Þriðjudagur, 25. mars 2014
ESB-sinnar í þágu sérhagsmuna
Marel gaf starfsfólki sínu frí til að mæta á mótmælafund ESB-sinna; forstjóri Össurar vill inn í ESB; Samtök iðnaðarins fjármagna hreyfingu ESB-sinna og fyrrverandi framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins er formaður ESB-sinna.
ESB-sinnar starfa í þágu sérhagsmuna forstjóra fyrirtækja og fáeinna peningamanna eins og Helga Magnússonar og Benedikts Jóhannessonar.
Fjármagn frá sérhagsmunum kaupa auglýsingar fyrir samtök ESB-sinna.
Formaður eina ESB-flokksins á Íslandi, Árni Páll Árnason, veit ósköp vel í hvaða sjóði er hægt að leita eftir fjármagni. Enda leggur hann til að Samfylkingin verði hægriflokkur.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 25. mars 2014
Strákarnir á RÚV skora á Óðin, fyrir Óðin
Strákarnir á fréttastofu RÚV vilja ekki að konur sæki um yfirmannsstöðuna sem Óðinn Jónsson gegndi þangað til honum var sagt upp.
Óðinn, í fullkomnu lítillæti, sem honum er tamt, hyggst verða við áskorun drengjanna á fréttastofunni og sækja um starfið að nýju.
Samkvæmt fréttum var Óðinn varla búinn að fá uppsagnarbréfið í hendur þegar hann lét fréttast að hann ætlaði sér starfið á ný. Áskorun strákaklúbbsins er vitanlega algjörlega ekki í neinum tengslum við þá fyrirtætlan Óðins. Sei, sei, nei.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 25. mars 2014
Fischer: stækkun ESB hluti valdvæðingar sambandsins
Evrópusambandið lítur á stækkun sambandsins sem lið í valdvæðingu þess andspænis aukinni rússneskri ógn, segir fyrrum utanríkisráðherra Þýskalands Joschka Fischer og leggur áherslu á að öryggishagsmuni ESB verði að taka af meiri alvöru .
The EU's enlargement policy is not merely some expensive, expendable annoyance; it is a vital component of the EU's security and outward projection of power. Safety comes with a price tag.
Fischer heggur í sama knérunn og Jean-Claude Juncker verðandi leiðtogi miðhægrimanna á Evrópuþingi sem segir stofnun Evrópuhers nauðsyn.
Vegna valdaskaks Rússa í Austur-Evrópu vígvæðist Evrópusambandið, fyrst með orðum en brátt með vopnum.
Íslendingar eiga að þvo hendur sínar af herbrölti stórveldanna á meginlandi álfunnar.
Read more at http://www.project-syndicate.org/commentary/joschka-fischer-argues-that-the-eu-is-now-in-a-fundamental-strategic-struggle-with-russia#W1LrLsste8drkWpH.99

Ræðir samskipti Íslands og ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 25. mars 2014
Félagslega Samfylkingin og frjálshyggjufylkingin
Félagslega Samfylkingin í Reykjavík undir stjórn Dags B. gerir það betra en frjálshyggjufylkingin á landsvísu með Árna Pál sem oddvita.
Félagslega útgáfan af flokknum í höfuðborginni fær að vísu í meðgjöf fylgisfælu í efsta sæti Sjálfstæðisflokksins, ESB-sinnaðan býrókrata, en engu að síður er sláandi hve Dagur B. nær betur til fólks en Árni Páll.
Haldi Dagur dampi verður kallað á hann að leiða flokkinn á landsvísu, - strax í haust.
Samfylking bætir við sig í borginni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)