Þriðjudagur, 5. nóvember 2024
Mútugjafir Solaris staðfestar
Fulltrúar Solaris mútuðu embættismönnum í Egyptalandi til að kaupa Palestínuaraba til Íslands. Theodór Ingi Pálmason endurskoðandi yfirfór reikninga vegna söfnunar Solaris. Í frétt Morgunblaðsins er haft eftir Theodór Inga:
Samkvæmt þeim upplýsingum sem settar voru fyrir framan mig, þá tóku þeir ekki við greiðslum nema í reiðufé, segir hann og vísar þar til þeirra egypsku aðila sem hleyptu Palestínumönnunum inn í Egyptaland. Greiddir voru 5.000 dollarar í seðlum fyrir hvern fullorðinn en helmingur þeirrar upphæðar fyrir barn. Hægt hafi verið að rekja saman greiðslur og lista með nöfnum hlutaðeigandi Palestínumanna.
Mútugjafirnar voru viðurkenndar í febrúar á þessu ári. Tilfallandi tók stöðuna:
Íslenskir aðgerðasinnar múta embættismönnum í Egyptalandi til að kaupa sérvalda Palestínuaraba yfir landamærin við Gasa. Í viðtali á mbl.is viðurkenna aðgerðasinnar að bera fé á embættismenn:
það kostar í kringum 5000 dollara fyrir einstakling að koma í gegnum landamærin með flutningi
Fimm þúsund dollarar eru tæpar 700 þúsund krónur. Hér er ekki um að ræða greiðslu fyrir skjöl og flutninga heldur er verið að bera fé á opinbera starfsmenn er sjá um landamæragæslu á milli Egyptalands og Gasa. Það er lögbrot samkvæmt íslenskum lögum að múta. Morgunblaðið, eini fjölmiðillin sem fjallar um málið
Meintar mútur Íslendinga í fátæku Afríkuríki þóttu stórfréttir þegar fíkill og drykkjumaður hafi í frammi slíkar ásakanir. Nú, þegar fyrir liggja játning og gögn um mútur í Egyptalandi, keppast fjölmiðlar við að þegja. Nema Morgunblaðið.
![]() |
Söfnuðu rúmlega 93 milljónum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þú hefur eftirfarandi eftir heimild:
"Hér er ekki um að ræða greiðslu fyrir skjöl og flutninga heldur er verið að bera fé á opinbera starfsmenn er sjá um landamæragæslu á milli Egyptalands og Gasa."
Og hver skyldi nú heimildin vera? Jú þú sjálfur! Sú heimild dugir kannski fyrir sjálfan þig, væntanlega telur þú þig vera trausta heimild. En ef þú værir nú alvöru blaðamaður en ekki bara bloggari sem kallar þig blaðamann, þá myndir þúvita að það er ekki traust heimild að vitna bara í blogg eftir sjálfan sig.
Skeggi Skaftason, 5.11.2024 kl. 13:58
Hafi ríkið ekki greitt $5000 fyrir hvern þeirra 72 einstaklinga sem það flutti til landsins, þá má ætla að Sólaris hafi greitt mútur.
Ragnhildur Kolka, 5.11.2024 kl. 14:28
Ferðamaður fór til kúbu með islenskum fararstjóra ,,
Sa islenski sýndi þeim part af mjog svo hrörlegu húsi sem að leit út fyrir að vera í endurbyggingur, og þar var krukka, þar sem að sá ielsnski sagði hópnum að setja Usa dollara í til þess að hjálpa fjölskyldunni, við að klára það sem að upp á vantaði.
Islendingarni settu pening í krukkuna, full rúta af fólki. Vikur eftir viku og mánuð eftir mánuð.
Fólkið hinsvegar, gat ekki notað Usa dollara á kúbu þegar að þetta varð.
þannig að sá islenski sá þetta sem að auka pening fyrir sig, að nota góðveild islendinga gagnvart fjöslskyldunni, til þess að græða sjálfur enda hirti sá peninginnn.
þetta er meira 20 ár síðan.
þannig að þessir 5000 dollara sema að kostaði að fara með palestinu fólkið í gegn, var það 5000 dollar, eða kannski bara 500 dollarar, sem að fóru til egyptana, eða 4, 500 dolara eitthvað annað.
Hver veit hvort að þetta var í raun 5000 dollarar eða bara 500 dollarar.
þarna er um að ræða rúm 50 miljonir.
Sem ég á að trúa að hafi farið til Egyptalands í beinhörðum peningum.
þar sem að er eldur, þar er yfirleitt reykur ?
þetta kvekir fleiri spurningar um það, hvort að eitthvað meira óhreint mjöl sé þarna í pokahorninu eða ekki, þvi að rétta einhverjum 5000 dollara í reiðufék, TRYGGIR EKKI AÐ SÁ HINS AAMI STANDI VIÐ SITT ????
ÞAÐ FELST ÍÞESSU GRÍÐARLEG ÁHÆTTA AÐ TAPA PENINGUNUM, SEM AÐ VORU ÞARNA UM 7000 Í HVERT SKIPTI '?
það eitt og sér að taka slíka áhættu, að rétta oðrum 50 miljonir í beinhorðum peningum er ansi MIKIÐ TRUAST , sem fólkið hefur þá viðkomandi mútuþega.
Af hverju er þetta traust fyrir hendi ?
A´mili islendinga og Egypta, opinberir starfsmenn, sem tókið við 5000 dollurunm, sem þessir opinberu starfsmenn hefðu auðveldlega getað stungið í vasan, og látið sig hverfa frá þeim sem að lét þá hafa peninginn.
Við glæpamenninir SVIKJUM EKKI HVORN ANNAN sagði einhver einhverstaðar.
Var verið að skipta á milli sín gróðanum og báðir sekir eða hvað ??
það er eitthvað sem að ekki gengur upp í hausnum á mér.
Ég myndi aldrei rétta opinberym starfmanni i Egyptalandi 7000 í peningum, því að hver er TRYGGINGIN AÐ ÉG FÁI ÞAÐ SEM AÐ ÉG BORGAÐI FYRIR.
HÚN ER EKKI NEIN.
ÞANNIG AÐ HAUSIN Á MÉR NEITAR AÐ MEÐTAKA ÞETTA !!!!!!!!!!!!!!!!!
KV
LIG
Lárus Ingi Guðmundsson, 5.11.2024 kl. 21:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.