Vilhjálmur fjárfesti í málssókn en tapaði fyrir lýðræðinu

Helsti eigandi Heimildarinnar, áður Kjarnans, Vilhjálmur Þorsteinsson auðmaður, fjármagnaði tvo starfsmenn sína, Þórð Snæ ritstjóra og Arnar Þór blaðamann, til að stefna tilfallandi bloggara fyrir að skrifa um byrlunar og símastuldsmálið.

Auðmaðurinn og blaðamennirnir höfðu betur í héraðsdómi en töpuðu í landsrétti, sjá blogg og frétt. Dóminn í heild má lesa hér.

Vilhjálmur skrifar Facebook-færslu um málið og telur að lýðræðið hafi tapað með sýknudómi yfir tilfallandi. Það eru öfugmæli sem þarf að leiðrétta.

Í dómnum eru blaðamennirnir tveir, Þórður Snær og Arnar Þór, meðhöndlaðir sem opinberar persónur. Þeir sem koma fram á opinberum vettvangi, t.d. í fjölmiðlum, og segja sína meiningu frammi fyrir alþjóð eru sjálfkrafa opinberar persónur. Gildir einu hvort um er að ræða fréttir, leiðara eða skoðanapistla. Blaðamenn eru í valdastöðu, fara með dagskrárvald opinberrar umræðu og hafa meira að segja en aðrar starfsstéttir hvaða tíðindi eru sögð almenningi. 

Lykilefnisgrein í færslu Vilhjálms er eftirfarandi:

Þegar hugtakinu "opinber persóna" er hins vegar snúið yfir á blaðamenn í störfum sínum, og vernd þeirra minnkuð á þeim forsendum, þá er verið að beita þessu öfugt: gegn lýðræðinu en ekki til verndar því.

Vilhjálmur leggur að jöfnu blaðamenn og lýðræði. Það er fásinna. Engin starfsstétt, hvort heldur blaðamenn, stjórnmálamenn eða lögmenn, svo dæmi séu tekin, er verðugri en önnur í lýðræðisríki. Lýðræði er fyrirkomulag jafnræðis þegnanna. Meginregla er að borgararnir eigi jafnan rétt fyrir lögum.

Í dómsmálinu sem Vilhjálmur fjárfesti í og tapaði var tekist á um hvort tilfallandi bloggara væri heimilt að tjá sig um byrlunar- og símastuldsmálið og aðild blaðamanna. Í krafti peningavalds sem Vilhjálmur ræður yfir átti að kæfa tjáningarfrelsi bloggara. Það tókst ekki. Lýðræðið hafði betur gegn fjármagnsvaldi Vilhjálms og félaga.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Það eru sterk peningaöfl úti í heimi eins og Soros sem styðja "góða fólkið", en almenningur er farinn að rísa upp. Fólk er byrjað að skilja það meira og meira að "góða fólkið" eru kúgarar. Við lifum ekki í lýðræðisríki heldur skrílræðisríki. Það er einn skríll á móti öðrum skríl. Menningin er hrunin eins og Guðjón Hreinberg hefur haldið fram.

Þetta er eins og allsherjarbullið í Kamölu Harris að Demókratar í Bandaríkjunum séu handhafar lýðræðisvaldsins og ekki aðrir! Jafnaðarfasistarnir!

Nei, það er ekki nýtt að fólk skilgreini alla sem eru ósammála sér óvini sína og á móti lýðræðinu. Sagan sýnir það einmitt og sannar að fólk sem segir aðra á móti lýðræðinu er oft sjálft mest á móti lýðræðinu og tjáningarfrelsinu.

 

Ingólfur Sigurðsson, 24.7.2024 kl. 14:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband