Laugardagur, 17. október 2009
Icesave-samninga verður að fella
Ónýtir samningar um ríkisábyrgð á Icesave-reikningum voru gerðir illskárri með með fyrirvörum Alþingis. Hafni Bretar og Hollendingar fyrirvörum þingsins verður að fella frumvarp ríkisstjórnarinnar um Icesave-samninginn.
Réttarstaða okkar er mun betri en hún var þegar grunnur var lagður að samningunum. Björn Bjarnason segir frá því á heimasíðu sinni í kvöld að ESB hyggst breyta reglum um starfsemi fjármálastofnana sem starfa í tveim eða fleiri löndum. Þar með hefur ESB viðurkennt galla í regluverki sínu. Af því leiðir Íslendingar eigi ekki einir að bera ábyrgð Icesave-klúðrinu.
Icesave-fyrirvörum breytt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég á ekki til aukatekið orð ! núna þarf að sverfa til stáls, vísa breska sendiherranum úr landi og aðalræðismann Hollands á Íslandi líka, slíta stjórnmálatengslum við þessu lönd, lögsækja þau fyrir kúgunaraðferðir og senda Icesave til dómsstóla.
Sævar Einarsson, 17.10.2009 kl. 23:43
The more I get to know about this Icesave thing, the more it seems to be a gigantic swindle. It might take some clever legal arguing, but that better start now!
Lissy (IP-tala skráð) 17.10.2009 kl. 23:51
"....Á hinn bóginn hefur niðurstaða dómsins, þótt hann yrði Íslendingum í hag, ekki sjálfkrafa þau áhrif að greiðslur falli niður."
"Íslensk stjórnvöld hafa fallist á að ekki verði hætt að greiða af Icesave-skuldabréfunum árið 2024 eins og fyrirvararnir gerðu ráð fyrir, heldur verði upphæðin greidd að fullu. "
Er ekki allt í lagi?!! Það bara má ekki samþykkja þetta!!!
Er þetta samningur? Hvað eru stjórnvöld að hugsa? Hverjir sitja í þessari "samninganefnd"? Gvuð minn góður!!
Soffía (IP-tala skráð) 18.10.2009 kl. 00:06
Between the lines.........
The big question is: "If Iceland could do it the there must be a huge hole in the system." I personally think that it is this big blackhole that is terrifying the union and they are trying to state an example.
The Outlaw (IP-tala skráð) 18.10.2009 kl. 06:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.