Össur vill fórna landbúnaði

Íslenskum landbúnaði verður fórnað þegar í upphafi samningaviðræðna við Evrópusambandið, fái Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra vilja sínum framgengt. Jón Bjarnason landbúnaðarráðherra stendur á fullveldisrétti landsins að ákveða tollvernd fyrir mikilvægar atvinnugreinar.

Össur lætur að því liggja í viðtali á Visir.is að hann hafi heimild alþingis til að leggja niður íslenskan landbúnað í núverandi mynd.  Alþingi samþykkti ekki að hagsmunir landbúnaðarins skyldu fyrir borð bornir.

Lissabonsáttmálinn kveður á um að aðildarríki og Evrópusambandið deili með sér forræði landbúnaðarmála. Á þeim grundvelli getur Ísland farið fram á fulla tollvernd landbúnaðarvara.

Uppgjöf Össurar gagnvart Evrópusambandinu í landbúnaðarmálum veit ekki á gott þegar kemur að málefnum sjávarútvegs. Þar segir í Lissabonsáttmála að Evrópusambandið hafi eitt og sér fullt forræði yfir sjávarútvegi.

Eini raunhæfi og skynsami kostur Íslendinga er að draga aðildarumsóknina tilbaka.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gott mál og vonandi rétt.

Góðar fréttir fyrir skattgreiðendur og neytendur.

Karl (IP-tala skráð) 3.6.2011 kl. 10:52

2 identicon

Össur er án nokkurs vafa langöflugasti liðsmaður þeirra sem telja inngöngi í Evrópusambandið vera hið versta mál.

.

Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 3.6.2011 kl. 12:18

3 Smámynd: Elle_

Við ættum ekkert að vera að ræða um hvað e-ð stórríki í Evrópu muni leyfa okkur eða ekki.  Við skulum bara alls ekki fara þangað inn.  Össur ræður engu um það.

Elle_, 4.6.2011 kl. 01:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband