Postulastjórnin

Annað ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur verðu skipað 12 ráðherrum. Lærisveinar Jesú fyllu einnig tylftina. Fagnaðarerindið verður fáyrt en ekki fáheyrt, sem er vel.

Í það stóra og heila skilaði fyrsta ráðuneyti Katrínar af sér góðu búi. Út á þann árangur fengu stjórnarflokkarnir góða kosningu, Framsókn sérstaklega.

Fram að fyrsta ráðuneyti Katrínar 2017 hafði verið viðvarandi stjórnarkreppa frá bankahruni 2008. Aðalávinningur nýliðins kjörtímabils var stjórnfesta, sem almenningur kunni að meta eftir lausung í níu ár.

Um leið og ríkisstjórninni er óskað til hamingju með endurnýjuð heit skal á það minnt að meðal lærisveinanna tólf var náungi að nafni Júdas Ískaríot. Aldrei er of varlega farið. 


mbl.is 12 ráðherrar í nýrri ríkisstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Forsætisráðherra frú Katrín miklast eigi,enda aldrei fengið viðurnefni hinnar fornu nöfnu sinnar.Hví skildi hún ekki breytast eins og hinir kristnu undirráðherrar hennar sem aldrei þora að minna á að jólin eru fæðingarhátíð frelsarans Jésús Krists.(eða kríta ég liðugt).Eftir 3ja ráðuneits Katrínar gæti allt gott gerst

Helga Kristjánsdóttir, 27.11.2021 kl. 14:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband