Föstudagur, 9. september 2022
Ţóra hringdi í byrlara Páls skipstjóra
Kona, nákomin Páli skipstjóra Steingrímssyni, byrlađi honum og stal síma hans 3. maí í fyrra. Konan stríđir viđ andlega vanheilsu. Hún afhenti blađamanni RSK-miđla síma skipstjórans til afritunar samkvćmt fyrirfram ákveđnu skipulagi. Eftir gagnastuldinn var símanum komiđ fyrir á sjúkrabeđ Páls, sem var á gjörgćslu.
Lögreglan hóf rannsókn málsins 14. maí í fyrra, eftir kćru Páls skipstjóra.
Fyrsta yfirheyrslan yfir konunni fór fram 5. október.
Tveim klukkustundum fyrir yfirheyrsluna hringdi Ţóra Arnórsdóttir ritstjóri hjá RÚV í veiku konuna, sennilega ekki til ađ vita hvernig henni liđi.
Gögn lögreglu sýna yfir 20 símtöl Ţóru og byrlara Páls skipstjóra á tímabilinu sem yfirheyrslur fóru fram yfir fimm sakborningum.
Líklega voru rćddar uppskriftir - ţó ekki ţćr sem kenndar eru viđ kökur.
RSK-miđlar, RÚV, Stundin og Kjarninn, reyndu frá ágúst ađ búa til samrćmda frásögn um ţađ sem gerđist í apríl og byrjun maí í fyrra ţegar atlagan ađ Páli skipstjóra var skipulögđ og framkvćmd. Ekki undir neinum kringumstćđum mátti hiđ sanna koma í ljós. Litla-Hraun og Hólmsheiđi eru ekki skemmtilegir áfangastađir.
Lögreglan hlustađi.
Athugasemdir
''lögreglan hlustađi''
Heimir Lárusson Fjeldsted, 9.9.2022 kl. 07:59
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.