Laugardagur, 26. ágúst 2023
Loftslagsvá er viðskiptamódel, byggt á blekkingu
Keyptir vísinda- og tæknimenn í þjónustu auðjöfra halda að almenningi, í samvinnu við fjölmiðla, þeirri blekkingu að loftslagsvá steðji að heimsbyggðinni. Allt er þetta viðskiptamódel, en ekki vísindi, og haldið gangandi til að skattpína almenning.
Á þessa leið skrifa Þjóðverjarnir Klaus-Dieter Döhler og Josef Kowatsch. Báðir eru umhverfisverndarsinnar og Döhler náttúrvísindamaður. Grein þeirra birtist í útgáfunni EIKE, hægt er að lesa hana í samantekt á ensku.
Loftslagsnefnd Sameinuðu þjóðanna, IPCC, er svo gengumspillt, skrifa Döhler og Kowatsch, að flestir náttúruvísindamenn hafa sagt sig frá störfum fyrir nefndina. Eftir sitja félagsfræðingar, hagfræðingar og stjórnmálafræðingar.
Eins og gefur að skilja vita félagsvísindamennirnir ekkert um loftslagsvá, sem sérfræðingar, en þess meira um hvernig eigi með óttastjórnun, peningagjöfum og áróðri að halda viðskiptamódelinu gangandi.
Á seinni tíð eru náttúruvísindamenn, sem sjá í gegnum blekkinguna, farnir að taka af sér silkihanskana, kalla hlutina réttum nöfnum og leggja til hliðar fræðilegt orðalag. Eðlisfræðingurinn John Clauser, sem fékk Nóbelsverðlaunin árið 2022, sagði nýlega skýrt og skorinort að loftslagsvísindi hafi breyst í falsvísindi í þjónustu trúarbragða.
Tilfallandi hefur síðustu ár vitnað til fjölda náttúruvísindamanna, t.d. Judith Curry, Richard Lindzen, William Happer, Roy Spencer, John Christy, Lennart Bengtsson og fleiri sem þvertaka fyrir loftslagsvá. Allt eru þetta loftslagsvísindamenn. Svikamyllan áfram þótt náttúruvísindamenn sem standa undir nafni sýna með rökum keisarann klæðalausan.
Hvers vegna?
Stutta svarið er peningar.
Í viðtengdri frétt segir af fyrirtækinu Carbfix. Tilfallandi hefur áður fjallað um stórkostlegan árangur fyrirtækisins fyrr á þessu ári, sjá hér og hér. Kjarni málsins:
Landsvirkjun og OR eru á kafi í hókus-pókus hagfræðinni þar sem peningar vaxa á trjám. Öllu heldur: fjármagn er búið til úr koltvísýringi, CO2.
Dótturfélag OR, Carbfix, fær uppslátt í þýsku útgáfunni Die Welt fyrir að þróa aðferð að dæla koltvísýringi úr andrúmsloftinu ofan í jörðina.
Eldgosið í Fagradalsfjalli losar um 10 til 11 þúsund tonn af koltvísýringi, CO2, á dag, segir Jarðvísindastofnun. Fyrsta og stærsta heildstæða lofthreinsi- og förgunarstöðin í heiminum við Hellisheiðarvirkjun fangar 4 þúsund tonn af CO2 á ári.
Jú, þið lásuð rétt. Minna en hálfsdags framleiðsla litlu eldsumbrotanna í Fagradalsfjalli fer ofan í holu á Hellisheiði Á EINU ÁRI.
Landsvirkjun selur fyrir milljarða á ári upprunavottorð, sem er nútímaútgáfa aflátsbréfa miðalda. Upprunavottorðin eru keypt af orkusóðum í Evrópu til að sýna fram á orkuvæna framleiðslu. Vegna sölu á upprunavottorðum/aflátsbréfum er íslensk orka ekki lengur græn nema gegn gjaldi.
Hókus-pókus hagfræðin býr til peninga úr þeirri firru að koltvísýringur sé okkur lifandi að drepa. Veruleikinn er sá að ef við útrýmum koltvísýringi úr andrúmsloftinu jafngilti það sjálfsmorðssáttmála, segir William Happer loftslagsvísindamaður.
Carbfix, og hugmyndin að baki, er milli steins og sleggju. Í einn stað skiptir engu máli þótt einhverju smámagni af CO2 er dælt ofan í jörðina. Í annan stað, ef svo stórundarlega vildi til, að Carbfix fyndi aðferð að taka úr andrúmsloftinu stóran hluta koltvísýrings stafaði lífríki jarðarinnar hætta af. Án koltvísýrings verður engin ljóstillífun. Trjám og plöntum yrði útrýmt, jörðin stæði eftir sem eyðimörk.
Ef menn græða á að trúa blekkingum þá trúa menn blekkingum. Carbfixið er örlítill hluti af viðskiptamódeli en segir nokkra sögu um blekkinguna að baki.
Hugmyndafræði á skjön við veruleikann gengur svo lengi sem henni er haldið uppi með valdi, fjármagni og trúarkreddum. Fyrr heldur en seinna sigrar raunheimur fantasíuna. Þeir verða margir meintir sérfræðingarnir sem endurskrifa ferilsskrána og þykjast hvergi hafa komið nærri vitleysunni sem fjármagnaði starfsframann.
Þróa nýja aðferð til að mæla bindingu koldíoxíðs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég held kannski að BRICS-11 (sem raungerist á næsta ári) komi vitinu fyrir menn. Þöggunin um þennan samruna er ærandi. Hun segir okkur að nú sé verið að mjólka síðustu dropana úr öllum vá-num sem hægt er í von um að óafturkræfar aðgerðir fái að standa.
Ragnhildur Kolka, 26.8.2023 kl. 11:24
Og nú eru olíujöfrar, vestur í henni Ameríku, farnir að dæla lofti ofaní olíulindir sínar. Til að ná meiri olíu upp. Þetta kalla þeir að fanga co2 úr andrúmsloftinu og með því segjast þeir vera komnir með umhverfisvæna, eða græna, olíu. Það sannarlega ekki öll vitleysan eins.
Reyndar verður því svo sem ekki mótmælt, að þarna er verið að dæla co2 niður í jörðin, svona cirka 400 hluta af hverri milljón þess magns sem fer þar undir yfirborð jarðar.
Gunnar Heiðarsson, 26.8.2023 kl. 11:54
Samherjabloggarinn og Sjallamálsvarinn er ekki hlutlaus. Baráttan fyrir benzínbílum á Íslandi er töpuð. Í nýlegri RÚV frétt kom fram að rafbílum fjölgar hratt á meðan benzínbílum fækkar og metanbílar eru að hverfa.
Til hvers að vera að ala á svona hugmyndum og gamaldags benzínbílaáróðri á Íslandi eða Vesturlöndum almennt þegar barátta fyrir benzínbílum virðist töpuð? Hvort sem mönnum líkar betur eða verr hafa vinstrimenn vinninginn og stjórna hægrimönnum í þessu, sjáið bara Guðlaug Þór Þórðarson!
Það eru ekki bara opinberir aðilar sem vilja orkuskipti og draga úr útblæstri, meirihluti almennings líka, þannig að þessa orrustu hafa umhverfissinnar unnið.
Þó eykst útblástur, því Kína og vaxandi iðnríki menga sífellt meira.
Margt er þó greinilega rétt í pistli hins snjalla bloggara, eins og með eldgosin og kolefnislosun þeirra. Þar er þá allavega komin skýringin á því hversvegna hlýrra var á jörðinni stundum í fortíðinni en nú, og gróðurhúsaáhrifin meiri. Sá leyndardómur leystur.
Sannast sagna er það rétt og það er á Trausta Jónssyni að skilja líka, sem er mjög marktækur, sem varfærinn vísindamaður, að allt þetta sé ósannað með áhrif mannsins á hlýnun jarðarinnar.
Samt skal því haldið til haga að mengun mannsins á jörðinni eru miklu verri og margþættari en það. Fer algjörlega gegn mínum heiðnu trúarbrögðum að menn reiðist ekki vegna mengunarinnar eða móðgist, trúarbrögðum sem segja að jörðin sé heilög gyðja og móðir Þórs, kölluð Jörð í Ásatrúnni, og kann það orð vel að vera eldra en öll þessi orð í mörgum tungumálum sem eru sennilega dregin af því gyðjuheiti.
Ingólfur Sigurðsson, 26.8.2023 kl. 14:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.