Björn Leví kennir dyravörðum um dólgshátt Arndísar ölvuðu

Pírataþingmaðurinn Björn Leví ásakaði dyraverði skemmtistaðar um harkalega og niðurlægjandi meðferð á þingmannsins Arndísi Önnu K. er leiddi til afskipta lögreglu. Arndís Anna K. var handtekin aðfaranótt laugardags á skemmtistaðnum Kíkí.

Í fyrstu yfirlýsingu Arndísar Önnu K. um málið segir

Ég hef skilning á því að starf dyravarða á skemmtistöðum sé erfitt og ekki síst með fullt hús af fólki í misjöfnu ástandi, þó mín upplifun hafi verið sú að þarna hafi framganga þeirra verið óþarflega harkaleg og niðurlægjandi. Ég hef talað við fyrirsvarsmann staðarins sem bað mig afsökunar fyrir þeirra hönd, sem mér þykir afar vænt um.

Björn Leví tók undir ásakanir Arndísar Önnu K. og kenndi dyravörðum um að klósettdvöl á skemmtistað endaði með lögregluafskiptum og handtöku.

Fyrstu viðbrögð Arndísar Önnu K. reyndust lygar þegar nánar var að gáð. Næstu viðbrögð voru einnig lygi. Þar sagðist klósettþingmaðurinn ekkert hafa gert neitt af sér, annað en að dveljast á salerninu og það kæmi almenningi ekki við.

Í þriðju atrennu tók að glitta í sannindi hjá Arndísi Önnu K. Þingmaðurinn viðurkenndi að hafa verið ofurölvi og með dólgshátt. ,,Ég streittist á móti og var dónaleg," sagði klósettfarinn og baðst afsökunar.

Í fyrstu útgáfunni sagðist Arndís Anna K. hafa verið beðin afsökunar á framferði dyravarða en í þriðju útgáfu er það hún sem biðst afsökunar - en þó ekki dyraverðina sérstaklega. Afsökunin í þriðju útgáfunni er almenn.

Björn Leví lætur þau orð sín enn standa að dyraverðir á Kíkí hafi gengið harkalega fram og niðurlægt samflokksmann sinn. Hvorki Björn Leví, varaþingflokksformaður Pírata, né Þórhildur Sunna þingflokksformaður, svara fyrirspurnum fjölmiðla. (RÚV reynir að vísu ekki að fylgja málinu eftir; skylt er skeggið hökunni).

Í tilfallandi bloggi er vakin athygli á að Píratar beri ábyrgð þingmennsku Arndísar Önnu K. Hún ber ábyrgð á eigin gjörðum en þingflokkur Pírata ábyrgist pólitíska stöðu klósettþingmannsins.

Ekki er ábyrgðin rismikil þegar bæði þingflokksformaður né varaþingflokksformaður leggja á flótta frá spurningum fjölmiðla. Má ekki búast við yfirlýsingu frá Sigríði Dögg Auðunsdóttur formanni Blaðamannafélags Íslands, og fréttamanni RÚV, um að fólk í valdastöðu eigi ekki að komast upp með að senda frá sér fréttatilkynnar í stað þess að svara spurningum fjölmiðla? 


mbl.is Björn tjáir sig ekki frekar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Leiðari Moggans afgreiðir þetta mál afar snyrtilega í fyrirsögn og undirfyrirsögn:

"Hegðun og hreinskilni þingmanna

Siðanefnd alþingis var ekki ætlað að finna að breytni góða folksins"

Held þetta segi allt sem þarf. 

 

Ragnhildur Kolka, 30.11.2023 kl. 11:12

2 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Þetta er kómedíu gull.

Ásgrímur Hartmannsson, 30.11.2023 kl. 15:29

3 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Það á eftir að upplýsa almenning um mikilvæga þætti í þessu máli. Björn Levi mun án efa koma öllum mögulegum og ómögulegum spurningum á framfæri til þess að upplýsa málið. Auðvitað verður komið upp rannsóknarnefnd og síðan allir aðilar máls kallaðir til á opnum nefndarfundi. Þar þingmaðurinn einn í litla herberginu, eða voru aðir viðstaddir. Hvernig var viðskiptasamband þeirra. Þetta mál er rétt að byrja og verður án efa tekið fyrir í umræðuþáttum RÚV. 

Sigurður Þorsteinsson, 30.11.2023 kl. 22:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband