Laugardagur, 10. desember 2022
Snorri og ósættið í Evrópu
Þjóðverjar skulda okkur stórt, þeir eyddu þriðjungi pólsku þjóðarinnar í seinna stríði, segir nýr sendiherra Póllands í Þýskalandi.
Í hundrað ár hafa Rússar reynt að eyða úkraínsku þjóðinni, segir fyrrum utanríkisráðherra Úkraínu.
Stórar yfirlýsingar atarna.
Algildur mælikvarði á gott og illt er ekki til samskiptum þjóða. Það er hægt að meta einstök atriði, leggja þau á vogarskálarnar og fella siðferðisdóma. En þegar í senn er undir löng saga og legíó atvika er tómt mál að tala um einhlítan dóm. Veldur þar hver á heldur.
Í stað þess að ræða sögulega sekt er Evrópu nær að hugsa hagnýtt og spyrja hvernig þjóðir álfunnar geti búið saman í sæmilegri sátt.
Evrópusambandið var stofnað eftir seinna stríð til að gera einmitt þetta, að setja álfunni húsreglur. Nató skyldi sjá um eftirfylgni á reglunum, yrði þess þörf. Eftir lok kalda stríðsins var öllum fyrrum kommúnistaríkjum Austur-Evrópu boðin aðild að ESB og Nató.
Einni þjóð var þó haldið utan við sameiginlegar siðareglur - Rússum. Tvennir siðir þýða tvenn lög sem aftur leiða til borgarastyrjaldar. Þorgeir Ljósvetningagoði vissi þetta fyrir þúsund árum á Íslandi. Orðin eru lögð honum í munn af íslenskum sagnameistara germanskrar sögu og trúar, Snorra Sturlusyni.
Athugasemdir
Að vestan kom svo - höldum Rússum úti, Þjóðverjum niðri og okkur inni. Og þar við situr.
Ragnhildur Kolka, 10.12.2022 kl. 10:07
Besta, stysta og stórkostlegasta greining á ástandinu í dag hjá henni Ragnhildi Kolka.
Þakka skrifin þín Páll Vilhjálmsson.
Egilsstaðir, 10.12.2022 Jónas Gunnlaugsson
Jónas Gunnlaugsson, 10.12.2022 kl. 23:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.