Sema til rannsóknar fyrir mútur, ræðst á Helga Magnús

Sema Erlu Ser­d­aroglu er til rannsóknar lögreglu fyrir mútugjafir í Egyptalandi. Sema Erla rekur félagið Solar­is sem safnaði peningum og mútaði egypskum embættismönnum að hleypa Palestínuaröbum frá Gasa til Íslands.

Brotið er fullframið og viðurkennt. Tilfallandi bloggaði í febrúar

Íslenskir aðgerðasinnar múta embættismönnum í Egyptalandi til að kaupa sérvalda Palestínuaraba yfir landamærin við Gasa. Í viðtali á mbl.is viðurkenna aðgerðasinnar að bera fé á embættismenn:

það kost­ar í kring­um 5000 doll­ara fyr­ir ein­stak­ling að koma í gegn­um landa­mær­in með flutn­ingi

Fimm þúsund dollarar eru tæpar 700 þúsund krónur. Hér er ekki um að ræða greiðslu fyrir skjöl og flutninga heldur er verið að bera fé á opinbera starfsmenn er sjá um landamæragæslu á milli Egyptalands og Gasa. 

Sema Erla beitti félaginu Solaris til að safna peningum til að kaupa ólöglega fyrirgreiðslu í þróunarríki, þar sem opinberir starfsmenn freistast að brjóta lög fyrir reiðufé. Efling gaf eina milljón.

Rannsókn á Semu Erlu var komin vel á veg þegar lögreglustjórinn í Reykjavík hætti henni. Fyrir viku sagði Morgunblaðið að ríkissaksóknari hefði fyrirskipað lögreglustjóranum að hefja rannsókn að nýju.

Árás Semu Erlu á Helga Magnús vararíkissaksóknara verður að skoða í ljósi afstöðu hennar til laga, reglna og almenns siðferðis. Hún vílar ekki fyrir sér bellibrögð. Í Egyptalandi eru greiddar mútur, á Íslandi hafðar í frammi falskar ásakanir um vanhæfi.

Helgi Magnús mátti sitja undir líflátshótunum frá trúbróður Semu Erlu. Ef formanni Solaris væri annt um íslenskt samfélag tæki hann undir varnaðarorð vararíkissaksóknara um skaðsemi innflutnings á íslömsku trúarofbeldi. En Sema Erla, varaþingmaður Samfylkingar, er með annað og síðra á dagskrá en velferð íslensks almennings. Hollusta hennar er við múslímska trúarmenningu.

 


mbl.is Segja Helga hafa gert sig vanhæfan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Nú mun reyna á hver stjórnar landinu? 

Sigurður I B Guðmundsson, 21.7.2024 kl. 13:34

2 Smámynd: FORNLEIFUR

Af hverju hætti lögreglustjóraembættið við rannsókn og braut það með alþjóðlegar skyldur?? Ísland er banani, en ekki lýðveldi.

FORNLEIFUR, 22.7.2024 kl. 05:33

3 Smámynd: FORNLEIFUR

 "Rík­is­sak­sókn­ari seg­ir að í bréfi lög­reglu­stjóra komi ein­ung­is fram að rann­sókn hafi verið hætt þar sem grund­völl skorti til að halda henni áfram. Sú niðurstaða sé mark­laus og fái ekki staðist."

Það er greinilegt að saksóknarar lögregluembættisins eru algjörlaega óhæfir til allra verka. Fjölskyldulægt gyðingahatur spilar þar inn í, líkt og hjá Serdu, sem á ættir að rekja til þjóðar sem hefur framið fjöldamorð á minnihlutum í Tyrklandi! Hún er af ætt sannra þjóðarmorðingja.

FORNLEIFUR, 22.7.2024 kl. 05:44

4 Smámynd: FORNLEIFUR

Í landi þar sem ríkissaksóknari þarf að hræðast líf sítt vegna rumpulýðs, sem hefur í hótunum við embættismenn sem eru að vinna vinnuna sína, þarf að stokka veruleg upp. Sema er andlýðræðissinni sem kallað hefur gyðinga SS-menn. Hún er ekki í okkar húsum hæf.

FORNLEIFUR, 22.7.2024 kl. 05:49

5 Smámynd: Grímur Kjartansson

Málflutningur Semu og öskurapanna minnir mann á íslenska orðatiltækið um að

"mála sig út í horn"

sem hefur sterka tengingu við vandræði, einangrun, dæma sig úr leik

Grímur Kjartansson, 22.7.2024 kl. 07:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband