Þýskt glott, frönsk drýldni og ítölsk móðgun

Líkamstjáning leiðtoga getur skilið á milli feigs og ófeigs í samskiptum stórvelda. Ítalir eru móðgaðir vegna vanvirðingar sem þeim fannt Merkozy sýna ríkisfjármálum stjórnar Berlusconi. Evran hangir á ítölskum bláþræði og lítið má útaf bregða til að ekki verði efnahagslegt stórslys.

Bros getur dimmu í dagsljós breytt, segir í Einræðum Starkaðar. Ítalir sáu enga birtu í andlitsdráttum Merkel og Sarkozy heldur dáragrettu leiðtoga stórvelda Evrópu sem orðnir lúnir og leiðir á samskiptum við ráðamenn óreiðuríkja.

Breski stjórnarerindrekinn Charles Crawford skrifar í Telegraph að traust milli leiðtoga Evrópusambandsins fari þverrandi. Kjarninn í greiningu Crawford er þessi

Trust lies in the very fact that each EU member state has surrendered goodly dollops of sovereignty to Brussels, accepting that it might get outvoted on all sorts of issues with direct implications for its own citizens. This concession is made by all states in return for ‘getting things done’ by the Union as a whole, where the things which then get done are by definition proclaimed to be in the wider EU family interest.

This is a remarkable and (as events now show) unwise innovation in international diplomacy. It assumes a minimal level of intelligence, reasonableness and good faith on the part of any voting majority. Hence the appalling damage done to the whole EU project as the Germans discovered that Athens had not been, ahem, honest in reporting Greece’s economic statistics.

As Euro-trust ebbs away, so does Euro-solidarity.

Lágmarksgáfnafar aðildarsinna er vitanlega atriði sem flestum á Íslandi er kunnugt um. Þegar saumarnir á evru-samstarfinu rakna í sundur verður skekkjan í hönnun Evrópusambandinu öllum augljós. Nema, auðvitað, aðildarsinnum. Þeir eru of heimskir.

 


mbl.is Ítalir móðgaðir út í Merkel og Sarkozy
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hver er Crawford?

Charles Crawford retired from the Foreign and Commonwealth Office in 2007. He was HM Ambassador in Sarajevo (1996-1998), in Belgrade (2001-2003) and most recently in Poland (2003-2007). He is a founder member of ADRg Ambassadors and his personal website is www.charlescrawford.biz

gangleri (IP-tala skráð) 27.10.2011 kl. 21:08

2 identicon

He is now pursuing a private consultancy career from his home in Oxfordshire in England. He is open to all generous offers. And married with three children.

See also a Wikipedia entry.

gangleri (IP-tala skráð) 27.10.2011 kl. 21:12

3 identicon

Segir þetta ekki hvers er að vænta fyrir smælingjana í þessum ESB óskapnaði þegar þjóðarleiðtogar stærstu ríkjanna sína hinu lítilsvirðingu?

Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 27.10.2011 kl. 22:02

4 identicon

Sæll.

Þessi lausn hinna frábæru og skörpu leiðtoga ESB er engin lausn, renna munu tvær grímur á marga á komandi vikum og mánuðum. Hér var enginn vandi leystur en fræjum sundurlyndis sáð, það sáum við á Frattini. Undirliggjandi vandi þessara ríkja var heldur ekki leystur. Það sem þessi margumtalaði fundur sýndi enn og aftur var hve lítinn skilning leiðtogar ESB hafa á vandanum.

Ætli almenningi og stjórnmálamönnum á Ítalíu, Spáni og Portugal - svo dæmi séu tekin - líki það vel að sum ríki (Grikkir) fái afslátt af sínum skuldum en ekki önnur sem þó standa illa?

Helgi (IP-tala skráð) 27.10.2011 kl. 22:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband