Þriðjudagur, 14. apríl 2009
Sjálfstæðisflokkurinn missti sitt helsta skjól
Í sögulegu samhengi er Sjálfstæðisflokkurinn málssvari atvinnurekenda, en sá þjóðfélagshópur á ekki upp á pallborðið hjá kjósendum vegna hrunsins sem var í boði fyrirtækja. Sjálfstæðisflokkurinn átti þó skjól í mönnum eins og Davíð Oddssyni og Birni Bjarnasyni sem andæfðu yfirgangi auðhringa. Andóf þeirra benti til að ærlegan þráð væri að finna í flokknum.
Þegar mútumálið kemst í hámæli og forystan slær skjaldborg um mann sem hefur milligöngu um tugmilljónagjafir auðhringa til flokks og ætlar síðan að selja sömu auðhringjum opinberar eigur er fokið í flest skjól fyrir móðurflokki íslenskra stjórnmála.
Fólk segir sín á milli að atkvæði greitt Sjálfstæðisflokknum er atkvæði greitt óuppgerðri spillingu. En það er einmitt uppgjör við spillingu sem er helsta mál íslenskra stjórnmála í dag og næstu árin.
Samfylking stærst | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þegar spillingarmál af þessu tagi koma fram í dagsljósið er bara ein regla,sem fylgja skal: Segja sannleikann, allan sannleikann, strax.
Svo er líka það ,að þeir sem segja ósatt verða að vera stálminnugir. Einhver misbrestur hefur verið á því sýnist manni. !
Eiður Svanberg Guðnason, 14.4.2009 kl. 17:34
Ef flokkarnir horfast ekki í augu við kröfu fólks um upprætingu spillingar nú, er lítil von til að þeir sjái að sér eftir kosningar.
Kolla (IP-tala skráð) 14.4.2009 kl. 17:52
VIDBJÓDSLEGT ad sjá ad 22% aetla ad greida spillingarflokki atkvaedi sitt. VIDBJÓDSLEGT!!
Jalli (IP-tala skráð) 14.4.2009 kl. 19:06
Ég tel Björn Bjarnason stórmerkan stjórnmálamann sem ekki hefur notið sannmælis. Hann er stálheiðarlegur, vinnusamur og fluggreindur en það þykir mikill löstur í stjórnmálum á íslandi, svoleiðis menn eru taldir hrokafullir og merkilegir með sig. Jón Baldvin er gott dæmi!
Benedikt Halldórsson, 14.4.2009 kl. 19:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.