Krónan á marga vini - bara ekki hjá ESB-sinnum

Erlend fyrirtæki fjárfesta á Ísland í áliðnaði og byggingavöruverslunum. Erlendir hagfræðingar lofa og prísa krónuna sem þeir segja að hafi bjargað Íslendingum frá langvarandi kreppu og atvinnuleysi. En hér á Íslandi keppast ESB-sinnar að níða skóinn af krónunni.

Heill stjórnmálaflokkur, Samfylkingin, gerir úr á krónuníð. Það þvælist jafnvel ekki fyrir ráðherrum þessa flokks að tala niður krónuna og stuðla að veikingu hennar og þar með verðbólgu í landinu.

Íslenskt efnahagskerfi með krónuna í fararbroddi fær margvíslegar traustsyfirlýsingar frá erlendum aðilum en hér keppist annar stjórnarflokkurinn að tala niður atvinnulífið og gjaldmiðilinn.

Samfylkingin er sérstakt efnahagsvandamál á Íslandi.


mbl.is Íslendingar ættu að þakka fyrir krónuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Páll,

Ég efast um að það sé til töfralausn á þessum málum.

Hvað þarf til svo hagstjórn verði með þeim hætti hér á landi að við getum í alvöru hugað að myntsamstarfi við þokkalega agaðar þjóðir?

Hvaða heimavinnu/grunnvinnu þarf að klára til að umræðan verði af viti?

Eirný

Eirný (IP-tala skráð) 7.3.2012 kl. 11:51

2 Smámynd: Gísli Foster Hjartarson

fannst þetta hérna nú athyglisverðast í þessum pistli blaðamanns: Baker lýkur greininni á því að segjast vona að almenningur á Íslandi sjái til þess að leiðtogar landsins taki skynsamari ákvarðanir nú en þegar þeir reyndu að halda því fram að allt væri í himnalagi í efnahagsmálum þjóðarinnar á sama tíma og fjármálakerfi landsins var við það að hrynja.

Gísli Foster Hjartarson, 7.3.2012 kl. 13:24

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Það tilganglaust að tala um leiðtoga landsins. Hér eru engir leiðtogar við nein völd. 

Ummæli sumra Íslendinga um "agaða hagstjórn" virðist byggð á eftirfarandi stöðugu staðreyndum:

• Launþegar í Þýksalandi hafa ekki fengið launahækkun í 15 ár. Þetta náttúrelga viss agi. 

• Raunverð húsnæðis er fallið um 25 prósent í Þýskalandi frá aldamótum. Þú borgar en sífellt stærri hluta lækkandi launa í afborganir en átt sífellt minna. Hér er aginn til fyrirmyndar. Eitt herbergi íbúðar þinnar hverfur á hverjum 10 árum.   

• Um 30 ára skeið hefur atvinnuleysi í Þýskalandi marrað í kringum 10 prósentin. Sem sagt stöðugleiki. 

• Frá 1977 hefur atvinnuleysi í Danmörku ekki farið niður fyrir það sem það er núna á Íslandi nema í 5 ár. Semsagt hrun-atvinnustig í 29 ár af 35 mögulegum í Danmörku. 

• Frá 1985 hefur danskur húsnæðismarkaaður hrunið tvisvar sinnum með allt að 1600 nauðungaruppboðum yfir heimilum fólks í hverjum mánuði. Samfelldur terror í átta ár. Þar er fók enn að greiða skuldir af húsnæði sem það missti árið 1987. Þetta gerðist vegna þess að Danmörk tók upp fastgengi. Danska krónan var bundin við agalegan staur niður í Þýskalandi. Mjög öguð ákvörðun sem eingöngu byggðist á pólitík sem auðvitað er mjög öguð en ekki bjöguð. 

• Og nú eru nauðungaruppboð í Danmröku á leið upp aftur og eru komin yfir 400 talsins á mánuði. Og húsnæðisverð enn einu sinni í frjálsu falli. Þetta er svo agað.

• Smá yfirdráttarlán kosta þar í öguðum banka um 18 prósent í ársvexti í 2 prósent árverðbólgu, það er að segja ef bankinn vill lána þér eftir að hafa röntgenmyndað allan fjárhag fjölsyldu þinnar fyrst og beðið um belti og axlabönd. 

• Hér heima halda víst margir að innheimtustofnanir gangi hart til verks. Ég ráðlegg þessum sumum að prófa innheimtuaðgerðir erlendis.

