Sunnudagur, 31. janúar 2016
Vestrænt verndarríki í Afríku/miðausturlöndum
Múslímar í Afríku og miðausturlöndum kunna ekki fótum sínum forráð. Þeir eru í sömu sporum Vestur-Evrópa 1914 til 1945; geta ekki verið til friðs.
Bandaríkin urðu að bjarga Evrópu á fyrri hluta síðustu aldar. Til að koma skikk á múslíma í Afríku og miðausturlöndum verða Bandaríkin, Rússland og Evrópa að taka höndum saman.
Risavaxnar flóttamannabúðir í Líbýu ásamt hernaðaraðgerðum í Írak og Sýrlandi er líkleg niðurstaða. Flóttamannabúðir veita borgurum skjól og koma í veg fyrir flóttamannastraum til Evrópu. En það tekur nokkurn tíma að koma þessu í kring, líklega tvö til þrjú ár.
7,3 milljónir Íraka þurfa aðstoð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 31. janúar 2016
Múslímar aðlagast ekki vestrænu samfélagi
Trúarmenning múslíma er ráðandi í lífsviðhorfi þeirra. Í alþjóðlegri könnun kemur fram að 91% múslíma í Norður-Afríku og miðausturlöndum er sannfærður um að trúin sé forsenda siðferðis. En það er einmitt frá þessu svæði sem flestir farandflóttamenn koma í leit að betri lífskjörum á vesturlöndum.
Þegar trúin er forsenda siðferðis er rökrétt að múslímar séu viðkvæmir fyrir hverjir veiti trúarlega leiðsögn og stjórni trúarútgáfunni sem skal í hávegum höfð. Mótmælin í Reykjavík gefa til kynna að þrír hópar berjist um forræðið yfir söfnuði múslíma hér á landi.
Trúin er aukaatriði í vestrænu samfélagi. Virðing fyrir mannréttindum og lýðræði vega mun þyngra en trú í vestrænu siðferði. Mannréttindi eins og trúfrelsi eru múslímum framandi. Jafnrétti karla og kvenna er beinlínis hafnað í mannréttindaskrá múslímaríkja.
Þegar það liggur fyrir að múslímar aðlagast ekki vestrænu samfélagi er hvorki okkur né þeim gerður greiði með því að fjölga þeim hér á landi.
Múslimar mótmæltu í Reykjavík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |