Mánudagur, 29. október 2007
Fjármálagúrúar miðaldra um aldur fram
Engum hefur tekist að útskýra hvers vegna unglingunum, sem komu hver úr sinni áttinni, tókst að efnast svona vel á skömmum tíma. Umhverfið og kringumstæðurnar sem gerðu kleyft ná þeim árangri sem raun ber vitni eru á hinn bóginn tiltölulega ljósar. Það var íslenskt efnahags- og atvinnulíf, með sínum kostum og göllum, sem var umgjörðin. Þar með talin krónan.
Eftir fimmtán ár og nær samfellda sigurgöngu vilja fjármálagúrúarnir núna skipta yfir í evru. Þær skýringar sem gefnar eru á evrusókn fjármálafyrirtækja eru sumpart eðlilegar, stór hluti umsetningarinnar er erlendis. Aðrar ástæður eru ekki eins trúverðugar, t.d. að krónan sé of lítill gjaldmiðill og flöktir meira en góðu hófi gegnir.
Vöxtur fjármálafyrirtækjanna er að líkindum ekki jafn traustur og hann er ör. Með evru í stað krónu telja fyrirtækin að áhættuþáttum fækki um einn.
En það var ekki áhættufælni sem skóp velgengnina.
![]() |
Skráning í evrum gæti hafist í nóvember |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ætli sé farið að hrikta í spilaborginni?
Ari Guðmar Hallgrímsson, 29.10.2007 kl. 09:17
Það getur verið slæmt að vera með e-ð "á heilanum" og láta það pirra sig alla daga allt árið um kring. Vonandi jafnar greinahöfundur sig á þrálátum pirringi út í þá nýríku og öðlist þannig "innri frið!"
marti (IP-tala skráð) 29.10.2007 kl. 16:40
Af hverju tekur ekki einhver blaðamaður sig til og skoðar það ferli sem gerði þessa menn svo ríka á örskömmum tíma? Áttu svör við því?
María Kristjánsdóttir, 29.10.2007 kl. 21:59
"Fjármálagúrúar miðaldra um aldur fram", "krónutáningunum", "unglingunum" ...
Þeir sem fyrst koma upp í hugann á mér eru á svipuðu róli og þú. Ert þú kannski bara full ungur í anda?
Óborganlegt.
Borat
Borat (IP-tala skráð) 31.10.2007 kl. 15:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.