• Á Ítalíu hefur enginn hagvöxtur verið í 10 ár. Fullkominn stöðugleiki.

• Atvinnuleysi í Frakklandi er hefur legið fast (já, aftur stöðugleiki) á 10 prósentum í meira en 30 ár.

• Grikkland er gjaldþrota, eftir 30 ár í esb.

• Írland er á skurðaborðinu

• Portúgal er í öndunarvél

• Spánn er sprunginn

• Lettland er horfið

• Eistland er að deyja

• Lúx er skattaskjól

• Og Austurríki er afdalir, þar sem konur eru læstar inni í skápum upp í dal. Þannig er atvinnuleysinu haldið niðri

Þetta er agalega agað!

 

Gunnar Rögnvaldsson, 7.3.2012 kl. 15:23

4 identicon

Segðu mér Gunnar Rögnvaldsson, hvar færðu þessar upplýsingar um Þýzkaland?  

Svona upptalning á heimilda er vita gagslaus hvort sem hún er rétt eða ekki.

Engar heimildir enginn trúverðugleiki.

Egill Örn Gudmundsson (IP-tala skráð) 7.3.2012 kl. 18:44

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Hvar fékk ég heimildir?
 
Ég bjó í ESB í 25 ár, stundaði þar atvinnurekstur, og horfði á eftir helmingi iðnaðar- lanbúnaðar- og matvælafyrirtækja Danmerkur flýja niður til Þýskalands, þar sem launin eru orðin aðeins helmingur af því sem þau eru í Danmörku. Það eru engin lágmarkslaun í Þýskalandi. Fólks stendur þar á verksmiðjugólfum fyrir minna en eina evru á tímann, jafnvel 60 cent.
 
Danir geta ekkert gert við þessu annað en leggja niður niður og rústa velferðarsamfélagi sínu. En þeir ösnuðust til að binda gengi dönsku krónunar fast við evrna og þýksa markið árið 1985. Danmörk er með gengi gjaldmiðils síns læst fast við efnahagslegt svarthol. 
 
Figure 1. Unit labour costs in selected EU nations (nánar hér)
 
mickey_fig1 
 Í samfellt 15 ár og jafnvel lengur hefur Þýskaland stundað innvortis gengisfellingu gagnvart þeim löndum sem eru í læstu gengisfyrirkomulagi við það í gegnum myntbandalag Evrópusambandsins. Þýskaland er Kína Evrópu.
 
Þ.e.a.s haldið launum niðri og jafnvel lækkað þau. Þýskir launþegar hafa ekki fengið neitt meira í pokann sinn síðustu 15 árin og litla sem enga kaupmáttaraukningu. Og svo er kostnaður lækkaður út í það óendanlega. Keppa þarf nefnilega hin lönd evrusvæðisins í kaf. 
 
Þýska þjóðin er að verða fátækari og fátækari og eldri og eldri, því þar þora svo allt of fáir að eignast börn. Gleðifréttir úr gamla heiminum í ESB. Þjóðinni fækkrar nú um ca. 300.000 til 400.000 manns á ári og hraðinn á fólksfækkuninni eykst. Milljónir þýskra fjölskyldna þurfa fátæktarhjálp þó svo að bæði séu í fullri vinnu hvern dag ársins.     
 
"Since 2000, productivity-adjusted wages have increased only 5% in Germany (they actually declined from 2000-2008)."  
 
Ef þú vissir aðeins eitt grjón af sannleika um Evrópusambandið þá væri þetta eitt af því fyrsta sem þú vissir, Egill. 
 
 
 
Kveðjur
 

Gunnar Rögnvaldsson, 7.3.2012 kl. 19:24

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Afsakið Egill Örn

Tvær kræjur reynust gallaðar. Hér eru þær leiðréttar

Raunverð húsnæðis í Þýskalandi frá aldamótum

Fasteignaverð á Spáni og Þýskalandi mun lækka um 75% á næstu 40 árum.

Reyndar hef ég sett þetta hér að ofan upp sem sjálfstæða bloggfærslu á bloggsíðu minni ásamt viðbót:

Hana má lesa hér: Leiðtogar almúgans hérlendis og aginn sem auðvitað er erlendis

Kveðjur

 

Gunnar Rögnvaldsson, 7.3.2012 kl. 21:24

7 identicon

Eirný. Nefndu mér eitt land á þessari plánetu, sem er þokkalega agað....

anna (IP-tala skráð) 13.3.2012 kl. 21:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband