Ekki hægt að fæðast í röngum líkama

Staðhæft er að sumir fæðist í röngum líkama. Að ,,kona" fæðist í líkama karls og öfugt; ,,karl" í kvenlíkama. En það er ekki hægt. Ástæðan er eftirfarandi.

Við barnsfæðingu verður til einstaklingur heill og óskiptur. Meðvitundin og líkaminn eru eitt. Hvernig einstaklingurinn vex og dafnar er háð erfðum annars vegar og hins vegar atlæti. Aðeins andvana fæddir eru án meðvitundar. Lifandi fædd börn eru ein óskiptanleg heild, líkami og meðvitund. Hvorugt getur án hins verið.  

Einstaklingurinn er annað tveggja karlkyns eða kvenkyns. Í örfáum tilvikum, vel innan við 1% lifandi fæddra, eru kyneinkenni óræð. Þau tilvik eru læknisfræðilegt úrlausnarefni.

Til að einstaklingur fæðist í röngum líkama þarf meðvitundin að verða óháð líkamanum. En meðvitund utan líkama er ekki til. Meðvitundin gerir fólk lifandi. Án meðvitundar er maðurinn sofandi/meðvitundarlaus eða hreinlega dauður. 

Meðvitundin skapar upplifun. Einhver getur verið tík án þess að vera geltandi; annar ljónstyggur en samt ekki ferfætlingur. Maður getur verið lúsiðinn en ekki skordýr.

Mörgum finnst líkami sinn ekki nógu stæltur eða grannur; brjóstin of lítil eða manndómurinn væskilslegur. Óánægja með líkamann og líkamsparta er viðtekinn þáttur í menningunni og snar þáttur í efnahagskerfinu. Margvísleg fegrun, húðflúr, líkamsrækt, megrun og lýtalækningar velta milljörðum.

Fullorðið fólk má gera hvað það lystir við líkama sinn, tortíma honum ef því er að skipta. En það er ábyrgðarhluti af fólki, sem á að heita fullorðið, að telja ungmennum trú um að hægt sé að fæðast í röngum líkama.

Löngun til að vera annað kyn en manni var úthlutað við fæðingu er allt annað. Drengur getur hagað sér eins og stúlka og stúlka eins og drengur. Hlutverkaleikur er barnagaman sem sumir vaxa ekki upp úr. Það hafa alltaf verið til kvenlegir karlar og karlmannlegar konur. En hugmyndafræðin, blekkingin, um að fæðast í röngum líkama fær sumt ungt fólk til að gangast undir óafturkræfar aðgerðir og lyfjameðferð. Löngun er ein í dag en önnur á morgun. Ekki síst hjá ungu fólki. Óafturkræf inngrip í líkamann vara fyrir lífstíð. 

Þeir sem telja sjálfum sér trú um að vera í röngum líkama eru í reynd að segja meðvitundina og líkamann sitthvað. Ef meðvitundin er ekki líkamleg og náttúruleg hlýtur hún að vera yfirnáttúrleg, guðleg. En þá færi meðvitund aldrei í rangan líkama. Guð, samkvæmt skilgreiningu, gerir ekki mistök.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Loncexter

Hvernig ætli standi á því að íslenskir fjölmiðlar birta nánast aldrei frásagnir af fólki sem kemst frá samkynhneigð, eða sér eftir kynskiptiaðgerðum ?

Það er eins og einhver öfl hafi tangarhald á fjölmiðlaliðinu hér á landi, og vilji sjá sem flesta íslendinga gay eða trans. 

Hvað liggur á bak við þessi ósköp ? Einhver..

Loncexter, 19.6.2022 kl. 14:28

2 Smámynd: Jón Þórhallsson

Þetta er allt saman satt og rétt hjá Páli.

78% allra fjölmiðla eru á valdi samkynhneigðra afla

sem að beita sínu valdi óspart til að stækka "SÓDÓMU-gaypride-gönguna".

Alla vega lokaði mogginn fyrir mitt blogg

þegar að ég fór að gagnrýna gaypride-lífstílinn.

Nú er b+uið að vera lokað fyrir mitt blogg í 4 ár.

Jón Þórhallsson, 19.6.2022 kl. 15:56

3 Smámynd: Emil Þór Emilsson

Bill Maher kom með áhugaverðann punkt um þetta, 

https://fb.watch/dL2qeSom47/

Emil Þór Emilsson, 19.6.2022 kl. 16:35

4 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Ekki hægt að skilgreina þetta betur Páll.

Sigurður Kristján Hjaltested, 19.6.2022 kl. 17:09

5 Smámynd: Ásgeir Rúnar Helgason

Sæll Palli: Varðandi lífeðlislegar forsendur þess að fæðast tvítóla. Þá er ein grundvallar vísindagein hér: 

https://www.ncbi.nlm.nih.gov/pmc/articles/PMC4378544/

Þetta er þó ekki öll sagan. Því eins og með svo margt annað þá er þetta ekki on--off, heldur á glíðandi skala. Í dag vitum við t.d. að einstaklingu getur fæðst með tvö erfðarmengi. En það er annað mál. 

Ásgeir Rúnar Helgason, 19.6.2022 kl. 21:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband