Þriðjudagur, 22. desember 2009
Hvorki til Björgólfs né Jóns Ásgeirs
Peningamennirnir sem léku sér með fjármuni annarra og skilja eftir sviðna jörð eiga hvorki að fá lög til að gróðatryggja rekstur, Björgólfur og gagnaverið, né afslátt af skuldum, Jón Ásgeir og Hagar.
Samstaða er um það í þjóðfélaginu að auðmenn hrunsins eigi ekki að koma að endurreisninni. Þeirra hlutverki er lokið á Íslandi.
Stjórnmálaflokkar sem taka hrunverja upp á arma sína starfa ekki í þágu almannahagsmuna.
Kristinn H: Ekki krónu til Björgólfs Thors | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Heyr heyr !
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 22.12.2009 kl. 12:00
jújú látum þá fá allt sem þeir heimta og örorkuna líka við förum að drepast hvort sem er og kjósum ekki meir.
gisli (IP-tala skráð) 22.12.2009 kl. 12:30
Heyr, heyr. Orð í tíma töluð. Þessir aðilar eiga ekkert hjá okkur nema skuldirnar sínar sem að við erum neidd til að greiða . Gs.
Guðlaugur (IP-tala skráð) 22.12.2009 kl. 12:44
Það er skelfilegt umkomuleysi ráðamanna sem sjá ekkert annað í stöðunni en dekra við þessa helstu skaðvalda samfélagsins. Hvað fær þessa ríkisstjórn til þess að leggjast svona lágt? Hvaða hreðjatak hafa hafa þessir menn á stjórnmálamaönnum okkar?
Ef Steingrímur væri í stjórnarandstöðu, þá myndi sá strigakjaftur ekki vanda stjórnvöldum tóninn í þessu máli, fallshundurinn sá.
DanTh, 22.12.2009 kl. 12:57
"Ef Steingrímur væri í stjórnarandstöðu, þá myndi sá strigakjaftur ekki vanda stjórnvöldum tóninn í þessu máli, fallshundurinn sá."
Tek undir þetta.
Gunnar Th. Gunnarsson, 22.12.2009 kl. 13:07
Sammála síðuhaldara og þeim 2 sem á undan mér koma í athugasemdaröðinni. Það á að gera allt sem hægt er til að hindra að þessir skúrkar komist inn aftur í að mergsjúga þjóðfélagið, og ef ekki dugar minna en lagasetning gegn þessu liði þá það.
Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 22.12.2009 kl. 13:26
jájá en hvað um eftirlaunin þeirra ekki má skerða þau eða plottið til flokkanna.
gisli (IP-tala skráð) 22.12.2009 kl. 14:15
Sammála.
Geta menn ímyndað sér hvernig Steingrímur myndi haga sér í stjórnarandstöðu við þessar aðstæður?
Eða þá Árni Páll og allir hinir prinsipplausu gosarnir sem Íslendingum tekst aftur og aftur að kjósa yfir sig?
Það er algjörlega ömurlegt hvernig komið er fyrir íslenskri pólitík og þá á ég við alla flokka.
Hentistefna og skefjalaus valdafíkn er ráðandi og ekkert að marka orð af því sem þetta lið segir, engin sannfæring, ekki neitt.
Ömurlegt lið.
Karl (IP-tala skráð) 22.12.2009 kl. 14:55
HÚRRA HÚRRA HÚRRA HÚRRA sagði Davíð Oddsson:
http://www.youtube.com/watch?v=5egkmJRikKw
Hamar tvö (IP-tala skráð) 23.12.2009 kl. 00:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.