Laugardagur, 15. október 2022
Göbbels og Gróa á Glæpaleiti
Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands taldi fréttamann RÚV, Brynjólf Þór Guðmundsson, ekki brotlegan við þriðju grein siðareglna blaðamanna þegar hann staðhæfði í frétt að Arna McClure lögfræðingur Samherja væri meðlimur í
skæruliðadeild Samherja sem hafði samræmt atlögu að fréttamönnum sem fjölluðu um framgöngu Samherja í Namibíu og ásakanir um lögbrot fyrirtækisins og stjórnenda þess.
Það er ekki og var ekki skæruliðadeild hjá Samherja til að gera blaðamönnum grikk. Arna og Páll skipstjóri Steingrímsson höfðu sín á milli talað um að þau væru í skæruhernaði gegn stjórnendum Samherja. Örn Arnarson blaðamaður á Viðskiptablaðinu ræddi ummælin í pistli:
Þegar þær afhjúpanir sem Kjarninn og Stundin birtu um málefni Samherja á sínum tíma eru skoðaðar ofan í kjölinn sést glögglega að á vegum Samherja var engin skæruliðadeild rekin og fyrirtækið ekki hvetjandi til þess. Eins og sjá má af fréttaflutningi ofangreindra miðla kom hugtakið skæruliðadeild fyrir í tveggja manna spjalli innanhússlögmanns Samherja og skipstjóra á forritinu Whatsapp því þeim fannst stjórnendur Samherja, stjórnarmenn í fyrirtækinu og utanaðkomandi ráðgjafar ekki gera nóg til að svara gagnrýni á fyrirtækið í fjölmiðlum.
Skæruliðadeildin gegn blaðamönnum er hugarfóstur Kjarnans og Stundarinnar. Brynjólfur Þór endurtók skáldskapinn í frétt á RÚV og það er tilefni kæru Örnu.
Þriðja grein siðareglna BÍ segir: ,,Blaðamaður vandar upplýsingaöflun sína, úrvinnslu og framsetningu svo sem kostur er og sýnir fyllstu tillitssemi í vandasömum málum. Hann forðast allt, sem valdið getur saklausu fólki, eða fólki sem á um sárt að binda, óþarfa sársauka eða vanvirðu."
Frétt RÚV byggði á skáldskap Kjarnans og Stundarinnar. Það kallast ekki ,,vönduð upplýsingaöflun." Fréttir sem byggja ekki á heimildum eru slúður. Siðanefnd BÍ hefði, líkt og Örn Arnarson blaðamaður Viðskiptablaðsins, getað kynnt sér frumgögnin, þau sem komu úr síma Páls skipstjóra, og komist að hinu sanna, að frétt RÚV er slúður.
En hvað gerir siðanefnd BÍ. Jú, í úrskurði nefndarinnar segir þetta:
Umrædd frétt fjallar um niðurstöðu Landsréttar og er forsaga málsins rakin stuttlega með vísan í orðalag sem margoft hefur verið notað í opinberri umræðu. Framkomin gögn styðja þann gildisdóm sem fram kemur í þeirri setningu sem nefnd er í kærunni. (Undirstrikun pv)
Gögnin styðja ekki fréttina. Úrskurður siðanefndarinnar er efnislega rangur, sannanlega. Skæruliðadeild Samherja gegn blaðamönnum var ekki til, það er tilbúningur, slúður. Gögnin sýna það svart á hvítu.
Lykilorðið í úrskurði siðanefndar er ,,margoft". Ef slúðrið er endurtekið nógu oft verður það almannarómur og viðtekin sannindi. Göbbels og Gróa á Glæpaleiti fallast í faðma.
Fimmmenningarnir í siðanefnd BÍ starfa í sama anda og dómnefnd stéttafélagsins, sem verðlaunar glæpi.
BÍ er stéttafélag slúðurbera og sakborninga.
Brynjólfur og fréttastofa RÚV ekki brotleg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Siðanefndir eru langflestar upp á punt. Félög skyldug til að hafa eina svona nefnd á hliðarlínunni. Ráðgefandi er oft notað um nefndina. Þeir hafa ekkert úrskurðarvald. Oft er um geðþótta ákvörðun að ráða hjá siðanefndum. Nefndarmenn vilja ekki ganga gegn straumnum og því segja þeir viðkomandi félagsmanna hafa gerst brotlegan við siðareglur. Skiptir þá engu í hvaða félagsi eða samtökum nefndin starfar.
Helga Dögg Sverrisdóttir, 15.10.2022 kl. 18:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.