HR; við borgum en auðmenn eignast

Róbert Wessmann auðmaður lofaði Háskólanum í Reykjavík milljarði króna og fékk 30% hlut í skólanum fyrir út á það loforð. Samkvæmt Eyjunni ætlar Wessmann ekki að standa í skilum með 500 milljónir króna til skólans.

Þegar tilkynnt var um framlag Wessmann á sínum tíma var dregin fjöður yfir eignarhald auðmannsins á þessum einkarekna háskóla. María Kristjánsdóttir bendir á hversu öfugsnúið það er að auðmenn eignist hlut í menntastofnunum sem við, almenningur, borgum reksturinn á.

Menntamálaráðherra á vitanlega að grípa í taumana og beintengja HR við veruleikann. Valið stendur á milli þess að auðmenn eigi og reki HR eða ríkisvaldið yfirtekur skólann. Punktur.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér þykir líka öfugsnúið að ég, almenningur, borgi laun Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar. Er ekki orðið tímabært að tengja hann við veruleikann og hinn frjálsa markað?

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 21.7.2010 kl. 14:56

2 identicon

Væri ekki nær að einkavæða framhalds og háskólana?

Palli (IP-tala skráð) 22.7.2010 kl. 06:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband