Föstudagur, 21. júlí 2023
Kaupir Svandís niđurstöđu um Brim?
Svandís ráđherra matvćla gerir samning viđ Samkeppniseftirlitiđ um rannsókn á útgerđinni Brim. Í verksamningi er kveđiđ á um ađ ráđuneyti Svandísar fylgist međ framvindu rannsóknar og hafi heimild til ađ stöđva greiđslur til Samkeppniseftirlitsins ef ráđuneytiđ fćr ekki ţá niđurstöđu sem ađ er stefnt.
Ofanritađ er endursögn á orđum Guđmundar Kristjánssonar forstjóra Brims, sbr. viđtengda frétt.
Allir og amma ţeirra vita ađ Svandís Svavarsdóttir ráđherra Vinstri grćnna stundar pólitík sem gefur sér ađ sjávarútvegurinn sé gerspilltur. Ef frásögn forstjóra Brims er rétt misbeitir Svandís ráđherravaldi í pólitískum tilgangi, kaupir rannsókn til ađ stađfesta pólitíska fordóma.
Forstjóri Samkeppniseftirlitsins ţvertekur fyrir ađ hann stundi rannsóknir til ađ ţjóna pólitískum markmiđum Svandísar ráđherra. Haft er eftir Páli Gunnari Pálssyni forstjóra Samkeppniseftirlitsins:
Rannsókninni mun ljúka međ skýrslu sem mun birtast opinberlega. Ráđherra mun fá hana á sama tíma og almenningur. Ráđherra hefur ekki, eins og Guđmundur virđist halda, möguleika á ţví ađ stöđva greiđslur ef hann er ekki sáttur viđ niđurstöđur Samkeppniseftirlitsins. Ráđherra mun einfaldlega ekki sjá niđurstöđur fyrr en athugun er lokiđ. Ţađ er mikilvćgt ađ hafa í huga ađ í 8. grein samkeppnislaga er Samkeppniseftirlitinu ćtlađ ađ skrifa skýrslur af ţessu tagi. Ţađ er enginn pólitískur vinkill á ţví.
Páll Gunnar viđurkennir ađ samningur sé á milli Samkeppniseftirlitsins og ráđuneytis Svandísar. Einfaldast er ađ leggja samninginn fram opinberlega. Ţá geta óvilhallir myndađ sér skođun á ţví hvort hér sé á ferđinni eđlileg athugun á mikilvćgri atvinnugrein eđa vinstri grćn pólitík klćdd í málefnalegan búning stjórnsýslu.
![]() |
Svör Páls Gunnars sögđ aumkunarverđ |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.