pólitísks 

miđjumođs úrkynjunar međ Evrópu?  

Kristján B Kristinsson (IP-tala skráđ) 30.3.2014 kl. 11:50

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Fínn pistill hjá ţér, Páll !

Ómar Ragnarsson, 30.3.2014 kl. 11:50

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Já kristján,ţađ ber lítiđ á hugsjónum,en borgađ fyrir stuđning međ bitlingum,sem viđ ţekkjum svo vel frá forvera Samfylkingar. Obama fćr far međ úrkynjunaralmćtti Evrópu “down”. . . .

Helga Kristjánsdóttir, 30.3.2014 kl. 16:37

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband